Fara í efni

Sveitarstjórn

535. fundur 05. júní 2026 kl. 13:00 - 16:15 Sjórnsýsluhúsið Maríutröð 5a
Nefndarmenn
  • Árný Huld Haraldsdóttir aðalmaður (ÁHH)
  • Embla Dögg Bachmann Jóhannsdóttir aðalmaður (EDBJ)
  • Hrefna Jónsdóttir aðalmaður (HJ)
  • Indiana Svala Ólafsdóttir aðalmaður (ISÓ)
  • Kjartan Þór Ragnarsson aðalmaður (KÞR)
Fundargerð ritaði: Árný Huld Haraldsddóttir Oddviti

535. fundur sveitarstjórnar Reykhólahrepps
föstudaginn 5. júní 2026, kl.13:00

Fundarstaður: Stjórnsýsluhúsið Maríutröð 5a, Reykhólum.

Mætt:
Árný Huld Haraldsdóttir, aðalmaður (ÁHH)
Embla Dögg Bachmann Jóhannsdóttir, aðalmaður (EDBJ)
Hrefna Jónsdóttir, aðalmaður (HJ)
Indiana Svala Ólafsdóttir, aðalmaður (ISÓ)
Kjartan Þór Ragnarsson, aðalmaður (KÞR)


ÁHH ritaði fundargerð - fundargerð er rituð á tölvu og er 11 blaðsíður.

ÁHH bauð öll velkomin á fyrsta fund nýrrar sveitarstjórnar og óskaði þeim til hamingju með kjörið. ÁHH kannaði hvort væru athugasemdir við fundarboð eða fundargögn. Engar athugasemdir voru gerðar. ÁHH athugaði hvort væru önnur mál á dagskrá. Fjögur mál bárust og samþykkt að taka málin “Samþykkt um kjör fulltrúa í stjórnum, ráðum og nefndum Reykhólahrepps”, “Erindisbréf Velferðarnefndar”, “Ályktun vegna Baldurs” og “Gjaldskrá Tjaldsvæðis við Grettislaug” undir “Málum til afgreiðslu”.
ÁHH lagði til breytingu á röðun á málum til afgreiðslu um að mál 4 verði tekið áður en mál 3 er tekið fyrir. Breytingin samþykkt samhljóða.

 

Dagskrá:

Mál til afgreiðslu

1.   2606010 - Kosning oddvita
KÞR leggur til að Árný Huld Haraldsdóttir verði oddviti.
Tillagan er samþykkt samhljóða.

 

2.   2606011 - Kosning varaoddvita
KÞR leggur til að Embla Dögg Bachmann Jóhannsdóttir verði varaoddviti.
Tillagan er samþykkt samhljóða.

 

3.   2606012 - Kosning í nefndir, stjórnir og ráð
Tillaga R-lista að aðal- og varamönnum í fastanefndum er eftirfarandi:
Fastanefndir,

Mennta og menningarmálanefnd:
Aðalmenn;
Embla Dögg B. Jóhannsdóttir
Kjartan Þór Ragnarsson
Ólafía Sigurvinsdóttir
Varamenn;
Agnieszka Anna M. Kowalczyk
Matthías Óli Gústafsson
Bjarki Stefán Jónsson

Skipulags húsnæðis og hafnarnefnd:
Aðalmenn;
Árný Huld Haraldsdóttir
Björn Samúelsson
Vésteinn Tryggvason
Varamenn;
Matthías Óli Gústafsson
Embla Dögg B. Jóhannsdóttir
Eiríkur Kristjánsson

Umhverfis og náttúruverndarnefnd:
Aðalmenn;
Karl Kristjánsson
Kjartan Þór Ragnarsson
Bettina Seifert
Varamenn;
Indiana Svala Ólafsdóttir
Sigríður Ísleifsdóttir
Aron Viðar Kristjánsson

Velferðarnefnd:
Aðalmaður;
Árný Huld Haraldsdóttir
Varamaður:
Sigríður Ísleifsdóttir

Almannavarnarnefnd:
Aðalmaður;
Sveitarstjóri
Varamaður;
Tindur Guðmundsson

Kjörstjórn:
Aðalmenn;
Sandra Rún Björnsdóttir
Sveinn Ragnarsson
Kolfinna Ingólfsdóttir
Varamenn;
Ingvar Samúelsson
Svanborg Guðbjörnsdóttir
Rebekka Eiríksdóttir

Samþykkt með fjórum atkvæðum. HJ sat hjá.

