Fara í efni

Sveitarstjórn

538. fundur 08. júlí 2026 kl. 17:00 - 18:21 Sjórnsýsluhúsið Maríutröð 5a
Nefndarmenn
  • Árný Huld Haraldsdóttir (ÁHH) oddviti
  • Embla Dögg B. Jóhannsdóttir (EDBJ) varaoddviti
  • Hrefna Jónsdóttir (HJ) aðalmaður
  • Kjartan Þór Ragnarsson (KÞR) aðalmaður og starfandi sveitarstjóri
  • Matthías Óli Gústafsson (MÓG) varamaður í fjarveru Indiönu
Fundargerð ritaði: Árný Huld Haraldsddóttir Oddviti

Fundargerð

538. fundur sveitarstjórnar Reykhólahrepps

8. júlí 2026, kl.17:00

Fundarstaður: Stjórnsýsluhúsið Maríutröð 5a, Reykhólum.

Mætt:

Árný Huld Haraldsdóttir (ÁHH), oddviti

Embla Dögg B. Jóhannsdóttir (EDBJ), varaoddviti

Hrefna Jónsdóttir (HJ), aðalmaður

Kjartan Þór Ragnarsson (KÞR), aðalmaður og starfandi sveitarstjóri

Matthías Óli Gústafsson (MÓG), varamaður í fjarveru Indiönu

 

ÁHH ritaði fundargerð. Fundargerð er rituð á tölvu og er 5 bls.

Oddviti bauð sveitarstjórn velkomna á fundinn. Athugaði hvort væru athugasemdir við fundarboð

og fundargögn. Ekki voru gerðar athugasemdir. Kannað með önnur mál á fundinn. Engin mál bárust.

 

Dagskrá:

Fundargerðir:

1.   Fundargerð 537. fundar sveitarstjórnar Reykhólahrepps

Farið yfir fundargerðina - fundargerð er undirrituð rafrænt.

2.   Fundargerð skipulags-, hafnar- og húsnæðisnefndar - 30.6.26

Farið yfir fundargerðina og hún samþykkt.

Samþykkt samhljóða.

3.   Fundargerð Stjórnar Barmahlíðar - 6.7.26

Farið yfir fundargerðina og hún samþykkt.

Samþykkt samhljóða.

Mál til afgreiðslu:

4.   Samþykkt um stjórn Reykhólahrepps, seinni umræða

Farið yfir samþykkt um stjórn Reykhólahrepps með breytingum.

Samþykktin samþykkt samhljóða.

5.   Starf sveitarstjóra

KÞR víkur af fundi.

Aron Viðar Kristjánsson (AVK) kemur inn sem varamaður undir þessum lið.

Alls bárust 11 umsóknir um starf sveitarstjóra Reykhólahrepps, 2 umsóknir voru dregnar til baka.

Nöfn þeirra sem sóttu um:

Aron Bjarmi Gerðarson

Árdísi Rut Einarsdóttir

Einar Björn Einarsson

Einar Kristján Jónsson

Hilmar Vilberg Gylfason

Kjartan Þór Ragnarsson

Maríanna H. Helgadóttir

Sigríður Kristín Jónasdóttir

Sævar Freyr Sigurðsson

 

R-listi lagði fram eftirfarandi bókun:

Raddir okkar allra buðu fram lista við kosningar í maí. Þegar við buðum okkur fram vorum við ekki með ákveðinn aðila sem sveitarstjóraefni listans. Við töluðum um frá upphafi að við vildum auglýsa starf sveitarstjóra og ráða þann sem við teldum hæfastan og aðila sem við treystum. Innan listans ræddum við um að hver sem er mætti sækja um starfið.

Nú hefur starfið verið auglýst og 11 umsókn bárust, 2 þeirra hafa verið dregnar til baka. Farið hefur verið yfir umsóknir sem bárust og umsækjendum gefin stig byggð á umsóknum þeirra.

Kjartan Þór Ragnarsson var einn af þeim sem sótti um starfið. Hann hefur starfað sem sveitarstjóri seinasta mánuðinn og komið sér inn í mörg þeirra verkefna sem sveitarstjóri þarf að sinna. Starfið er viðamikið og við krefjumst þess að sveitarstjóri Reykhólahrepps taki virkan þátt í samfélaginu og hafi áhuga á að vinna sveitarfélaginu til heilla. Við teljum hann hafa sýnt sig og sannað þennan tíma.

Kjartan er með menntun sem nýtist í starfi, BA í bæði lögfræði og sagnfræði og diplómu í kennslufræðum. Hann hefur greinagóða þekkingu á málefnum sveitarfélagsins og mikinn áhuga á uppbyggingu samfélagsins og markaðssetningu. Í gegnum störf sín hjá sveitarfélaginu sem verkefnastjóri hefur hann öðlast mikla þekkingu á málum sveitarfélagsins í t.d. atvinnuþróun, auðlindanýtingu og umhverfismálum.

Við teljum Kjartan Þór hæfasta umsækjandann sem sótti um starf sveitarstjóra Reykhólahrepps. Þar að auki berum við traust til hans að vinna að heilum hug fyrir sveitarfélagið og ganga með okkur fram á við með samfélagið allt að leiðarljósi.

