Fara í efni

Sveitarstjórn

539. fundur 09. september 2026 kl. 17:00 - 21:37 Sjórnsýsluhúsið Maríutröð 5a
Nefndarmenn
  • Árný Huld Haraldsdóttir oddviti
  • Hrefna Jónsdóttir aðalmaður
  • Indiana Svala Ólafsdóttir aðalmaður
  • Kjartan Þór Ragnarsson aðalmaður og sveitarstjóri
  • Aron Viðar Kristjánsson varamaður
Fundargerð ritaði: Árný Huld Haraldsddóttir Oddviti

Fundargerð

539. fundur sveitarstjórnar Reykhólahrepps 

9. september 2026, kl.17:00 

Fundarstaður: Stjórnsýsluhúsið Maríutröð 5a, Reykhólum. 

 

Mætt eru:
Árný Huld Haraldsdóttir, oddviti

Hrefna Jónsdóttir, aðalmaður

Indiana Svala Ólafsdóttir, aðalmaður

Kjartan Þór Ragnarsson, aðalmaður og sveitarstjóri

Aron Viðar Kristjánsson, varamaður í fjarveru Emblu D. B. Jóhannsdóttur

 

Agnieszka Anna Marcinkowska-Kowalczyk kemur inn á fundinn, undir liðum 5 og 19, sem varamaður.

 

ÁHH ritaði fundargerð og er hún 5 blaðsíður.

Oddviti bauð öll velkomin á fundinn. Athugaði hvort athugasemdir væru við fundarboð og fundargögn . Engar athugasemdir. Spurt eftir öðum málum á dagskrá, 3 mál bárust. Samþykkt að taka þau fyrir undir liðum önnur mál.

 

Fundargerðir

1.   Fundargerð 538. fundar sveitarstjórnar Reykhólahrepps.

Farið yfir fundargerðina, hún hefur verið undirrituð

 

2.   Fundargerðir 60. fundar og 61. fundar Velferðarnefndar.

Farið yfir fundargerðirnar.
Þær samþykktar samhljóða.

Reglur um aksturþjónustu fyrir fatlað fólk á þjónustusvæði félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps lagðar fyrir sveitarstjórn.


Sveitarstjórn samþykkir reglurnar.

 

3.   Fundargerð Stjórnar Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps.

Farið yfir fundargerðina.


Samþykkt samhljóða.

 

4.   Fundargerð Dreifbýlisnefndar

Farið yfir fundargerðina.
Sveitarstjórn gerir athugasemd við að í Fjallskilaseðli vantar inn orð við svæði 8, oddvita falið að laga það og setja inn breyttan Fjallskilaseðil.
Sveitarstjórn vill að smalar gæti þess að skipta upp stöðvum á talstöðvum eftir svæðum. Leitarstjórar ræði þetta sín á milli og komist að samkomulagi.

Fundargerð samþykkt að öðru leiti.

Mál til afgreiðslu

5.   2609007 Ráðningasamningur sveitarstjóra

KÞR víkur af fundi undir liðnum. Agnieszka tekur sæti sem varamaður á fundinum.

 

Oddviti fer yfir ráðningarsamning sveitarstjóra.
Samningurinn samþykktur samhljóða.

 

KÞR kemur aftur inn á fundinn.

 

6.   2106005 Þjónustusamningur við Attentus

Samningur um Bakhjarl í mannauðsmálum undirritaður 2021.

 

Tillaga um að taka samninginn til endurskoðunar og fá þar að auki tilboð frá öðrum fyrirtækjum sem veita ráðgjöf í mannauðsmálum.
Sveitarstjóra falið að leita að tilboðum.

Samþykkt samhljóða.

 

7.   2609008 Persónuverndarfulltrúi Reykhólahrepps

Bréf frá persónuvernd um að uppfæra skráningu persónuverndarfulltrúa.

 

Tillaga um að Sigmundur Guðmundson, lögmaður hjá lögmannsstofunni Pacta, verði nýr persónuverndarfulltrúi Reykhólahrepps.
Samþykkt samhljóða.

