Fara í efni

Sveitarstjórn

536. fundur 18. júní 2026 kl. 17:00 - 19:25 Sjórnsýsluhúsið Maríutröð 5a
Nefndarmenn
  • Árný Huld Haraldsdóttir (ÁHH) oddviti
  • Embla Dögg Bachmann Jóhannsdóttir (EDBJ) varaoddviti
  • Kjartan Þór Ragnarsson (KÞR) aðalmaður og starfandi sveitarstjóri
  • Indiana Svala Ólafsdóttir (ISÓ) aðalmaður
  • Hrefna Jónsdóttir (HJ) aðalmaður
Starfsmenn
  • Jóhann Þórðarson endurskoðandi
Fundargerð ritaði: Árný Huld Haraldsddóttir Oddviti

536. fundur sveitarstjórnar Reykhólahrepps - aukafundur, 18. júní 2026, kl.17:00

Fundarstaður: Stjórnsýsluhúsið Maríutröð 5a, Reykhólum.

Mætt eru:
Árný Huld Haraldsdóttir (ÁHH), oddviti
Embla Dögg Bachmann Jóhannsdóttir (EDBJ), varaoddviti
Kjartan Þór Ragnarsson (KÞR), aðalmaður og starfandi sveitarstjóri
Indiana Svala Ólafsdóttir (ISÓ), aðalmaður
Hrefna Jónsdóttir (HJ), aðalmaður

Jóhann Þórðarson, endurskoðandi, kom inn á fundinn sem gestur undir liðnum “Ársreikningur Reykhólahrepps 2025”

ÁHH ritaði fundargerð

Oddviti bauð sveitarstjórn velkomna á fundinn. Athugaði hvort væru athugasemdir við fundarboð og fundargögn. Kannað með önnur mál á fundinn. KÞR óskaði eftir að taka 5 önnur mál fyrir á fundinn. Samþykkt að bæta þeim öllum við undir liðnum “önnur mál”.

Dagskrá:

Mál til afgreiðslu:

1.   Ársreikningur Reykhólahrepps 2025
Lagður fram ársreikningur Reykhólahrepps fyrir árið 2025 ásamt endurskoðunarskýrslu.
Jóhann Þórðarson endurskoðandi fór yfir endurskoðunarskýrslu.

Ársreikningi vísað til síðari umræðu.

 

2.   Ráðning skólastjóra
4 umsóknir bárust. 2 umsóknir uppfylltu þau skilyrði sem voru sett fram í auglýsingu um starf skólastjóra. Eftir umsóknarferlið og viðtöl við umsækjendur er lagt til að Ástu Sjöfn Kristjánsdóttur verði boðið starf skólastjóra Reykhólaskóla.
Samþykkt samhljóða.

Starfandi sveitarstjóra og oddvita falið að ganga frá ráðningu við nýjan skólastjóra.
Samþykkt samhljóða.

Önnur mál (ef einhver):

3.   Hjúkrunarforstjóri Barmahlíð
KÞR fór yfir stöðu í ráðningarferli hjúkrunarforstjóra Barmahlíðar og næstu skref.

4.   Flatey í fjarveru ferjunnar Baldurs
Farið yfir það viðbragð sem sveitarstjóri hefur unnið í samstarfi við hagaðila í málefnum Flateyjar í fjarveru ferjunnar Baldurs og þau samskipti sem sveitarstjóri hefur átt við ráðherra, þingmenn og sveitarstjóra Vesturbyggðar og sveitarfélagsins Stykkishólms í þeim málum. Núverandi staða á vatnsveitu og olíuöflun Flateyjar kynnt. Farið yfir málefni sorphirðu frá Flatey sem er á ábyrgð sveitarfélagsins í ljósi þess að flutningsleiðir sorphirðu frá Flatey voru rofnar með tilfærslu Baldurs. Sveitarstjóri kynnir áætlun og viðbragð til að sinna sophirðu Flateyjar. Allur aukakostnaður sem leggst á sveitarfélagið vegna fjarveru Baldurs verður sóttur til stjórnvalda eftir atvikum.

 

5.   Eyjaþing II 2026 í Flatey í ágúst
Lagt til að Kjartan Þór Ragnarsson fari inn í stýrihóp verkefnisins og Árný Huld Haraldsdóttir verði til vara.
Samþykkt samhljóða.

 

6.   Vatnsveita Reykhóla og áætlun um viðbrögð gegn yfirvofandi þurrkum
Hugmyndir að minniháttar framkvæmdum með takmörkunum, til aukinnar vatnsöflunar vatnsveitu og tryggja heilnæmi neysluvatns, kynntar og lagðar fram. Sveitarstjóri óskar eftir heimild til að leita eftir verðhugmyndum um kostnað við kynntar framkvæmdir sem hægt væri að ljúka á fyrri hluta júlímánaðar.

ÁHH leggur til að KÞR fái heimild til að leita eftir verðhugmyndum við framkvæmdina. Sú hugmynd verði tekin fyrir á næsta sveitarstjórnarfundi og þá verði tekin ákvörðun um framkvæmdina með tilliti til breytinga á fjárhagsáætlun/framkvæmdaáætlun.
Samþykkt samhljóða.

 

7.   Tímabundin yfirfærsla verkefna
Lagt til að ábyrgð og framfylgni þeirra verkefna sem hafa heyrt undir sviðstjóra uppbygginga og framkvæmda hjá Reykhólahreppi verði tímabundið færð yfir til ábyrgðar og framkvæmdar hjá sveitarstjóra vegna tímabundinnar fjarveru starfsmanns. Sveitarstjóra verði heimilt að úthluta tilteknum verkefnum, ábyrgð og ákvarðanatöku til umsjónarmanns fasteigna með þeim takmörkunum sem af leiðir af skuldbindingum og fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.

 

Ekki annað gert og fundi slitið kl. 19:25
Fundargerð undirrituð með rafrænum hætti