Því leggjum við til að ekki verði meiri tíma eða fé eytt í umsóknarferlið. Gengið verði til samninga við Kjartan Þór Ragnarsson um starf sveitarstjóra Reykhólahrepps.

Hann mun halda sæti sínu í sveitarstjórn.

Fyrri samningur muni falla niður við undirskrift nýs ráðningarsamnings.

Oddvita falið að ganga frá ráðningarsamningi.

Árný Huld Haraldsdóttir,

Embla Dögg B. Jóhannsdóttir,

Matthías Óli Gústafsson,

Aron Viðar Kristjánsson.”

 

HJ lagði framm eftirfarandi bókun:

“Þessi ákvörðun R-listans kemur því miður ekki á óvart og hefur þetta átt sér augljósan aðdraganda frá því fyrir kosningar. Hér líta þau framhjá reynslumeiri umsækjendum þrátt fyrir að á stefnuskrá þeirra stæði að þau vildu ráða þann hæfasta í starfið. Þau kjósa að taka þessa ákvörðun án þess að taka viðtöl við nokkurn umsækjenda eða leita sér utanaðkomandi ráðgjafar til að gæta hlutleysis. Raunin er að nokkrar álitlegar umsóknir bárust og eðlilegra hefði verið að taka viðtöl og meta umsækjendur einnig út frá því. Sveitastjórn er frjálst að ráða þann sem þau vilja en þá hefði verið eðlilegra að vera heiðarleg frá upphafi en ekki að spila þetta leikrit og þar með eyða tíma og skattpeningum.

Ég kýs því á móti þessari tillögu og vona að þetta muni ekki einkenna starfshætti R-listans á kjörtímabilinu.

Hrefna Jónsdóttir

Fulltrúi S-Lista Samfylkingar og óháðra í Reykhólahreppi.”

Eftirfarandi tillaga lögð fyrir:

„Lagt er til að gengið verði til samninga við Kjartan Þór Ragnarsson um starf sveitarstjóra Reykhólahrepps.

Hann mun halda sæti sínu í sveitarstjórn.

Fyrri samningur muni falla niður við undirskrift nýs ráðningarsamnings.

Oddvita falið að ganga frá ráðningarsamningi.“

Tillagan er samþykkt með 4 atkvæðum á móti 1.

AVK yfirgefur fundinn og KÞR kemur aftur til fundar.

 

6.   Skipulagsbreyting á reksti skrifstofu og deilda sveitarfélagsins

“Fulltrúar R-lista leggja til að hafin verði að nýju vinna við skipulagsbreytingar hjá sveitarfélaginu og

bætt við og unnið áfram með þær skipulagsbreytingar sem urðu hjá sveitarfélaginu á síðasta

kjörtímabili. Markmið skipulagsbreytinganna er að stuðla að sem mestri hagkvæmni í rekstri

sveitarfélagsins og skilvirkni í veittri þjónustu þess og verkefnum.

Forsendur vinnu við skipulagsbreytingarnar eru miklar yfirstandandi breytingar á starfsmannahaldi

á skrifstofu og hjá deildum sveitarfélagsins, núverandi fjárhagsstaða sveitarfélagins, nýjar og

breyttar áherslur sveitarfélagsins á verkefnum og fjárfestingum með endurskoðun áætlana auk

þarfar á gerð og uppfærslum starfslýsinga ýmissa starfa hjá sveitarfélaginu til að mæta breyttum

áherslum verkefna og skilum á milli starfssviða.

Til þess að hefja vinnu við skipulagsbreytingar hjá sveitarfélaginu leggja fulltrúar R-lista til að

sveitarstjóra ferði falið að leita eftir verðhugmyndum hjá ráðgjafastofum mannauðs-, stjórnenda- og

rekstraráðgjafar til að aðstoða og leiðbeina sveitarstjórn við vinnu og framkvæmd

skipulagsbreytinganna.”

Samþykkt samhljóða.

 

7.   Maríutröð 5B

Farið yfir tilboð til sveitarfélagsins vegna kaupa á íbúðinni. Umræður um að húsnæðið mundi nýtast vel fyrir sveitarfélagið.

 Sveitarstjórn lýsir yfir áhuga á kaupum á Maríutröð 5B. Fjármögnun kaupa vísað til vinnu við endurskoðun fjárhagsáætlunar og þörf á lántöku.

 

Samþykkt samhljóða.

 

8.   Vatnsveita Reykhóla

Farið yfir tilboð í vatnsgeyma og lindarbrunna og vinnu.

Sveitarstjórn samþykkir að fara í framkvæmdir á aukinni vatnsöflu og –geymslu, samkvæmt umræðu á fundinum. Fjármögnun vísað til vinnu við endurskoðun fjárhagsáætlunar og þörf á lántöku. Sveitarstjóra falin áframhaldandi vinna við verkefnið.

Samþykkt samhljóða.

Mál til kynningar:

 

9.   Kúalaug

KÞR fór yfir málin vegna framkvæmda vegna Kúalaugar.

Stefnt að því að ljúka verkefninu í ágúst.

 

Ekki fleira gert. Fundi slitið kl. 18:21.

Fundargerð er undirrituð rafrænt.