 

8.   2302007 Endurnýjun umboðs skipulagsfulltrúa Reykhólahrepps

Reykhólahreppur veitir Hlyni T. Torfasyni áframhaldandi umboð sem skipulagsfulltrúi sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.

 

9.   2609003 Upplýsingabeiðni um stefnumótandi áætlun sveitarfélaga

Innviðaráðuneytið hefur ýtt úr vör vinnu við endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga þar sem fyrsta skrefið er gerð grænbókar um málefnið. Í grænbók birtist stöðumat á helstu lögbundnu verkefnum og öðrum viðfangsefnum sveitarfélaga og greiningu áskorana og tækifæra, sem lagt verður til grundvallar endurskoðun stefnu og aðgerðaáætlunar í málaflokknum.

 

Sveitarstjóra og oddvita falið að svara spurningalistanum.

Samþykkt samhljóða.

 

10.   2609009 Boð á 71. Fjórðungsþing að hausti

Fjórðungsþing haldið á Patreksfirði 26.-28. október nk.
KÞR, ÁHH, HJ, EDBJ og AVK fari á þingið. KÞR kanni þátttöku starfsmanna skrifstofu á þinginu.

 

11.   2608001 Maríutröð 5b

Sveitarstjóra og umsjónarmanni fasteigna falið að gera ástandsskoðun á íbúðinni. Sveitarstjóra í framhaldi falið að undirrita bindandi kauptilboð með fyrirvara um fjármögnun.

Samþykkt samhljóða.

 

12.   2607006 Ósk um breytingu á opnunartíma í Grettislaug

Erindi frá Málfríði Vilbergsdóttur varðandi opnunartíma í Grettislaug.

Erindinu vísað til Lýðheilsufulltrúa og mennta- og menningamálanefndar til umfjöllunar og stuðnings við ákvörðun opnunartíma.
Samþykkt samhljóða.

 

13.   2609010 Tilboð í viðgerð á minnismerki Jóns Thoroddsen

Farið yfir tilboð í viðgerð á tréverki á minnismerki Jóns Thoroddsen.
Sveitarstjóra falið að gera verðkönnun hjá öðrum verktökum.

Viðgerð á minnismerki verði vísað til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2027.

 

14.   2601020 Landaskipti – Hjallar í Þorskafirði

Erindi um að sveitarstjóri fái endurnýjað umboð fyrir hönd sveitarfélagsins til að sitja í 4 manna nefnd um skiptingu á landinu.
Samþykkt samhljóða.

 

15.   2609005 Beiðni um styrk vegna ritunar sögu Flateyjar

Erindi til sveitarstjórnar um styrk vegna ritunar sögu Flateyjar.

Sveitarstjórn samþykkir styrkbeiðnina.

 

16.   2106007 Hraðahindranir á Karlseyjarvegi á Reykhólum

Erindi frá Vegagerð um hraðahindranir á Karsleyjarvegi.

Sveitarstjórn fagnar erindinu og hlakkar til samstarfs við Vegagerðina. Sveitarstjórn leggur til við Vegagerðina að tillaga A1 verði fyrir valinu.
Samþykkt samhljóða.

 

17.   2609011 Fulltrúi sveitarstjórnar í verkefnaráð Landsnets

Landsnet óskar eftir að Reykhólahreppur skipi fulltrúa í verkefnaráð vegna Hvalárvirkjunar.

 

Kjartan Þór Ragnarsson skipaður fulltrúi í verkefnaráð vegna Hvalárvikjunar.
Samþykkt samhljóða.

 

17.   2609012 Starfshópur um ferjumál – afstaða sveitarstjórnar

Erindi þar sem óskað er eftir afstöðu sveitarfélagsins um ferjumál eins og þau eru nú og ræða framtíðarsýn. Sveitarstjóri fer til fundar við starfshóp um ferjumál þann 15. september.

