Fara í efni

Aðalfundur Félags eldri borgara Dölum og Reykhólahr.

23.03.2026
Fréttir

Aðalfundur Félags eldri borgara í Dalabyggð og Reykhólahreppi verður haldinn í Rauða kross húsinu í Búðardal fimmtudaginn 26. mars kl. 14:00.


Dagskrá fundar:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla formanns um starfsemi liðins árs.
3. Ársreikningar lagðir fram til umræðu og afgreiðslu.
4. Ákvörðun árgjalds.
5. Lagabreytingar: lagðar fram tillögur að lagabreytingum og þær bornar undir atkvæði.
6. Kosningar: Kjósa þarf, gjaldkera, varaformann, einn meðstjórnanda og einn skoðunarmann reikninga.
7. Önnur mál.

 

Kaffiveitingar.

 

Stjórnin