Sveitarstjórn
Fundargerð
540. fundur sveitarstjórnar Reykhólahrepps
21. október 2026, kl. 17:00
Fundarstaður: Stjórnsýsluhúsið Maríutröð 5a, Reykhólum.
Mætt eru:
Árný Huld Haraldsdóttir, oddviti
Margrét Dögg Sigurbjörnsdóttir, 3. varamaður S - í fjarveru Hrefnu Jónsdóttur
Indiana Svala Ólafsdóttir, aðalmaður
Kjartan Þór Ragnarsson, aðalmaður og sveitarstjóri
Embla D. B. Jóhannsdóttir, aðalmaður
ÁHH ritaði fundargerð og er hún 7 blaðsíður.
Þórólfur Sigurðsson, fjármálastjóri, kom inn á fundinn sem gestur undir lið 6 og 7 í málum til afgreiðslu.
Oddviti bauð öll velkomin á fundinn. Athugaði hvort athugasemdir væru við fundarboð og fundargögn.
Margrét Dögg gerði athugasemd við fundarboð og bókaði eftirfarandi:
„Í 14. gr. sveitarstjórnarlaga kemur fram að halda skuli reglulega fundi á þeim stað og tíma sem ákveðið er fyrir fram samkvæmt samþykkt um stjórn sveitarfélagsins. Samkvæmt samþykkt um stjórn Reykhólahrepps skulu fundir haldnir annan miðvikudag í hverjum mánuði. Í sömu grein sveitarstjórnarlaga er einnig heimilt að fella niður reglulegan fund, enda sé það samþykkt mótatkvæðalaust á næsta fundi sveitarstjórnar á undan.
Umræddur fundur er hins vegar haldinn viku síðar en samþykkt sveitarfélagsins kveður á um. Ekki liggur fyrir að sveitarstjórn hafi samþykkt breytingu á fundartímanum eða á hvaða grundvelli ákvörðun um frestun fundarins var tekin.
Í 15. gr. sveitarstjórnarlaga stendur:
„Framkvæmdastjóri eða oddviti, eftir ákvörðun sveitarstjórnar, boðar fundi. Fundarboð skal berast sveitarstjórnarmönnum ekki síðar en tveimur sólarhringum fyrir fund.“
Fundarboð barst hins vegar ekki fyrr en eftir kl. 17 á mánudegi. Auk þess var fundarboðið birt seint á vefsíðu Reykhólahrepps, en samkvæmt 15. gr. sveitarstjórnarlaga skal fundarboð og dagskrá einnig birt almenningi innan sömu tímafresta og gilda um boðun sveitarstjórnarmanna.
Undirrituð telur að stórbæta þurfi vinnulag og skipulag við boðun sveitarstjórnarfunda svo að mistök sem þessi endurtaki sig ekki. Rétt framkvæmd fundarboða og tímanleg afhending fundargagna eru grundvallarforsendur þess að kjörnir fulltrúar geti sinnt skyldum sínum og að lýðræðisleg vinnubrögð séu tryggð á sveitarstjórnarstigi.
Margrét Dögg Sigurbjörnsdóttir
f.h. Samfylkingar og óháðra“
Engar fleiri athugasemdir voru gerðar.
Spurt eftir öðum málum á dagskrá 7 mál bárust. Samþykkt að taka fundargerð 63. fundar Velferðarnefndar fyrir undir liðnum Fundargerðir og hin málin undir liðum Önnur mál.
Fundargerðir
1. Fundargerð 539. fundar sveitarstjórnar Reykhólahrepps.
Farið yfir fundargerðina, hún hefur verið undirrituð með rafrænum hætti.
2. Fundargerð 62. og 63. fundar Velferðarnefndar.
Mál 3 í Fundargerð 62. fundar Velferðarnefndar:
Sveitarstjórn samþykkir tilboð frá One Systems til félagsþjónustunnar.
Samþykkt samhljóða
Fundargerðirnar kynntar og samþykktar að öðru leyti.
Mál til afgreiðslu
1. 2609025. Erindi vegna sorphirðu
Farið yfir erindi frá Hrafnhildi Reynisdóttir dags. 16.4.26, þar sem óskað er eftir leiðréttingu á sorphirðugjöldum.