 

Sveitarstjórn á spjall um ferjumál.
Sveitarstjórn telur mikilvægt að afstaða sveitarfélagsins verði sýnileg og tekin fyrir á sveitarstjórnarfundi á næstu misserum.
Samþykkt samhljóða.

 

19.   2609001 Beiðni um álit sveitarstjórnar á félagsáhrifum vindorkugarðs í Garpsdal

 

Oddviti felur sveitarstjóra að rita fundargerð.

ÁHH og AVK víkja af fundi. Agnieszka tekur sæti sem varamaður á fundinum.

 

Rætt er um bréf frá faghópi 3 í ramma 6 um álit sveitarstjórnar á vindorkuhugmyndum. Fjallað um ólík sjónarmið sem upp hafa komið og þau atriði sem faghópur leggur til grundvallar mati sínu þar sem faghópur óskar eftir almennri afstöðu fyrir miðjan september. Sveitarstjórn telur þann frest of skamman til að veita almenna umsögn sína um svo mikilvægt málefni er varðar langtíma hagsmuni sveitarfélagsins. Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að óska eftir frest gagnvart nefndinni til þess að veit almenna umsögn um málið til þess að hægt verði að afla þeirra upplýsinga sem óskað er eftir á faglegan og nákvæman hátt. Sveitarstjórn leggur áherslu á að almenn umsögn hennar endurspegli á sem réttastan hátt hagsmuni og afstöðu nærsamfélagsins.
Samþykkt samhljóða

 

ÁHH og AVK koma aftur til fundar.

Mál til kynningar

20.   2609013 Nýr verkefnastjóri Brothættra byggða

Guðmundur Konráðsson er nýr verkefnastjóri Fjársjóðs fjalla og fjarða.

 

Sveitarstjórn óskar Guðmundi til hamingju með starfið og hlakkar til samstarfsins.

 

21.   2403004 Kúalaug – verklok og lokaskýrsla

KÞR fór yfir verkefnið og lokaskýrslu. Styrkur frá Uppbyggingasjóði ferðamannastaða hefur að fullu borist til sveitarfélagsins.

 

22.   2306007 Lagningu ljósleiðara á Reykhólum frestað

Styrkur sem sveitarfélagið fékk frá Fjarskiptasjóði til að leggja ljósleiðara í þorpið hefur fengist samþykkt að færist til ársins 2027.

 

23.   2509003 Eyjaþing II haldið í Flatey 22. ágúst

Kjartan sagði frá Eyjaþingi 2026 sem var haldið í Flatey 22. ágúst. Á fimmta tug manna mætti á fundinn og margt og mikið rætt. Niðurstöður fundarins liggja fyrir fljótlega og verða þá kynntar betur fyrir sveitarstjórn.

 

24.   Undirritun Svæðisskipulags Vestfjarða 27. ágúst

Svæðisskipulag Vestfjarða var undirritað við minnisvarða að Kollabúðum í Þorskafirði. Fulltrúar allra sveitarfélaga á Vestfjörðum komu þar og undirrituðu Svæðisskipulagið.

 

25.   2608005 Fornleifaskráning á Reykhólum – drög
Drög kynnt fyrir sveitarstjórn.

Önnur mál:

26.   Starf skrifstofu- og fjármálastjóra

Þórólfur Sigurðsson hefur verið ráðinn til starfsins. Sveitarstjórn býður hann velkominn í starfið og hlakkar til samstarfsins.

 

Lagt til að Þórólfur fái prókúru og aðgang að bankareikningum sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.

 

27.   Starf hjúkrunarforstjóra

Hulda Sveinbjörg Gunnarsdóttir hefur verið ráðin sem hjúkrunarforstjóri Barmahlíðar og hefur tekið við starfinu.


Sveitarstjórn býður hana velkomna í starfið og hlakkar til samstarfsins.

 

28.   TRÚNAÐARMÁL

Trúnaðarmál ritað í trúnaðarmálabók.

 

Ekki fleira gert, fundi slitið kl. 21:37

Fundargerð er undirrituð með rafrænum hætti