HJ lagði fram eftirfarandi bókun:

,,Á sama tíma og ég óska nefndarmönnum til hamingju með kjör þeirra vil ég benda á mikilvægi þess að standa með og styðja við starfsfólk sveitarfélagsins. Það er mikilvægt að nefndarmenn átti sig á stöðu sinni og grafi ekki undan starfsemi sveitarfélagsins. Að vera nefndarmaður gefur einstakt tækifæri til að hafa áhrif á starfsemi einstakra stofnana og því sérstaklega mikilvægt að fara réttar boðleiðir. Sé einhverri þjónustu ábótavant má segja að það sé skylda nefndarmanna að bregðast við því á vettvangi nefndanna þ.e.a.s. á löglega boðuðum fundi nefndanna.. Mikilvægt er að greina fyrst hvort vandamálið sé kerfislægt eða málefni sem tengist einstaka starfsmönnum og fara svo réttar boðleiðir til að takast á við vandann. Starfsmannamál eru alltaf á höndum yfirmanna en ekki nefndarmanna.

Við erum öll með marga hatta en sveitarstjórnarhatturinn fer aldrei alveg af og því er mikilvægt að huga að því hvaða viðhorf gagnvart stofnunum eða starfsfólki við sýnum íbúum.

Ég hvet fulltrúa til að ganga fram með hógværð og tryggja starfsfólki Reykhólahrepps þann stuðning og bakland sem það á svo sannarlega skilið.

Hrefna Jónsdóttir

Fulltrúi S-Lista Samfylkingar og óháðra í Reykhólahreppi.”

 

Aðrar nefndir og stjórnir.

Tillaga R-lista í aðrar nefndir og stjórnir.

Stjórn hjúkrunarheimilisins Barmahlíðar:

Aðalmenn;

Árný Huld Haraldsdóttir

Indiana Svala Ólafsdóttir

Kjartan Þór Ragnarsson

Varamenn;
Hrefna Jónsdóttir
Embla Dögg B. Jóhannsdóttir
Björn Samúelsson

Dreifbýlisnefnd:

Aðalmenn;

Vilberg Þráinsson

Rebekka Eiríksdóttir
Aron Viðar Kristjánsson
Guðlaug Guðmunda Ingibjörg Magnfríðar Bergsveinsdóttir
Kolbeinn Óskar Bjarnason

Varamenn;
Kristján Steinn Guðmundsson
Sigríður Ísleifsdóttir
Indiana Svala Ólafsdóttir
Baldvin Reyr Smárason
Karl Kristjánsson

 

Fulltrúi á Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga:
Aðalmaður;

Kjartan Þór Ragnarsson

Varamaður;

Árný Huld Haraldsdóttir

 

Stjórn Báta- og hlunnindasýningin:

Aðalmaður;

Rebekka Eiríksdóttir

Varamaður:

Árný Huld Haraldsdóttir

Þörungamiðstöð:

Aðalmaður;

Kjartan Þór Ragnarsson

Varamaður;

Karl Kristjánsson

Svæðisskipulagsnefnd Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar:

Aðalmenn;

Árný Huld Haraldsdóttir
Kjartan Þór Ragnarsson

Varamenn;
Embla Dögg B. Jóhannsdóttir
Matthías Óli Gústafsson

 

Svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða:

Aðalmenn;

Árný Huld Haraldsdóttir
Kjartan Þór Ragnarsson

Varamenn;
Embla Dögg B. Jóhannsdóttir
Matthías Óli Gústafsson


Fulltrúaráð Vestfjarðastofu:

Aðalmaður;