Samkvæmt gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs í Reykhólahreppi kemur fram að:
“Gjald vegna meðhöndlunar úrgangs og tengda starfsemi skal lagt á allar íbúðir sem birtar eru í fasteignamati, aukaíbúðir í húsum sem eru birtar í fasteignamati sem óskiptar eignir, lögbýli og atvinnuhúsnæði sem birt eru í fasteignamati.”
Sveitarstjórn samþykkir ekki leiðréttingu á sorphirðugjöldum. Bréfritara er þó bent á að hægt er að óska eftir sorpílátum vegna íbúðarinnar.
Samþykkt samhljóða.
2. 2610012. Beiðni um endurgjaldslaus afnot af íþróttahúsi vegna viðburðar.
Farið yfir erindi frá Jóhönnu Ösp Einarsdóttir, fyrir hönd undirbúningshóps vegna styrktartónleika, þar sem óskað er eftir endurgjaldslausum afnotum af íþróttahúsi vegna viðburðar.
Sveitarstjórn veitir samþykki fyrir endurgjaldslausum afnotum af íþróttahúsi vegna viðburðarins. Sveitarstjóra falið að hafa samband við bréfritara til að fá nánari upplýsingar um dagsetningu, svo hægt sé að upplýsa aðra sem nýta íþróttahúsið.
Samþykkt samhljóða.
3. 2610010. Beiðni um leyfi til uppsetningar á eldstæði í Kvennfélagsgarði.
Farið yfir erindi frá Birni Samúelssyni, fyrir hönd undirbúningshóp, þar sem óskað er eftir að fá leyfi fyrir til að koma fyrir eldstæði og bekkjum í Kvennfélagsgarði til minningar um Björn Ragnar Lárusson og Jón Gylfa Helgason. Kemur fram í bréfinu að helluleggja þarf undir eldstæði og bekki.
Sveitarstjórn samþykkir erindið. Sveitarstjóra falið að vinna verkefnið áfram með hópnum og kanna hvort þurfi einhverjar aðrar staðfestingar vegna þessa og ganga þá frá þeim. Gætt verði að fornminjum, eldvörnum og skipulagslögum við vinnu verkefnisins.
Samþykkt samhljóða.
4. 2610011. Stofnaðild Reykhólahrepps að Samtökum landbúnaðarsamfélaga
Samtökin voru formlega stofnuð 7. október síðastliðinn og er markmið þeirra að efla sameiginlega hagsmunagæslu sveitarfélaga þar sem landbúnaður, búseta í dreifbýli og þjónusta við bændur og búrekstur skipa veigamikinn sess.
Með stofnun samtakanna vilja sveitarfélögin styrkja rödd sína gagnvart stjórnvöldum, stuðla að samræmdri stefnumótun og vinna að lausnum sem snerta atvinnuþróun, innviði, jarðamál, búsetuskilyrði og framtíð landbúnaðar í landinu.
Aðildarsveitarfélögin leggja áherslu á að landbúnaður sé grunnstoð í mörgum byggðarlögum og að nauðsynlegt sé að efla samstarf til að tryggja stöðugleika, nýsköpun og samkeppnishæfni greinarinnar. Samtökin munu jafnframt vinna að því að samræma sjónarmið sveitarfélaga í málum sem varða löggjöf, fjármögnun og þjónustu sem snertir bændur og búrekstur.
Stofnfundurinn markar upphaf að nýjum vettvangi fyrir samvinnu sveitarfélaga sem treysta á sterkan og sjálfbæran landbúnað. Gert er ráð fyrir að samtökin hefji reglubundna starfsemi á komandi misserum og móti fyrstu sameiginlegu áherslur sínar á næsta ári.
Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkir að vera aðilar að Samtökum Landbúnaðarsveitarfélaga.
Samþykkt samhljóða.
5. 2610001. Framkvæmdir við kennsluálmu Reykhólaskóla. Yfirferð tilboða
Farið yfir mat, framkvæmt af óháðum aðila: Vektor-hönnun og ráðgjöf, á framkvæmdir á múrviðgerðum við kennsluálmu Reykhólaskóla sem voru gerðar 2025. Við matið kemur fram að ný múrhúðun er farin að flagna af veggjum og vatnsbrettum. Mjög lítill halli er á vatnsbrettum undir gluggum og innandyra eru ummerki eftir raka undir gluggum. Hreinsa þarf af allt ysta lag múrviðgerðanna af veggjum. Brjóta þarf að af veggjum allan lausan nýjan og eldri múr. Loka þarf sprungum í steypu með inndælingu í opnar sprungur og múrefnum í lokaðar sprungur. Múra svo yfir með viðurkenndum aðferðum. Brjóta þarf upp öll vatnsbretti undir gluggum og endurgera þannig að viðurkenndur frágangur fáist undir gluggum. Samhliða múrviðgerðum þarf að yfirfara allar þéttingar milli glugga og steins.
