Fara í efni

Umhverfis- og náttúruverndarnefnd

5. fundur 16. febrúar 2026 kl. 16:00 Sjórnsýsluhúsið Maríutröð 5a
Nefndarmenn
  • Hrefna Jónsdóttir formaður (HJ)
  • Vilberg Þráinsson (VÞ)
  • Kjartan Þór Ragnarsson (KÞR)
Fundargerð ritaði: Hrefna Jónsdóttir

Fundargerð

5. fundur umhverfis- og náttúruverndarnefndar Reykhólahrepps,

mánudaginn 16. febrúar 2026, kl. 16.00

Fundarstaður: Stjórnsýsluhúsið Maríutröð 5a, Reykhólum.

Mætt:

Hrefna Jónsdóttir, (HJ)

Vilberg Þráinsson (VÞ)

Kjartan Þór Ragnarsson (KÞR)

Fundargerðin er rituð á tölvu og er 2 síður.

 

Hrefna bauð fólk velkomið, óskaði eftir öðrum málum á dagskrá og

kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðið. Engar athugasemdir voru gerðar við

fundarboðið. Þá var gengið til dagskrár.

 

Dagskrá:

Mál til afgreiðslu:

1.   Sorpsvæði- Opnun

Málið rætt stefnt að opnun sem fyrst. Gert verður ráð fyrir að opnun verði nokkrum sinnum í viku.

Samþykkt samhljóða

2.   Skógrækt í þéttbýli

Málið rætt og Hrafnkatli Guðnasyni falið að finna fagaðila til að hanna svæðið m.t.t. skjólbelta og annarra trjáræktar.

Samþykkt samhljóða

3.   Ábending um umgengni hundaeigenda

Umhverfis og náttúruverndarnefnd vill minna hundaeigendur á að taka upp eftir hundana sína. Hrafnkatli Guðnasyni falið að athuga möguleikann á að setja upp skilti til að minna á þetta.

Samþykkt samhljóða

4.   Umhverfisdagurinn/Plokkdagurinn

Ákveðið er að haldið verði upp á umhverfisdaginn 26. apríl þegar stóri plokkdagurinn er.

Samþykkt samhljóða

Mál til kynningar

5.   C 11 lokaskýrsla

Lagt fram og kynnt. Lagt til að þetta verði kynnt framkvæmda- og skipulagssviði sem fyrst.

 

Önnur mál (ef einhver):

Engin mál bárust

 

Reykhólum 16. febrúar 2026

Hrefna Jónsdóttir

Formaður Umhverfis- og náttúruverndarnefndar