Fara í efni

Sveitarstjórn

537. fundur 25. júní 2026 kl. 17:00 - 18:20 Sjórnsýsluhúsið Maríutröð 5a
Nefndarmenn
  • Árný Huld Haraldsdóttir (ÁHH) oddviti
  • Embla Dögg B. Jóhannsdóttir (EDBJ) varaoddviti
  • Hrefna Jónsdóttir (HJ) aðalmaður
  • Indiana Svala Ólafsdóttir (ISÓ) aðalmaður
  • Kjartan Þór Ragnarsson (KÞR) aðalmaður og starfandi sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Árný Huld Haraldsddóttir Oddviti

Fundargerð

537. fundur sveitarstjórnar Reykhólahrepps - aukafundur

25. júní 2026, kl.17:00 Fundarstaður: Stjórnsýsluhúsið Maríutröð 5a, Reykhólum.

Mætt eru:

Árný Huld Haraldsdóttir (ÁHH), oddviti Embla Dögg B. Jóhannsdóttir (EDBJ), varaoddviti Hrefna Jónsdóttir (HJ), aðalmaður Indiana Svala Ólafsdóttir (ISÓ), aðalmaður Kjartan Þór Ragnarsson (KÞR), aðalmaður og starfandi sveitarstjóri.

ÁHH ritaði fundargerð.

Oddviti bauð sveitarstjórn velkomna á fundinn. Athugaði hvort væru athugasemdir við fundarboð og fundargögn. Ekki voru gerðar athugasemdir. Kannað með önnur mál á fundinn. Engin mál bárust.

Dagskrá:

Fundargerðir

 1.   Fundargerð 535. Fundar sveitarstjórnar Reykhólahrepps Farið yfir fundargerðina - hefur verið samþykkt rafrænt.

 2.   Fundargerð 536. Fundar sveitarstjórnar Reykhólahrepps Farið yfir fundargerðina - hefur verið samþykkt rafrænt.

Mál til afgreiðslu

 3.   Ársreikningur Reykhólahrepps 2025

Lagður er fram ársreikningur sveitarfélagsins, til seinni umræðu, fyrir árið 2025. Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu 1.156 millj. kr. samkvæmt ársreikningi fyrir A og B hluta, en þar af námu rekstrartekjur A hluta 830 millj. Kr. Álagningarhlutfall útsvars var 14,97% sem er lögbundið hámark. Álagningarhlutfall fasteignaskatts í A-flokki var 0,550% en lögbundið hámark þess er 0,625%. Í B-flokki nam álagningarhlutfallið 1,32% sem er lögbundið hlutfall þess og í Cflokki nam álagningarhlutfallið 1,65% en lögbundið hámark þess er 1,32% auk heimildar sveitarstjórnar til að hækka.

Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 21 millj. kr. og rekstrarniðurstaða A hluta var neikvæð um 3 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok nam 824 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi fyrir A og B hluta, en eigið fé A hluta nam 653 millj. kr.

Sveitarstjórn leggur samhljóða fram eftirfarandi bókun:

Samkvæmt sveitarstjórnarlögum getur sveitarstjórn ein tekið ákvarðanir um málefni er varða verulega fjármál sveitarfélagsins. Yfirmönnum sem starfa fyrir sveitarfélagið ber að fylgja fjárhagsáætlun. Þeim ber að óska eftir að gerður sé viðauki, sé þörf og tilefni til að gera breytingar á samþykktri fjárhagsáætlun. Taka skal alvarlega þær athugasemdir sem eru taldar fram í skýrslu til stjórnenda Reykhólahrepps og vinna að þeim tillögum til úrbóta sem þar fram koma. Sveitarstjórn þarf að gæta þess að ársreikningi sé skilað á réttum tíma og skýra verkferla sveitarfélagsins vegna þessa. Verkbókhald verður að halda vegna verkefna sem skarast milli deilda, svo kostnaðarhlutdeild milli deilda sé rétt reiknuð. Fara þarf í gagngera skráningu á lausafjármunum sveitarfélagsins og sjá til þess að við kaup á búnaði verði hann skráður um leið og reikningar vegna þeirra eru samþykktir. Setja þarf stefnu sveitarfélagsins um markmið og öryggiskröfur til reksturs upplýsingakerfa.

Ársreikningur Reykhólahrepps fyrir árið 2025 er samþykktur samhljóða og undirritaður. Endurskoðunarskýrsla er samþykkt samhljóða og undirrituð.

4.   Skipan í starfshóp vegna skipulags og viðbragða innan sveitarfélags vegna sólmyrkva 12. ágúst 2026

Lagt til að skipa starfshóp vegna Sólmyrkva. Í starfshópnum verði Kjartan Þór Ragnarsson starfandi sveitarstjóri, Embla Dögg B. Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Reykhóladaga, Marie-Susann Zeise lýðheilsufulltrúi, Guðmundur I. Arnarsson umsjónarmaður fasteigna og Kristófer Hans Abbey umsjónarmaður íþróttamannvirkja. Formaður starfshópsins verði Kjartan Þór Ragnarsson. Samþykkt samhljóða.

5.   Framtíðarsýn sveitarstjórnar Reykhólahrepps um nýtingu jarðhita á Reykhólum frá 2023 lögð fram til staðfestingar.

Farið yfir framtíðarsýn sveitarstjórnar um nýtingu jarðhita á Reykhólum, sem var samþykkt í sveitarstjórn 2023. Sveitarstjórn staðfestir framtíðarsýnina og að unnið verði að framgangi hennar á kjörtímabilinu. Samþykkt samhljóða.

Mál til kynningar

 6.   Fyrirhuguð lántaka fyrri sveitarstjórnar og endurskoðun fjárhagsáætlunar 2026

Rætt um lántöku sem átti að fara í á árinu og fjárfestingaáætlun fyrir árið 2026. Lagt til að sveitarstjórn taki fjárhagsáætlun og fjárfestingaáætlun fyrir árið til endurskoðunar eftir sumarið. Samþykkt samhljóða.

Vegna lántöku - lagt til að þörfin vegna lántöku verði skoðuð. Vísað til næsta fundar.

7.   Nýsamþykkt lög um breytingar á verndar- og orkunýtingaráætlunar og áhrif á uppbyggingu vindorkuvera

KÞR kynnti nýsamþykkt lög fyrir sveitarstjórn.

Ekki annað gert, fundi slitið kl. 18:20 Fundargerð undirrituð rafrænt.