Þrjú fyrirtæki sem sérhæfa sig í múrvinnu voru beðin um að gera tilboð í viðgerðirnar og tvö þeirra skiluðu inn tilboði.
Sveitarstjórn samþykkir að taka tilboði frá Múrtækni ehf. um viðgerðir á skólahúsnæðinu og að farið verði í verkið strax.
Samþykkt samhljóða.
6. 2610014. Viðauki 1 - við fjárhagsáætlun 2026 vegna breytinga á málalyklum
Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkir framlagðan viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 vegna innleiðingar á breyttri málaflokka- og deildaskiptingu samkvæmt reglugerð nr. 1212/2015 um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga.
Fjárheimildir eru færðar af eldri deildarlyklum yfir á nýja deildarlykla samkvæmt yfirliti sem fylgir viðaukanum. Samtals eru 17 deildir endurflokkaðar. Heildarfjárhæð tilfærðra fjárheimilda nemur 14.968.814 kr. af eldri deildum og sömu fjárhæð er ráðstafað á nýjar deildir.
Viðaukinn felur eingöngu í sér tæknilega endurflokkun og hefur því engin áhrif á heildartekjur, heildargjöld, áætlaða rekstrarniðurstöðu eða handbært fé Reykhólahrepps.
Sveitarstjóra og fjármálastjórn er falið að færa breytingarnar í fjárhagsáætlun og bókhald sveitarfélagsins og tryggja að framsetning ársreiknings verði í samræmi við breytta flokkun.
Samþykkt samhljóða.
7. 2610013. Forsendur fjárhagsáætlanagerðar 2027
Fjármálastjóri fór yfir forsendur fyrir fjárhagsáætlanagerð fyrir árið 2027.
Reykhólahreppur mun ekki hækka gjaldskrár sveitarfélagsins umfram 2,5%.
Forsendunum vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun.
Samþykkt samhljóða
8. 2608001 Maríutröð 5b kauptilboð – fjármögnun
Farið yfir undirritað kauptilboð vegna Maríutraðar 5b.
Sveitarstjórn samþykkir að kaupin verði greidd með handbæru fé sveitarfélagsins. Sveitarstjóra falið að ganga frá greiðslu vegna kaupanna. Fjármálastjóra falið að gera viðauka vegna kaupanna.
Samþykkt samhljóða.
9. 2608005. Fornleifaskráning á Reykhólum. Endanleg skýrsla og uppgjör
Farið yfir skýrslu og útskýringar á endanlegum kostnaði. Fleiri minjar voru skráðar en menn höfðu gert sér hugmynd um og þess vegna kostnaður vegna vinnu við fornleifaskráningu hærri en áætlað var.
Sveitarstjórn samþykkir skýrsluna og endanlegan kostnað. Fjármálastjóra falið að gera viðauka vegna skýrslunnar.
Samþykkt samhljóða.
10. 2610015 Nefndarskipan skipulags,- hafnar og húsnæðisnefndar
Vésteinn Tryggvason hefur óskað eftir lausn sem aðalmaður úr nefndinni. Lagt er til við sveitarstjórn að veita honum þá lausn úr nefndinni.
Samþykkt samhljóða.
Lagt til að Ketill Ingi Guðmundsson verði skipaður sem nýr aðalmaður í skipulags-, hafnar- og húsnæðisnefnd.
Samþykkt samhljóða.
11. 2609037. Sauðfjárvarnir. Beiðni um girðingu við Karlseyjarveg
Farið yfir erindi frá Tómasi Sigurgeirssyni þar sem óskað er eftir að vegagerðin girði frekar meðfram Karlseyjarvegi frekar en að setja niður pípuhlið.
Málið kynnt fyrir sveitarstjórn. Óskað eftir frekari upplýsingum vegna útfærslu girðingar frá Vegagerðinni.
12. 2610013. Kvennaathvarfið. Beiðni um rekstrarstyrk.
Farið yfir erindi frá Kvennaathvarfinu dagsett 6. Október þar sem óskað eftir rekstrarstyrk.
