Fara í efni

2 tilboð bárust í smíði brúar yfir Djúpafjörð

29.09.2026
Fréttir

Tilboðin reyndust himinhátt yfir áætluðum verktakakostnaði. Aðeins tvö tilboð bárust, það lægra frá ÞG-verktökum upp á liðlega 3.888 milljónir króna. Það er um sextíu prósentum yfir kostnaðaráætlun, sem var upp á tæplega 2.432 milljónir króna. Lægra boðið er þannig nærri 1.457 milljónum króna yfir áætluðum kostnaði.

Hærra tilboðið barst frá Ístaki, upp á 5.992 milljónir króna. Það var 2.104 milljónum króna, eða 146 prósentum, yfir áætluðum verktakakostnaði.

 

Bjóðandi

Tilboð kr.

Hlutfall

Frávik kr.

Ístak hf., Mosfellsbær

5.992.459.407

246,4

2.104.007.931

ÞG verktakar, Reykjavík

3.888.451.476

159,9

0

Áætlaður verktakakostnaður

2.431.870.289

100,0

1.456.581.187

       

 

 

 

 

„Þetta eru auðvitað vonbrigði,“ voru fyrstu viðbrögð Bergþóru Þorkelsdóttur vegamálastjóra en tilboðin voru opnuð hjá Vegagerðinni klukkan 14 í dag. „Þetta er hrikalega hátt yfir og ekki það sem við áttum von á,“ sagði hún.

Af visir.is