Sveitarstjórn samþykkir að veita styrk til Kvennaathvarfsins.
Samþykkt samhljóða.
Önnur mál:
13. Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - lögreglulög
Lagt fram erindi frá dómsmálaráðuneytinu, dags. 8. október 2026, þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 198/2026, "Drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögreglulögum og fleiri lögum (skipulagsbreytingar hjá lögreglu)".
Umsagnarfrestur er til og með 25. október 2026.
Sveitarstjórn vill taka undir með Bæjarráði Ísafjarðarbæjar og gera bókun þeirra einnig að sinni bókun - og fela sveitarstjóra að senda inn umsögn í Samráðsgátt:
"Fyrirhuguð fækkun lögregluembætta á Íslandi.
Sveitarstjórn Reykhólahrepps lýsir þungum áhyggjum af fyrirhuguðum breytingum á skipulagi lögreglunnar í landinu sem fela í sér fækkun lögregluembætta í þrjú embætti.
Sveitarstjórn leggst gegn því að embætti lögreglustjórans á Vestfjörðum verði lagt niður og yfirstjórn löggæslu í landshlutanum færð annað. Mikilvægt er að stjórnun og ákvörðunarvald lögreglunnar sé áfram á Vestfjörðum, þar sem þekking á staðháttum, samfélaginu og þeim áskorunum sem íbúar Vestfjarða standa frammi fyrir er til staðar.
Vestfirðir búa við sérstakar landfræðilegar aðstæður, langar vegalengdir, fjallvegi og tíðar samgöngutruflanir vegna veðurs og náttúruvár. Þá hefur reynsla undanfarinna ára sýnt hversu mikilvægt er að viðbragðsaðilar og almannavarnir búi yfir staðbundinni þekkingu og geti tekið skjótar ákvarðanir þegar vá steðjar að og þá sérstaklega náttúruhamfarir.
Sveitarstjórn tekur undir mikilvægi þess að efla lögregluna á landsvísu, bæta starfsaðstæður hennar og tryggja öfluga og faglega löggæslu. Slík markmið verða hins vegar ekki sjálfkrafa tryggð með sameiningu embætta og aukinni miðstýringu. Þvert á móti telur sveitarstjórn brýnt að efla lögregluþjónustu á Vestfjörðum með nægum mannafla, bættum búnaði og að tryggja þurfi stjórnunina á Vestfjörðum.
Þá vill sveitarstjórn enn fremur taka fram mikilvægi þess að lögregla sé sýnileg í Reykhólahreppi.“
Samþykkt samhljóða.
14. Þróunarfélag Króksfjarðarness
Farið yfir erindi frá Jóni Guðna Kristinssyni vegna þróunarfélags Króksfjarðarness. Þar er óskað eftir að Reykhólahreppur hafi milligöngu um úthlutun hluta styrkfjár verkefnisins.
Samþykkt samhljóða.
15. Skipulagsbreytingar
Farið yfir tilboð frá þremur fyrirtækjum til áframhaldandi vinnu við skipulagsbreytingar og skipurit.
Lagt til að gengið verði til samninga við Expectus til að klára skipulagsbreytingar hjá sveitarfélaginu, starfslýsingar og skipurit.
Samþykkt samhljóða.
16. Ráðgjöf í mannauðsmálum.
Lagt til að sveitarstjórn samþykki að segja upp þjónustusamningi við Attentus og nýta þá tíma sem hefur verið greitt fyrir hjá fyrirtækinu.
Tillagan borin undir sveitarstjórn.
Samþykkt með 4 atkvæðum gegn 1. MDS kaus gegn tillögunni.
Fram hefur komið að hægt er að leita til fyrirtækja sem vinna með mannauðsmál þegar upp koma mál sem þarf að leita aðstoðar með. Sveitarstjóra falið að nýta sér það þegar koma upp mál sem þarf aðstoð með.
Samþykkt samhljóða.
17. Fjármálaráðstefna Sveitarfélaga.
Kjartan kynnti það sem farið var yfir á ráðstefnunni sem hann sat ásamt Þórólfi, fjármálastjóra.
18. Fundur með eigendum Þörungaklausturs.
Kjartan kynnti fund sem var haldinn með Maríu og Steindóri.
Ekki fleira gert, fundi slitið kl. 19:43
Fundargerð er undirrituð með rafrænum hætti