Embla Dögg B. Jóhannsdóttir

Varamaður;

Kjartan Þór Ragnarsson

Öldungaráð:

Aðalmaður;

Indiana Svala Ólafsdóttir

Varamaður;

Karl Kristjánsson

Fulltrúi Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands:

Aðalmaður;

Sveitarstjóri

Varamaður;
Árný Huld Haraldsdóttir

Stjórn Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps:

Aðalmaður;

Árný Huld Haraldsdóttir

Varamaður;

Kjartan Þór Ragnarsson

Stjórn Brunavarna Dala, Reykhóla og Stranda:

Aðalmaður;

Sveitarstjóri

Varamaður;

Árný Huld Haraldsdóttir

Kjörnefnd Fjórðungssamband Vestfirðinga:

Aðalmaður;

Árný Huld Haraldsdóttir


Fulltrúaráð Velferðarþjónustu Vestfjarða:

Aðalmaður;

Hrefna Jónsdóttir
Varamaður;
Árný Huld Haraldsdóttir


Framkvæmdaráð Velferðarþjónustu Vestfjarða:

Aðalmaður;

Hrefna Jónsdóttir
Varamaður;
Árný Huld Haraldsdóttir

Samþykkt samhljóða.

 

4.   2606013 - Samþykkt um stjórn Reykhólahrepps, fyrri umræða

Lögð er fram samþykkt um stjórn Reykhólahrepps.

Sveitastjórn felur oddvita að gera breytingar á samþykkt um stjórn Reykhólahrepps miðað við umræður á fundinum.

Samþykkt um stjórn Reykhólahrepps vísað til síðari umræðu. Samþykkt samhljóða.

 

5.   2606014 - Siðareglur kjörinna fulltrúa

ÁHH fór yfir siðareglur kjörinna fulltrúa.
Siðareglurnar eru samþykktar af sveitarstjórn
Siðareglurnar verða undirritaðar rafrænt af kjörnum fulltrúum sveitarstjórnar, bæði aðal- og varamönnum, og þeim sem sitja í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum sveitarfélagsins.

 

6.   2606015 - Trúnaðaryfirlýsing kjörinna fulltrúa

ÁHH fór yfir trúnaðaryfirlýsingu kjörinna fulltrúa.
Trúnaðaryfirlýsing verður undirrituð rafrænt af kjörnum fulltrúum sveitarstjórnar, bæði aðal- og varamönnum, og þeim sem sitja í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum sveitarfélagsins.

 

 

7.   2606016 - Starf sveitarstjóra

KÞR víkur af fundi

ÁHH leggur til að Kjartan Þór Ragnarsson verði ráðinn tímabundið í starf sveitarstjóra í 3 mánuði frá 1. júní, á meðan gengið er frá ráðningu sveitarstjóra. Honum verði greidd laun sveitarstjóra (þingfarakaup) á þessu tímabili að frátöldum akstursstyrk. Kjartani verði veitt prókúra hjá sveitarfélaginu til að sinna starfinu. Komi til ráðninga nýs framkvæmdarstjóra á tímabilinu heldur samningurinn gildi.

Tillagan er samþykkt með 3 atkvæði gegn 1.

 

HJ lagði fram eftirfarandi bókun:
“Ég tel það ansi sérstakt að ekki hafi verið samið við fráfarandi sveitrastjóra um áframhaldandi störf eins og heimild er fyrir en þannig væri hægt að spara töluverða fjármuni og ástæða er til að sú ákvörðun sé rökstudd. Þessi leið sem er nú farin felur í sér mikinn kostnað og þá hefði verið eðlilegra að fá viðkomandi til að leysa af út júní og leggja allt kapp á að ráða nýjan sveitarstjóra fyrir júlílok. Ég greiði því atkvæði gegn þessari tillögu.”

ÁHH falið að semja við Kjartan vegna þessa.

KÞR kom aftur inn á fund

ÁHH leggur til að starf sveitarstjóra verði auglýst.
Samþykkt samhljóða.
ÁHH falið að ganga frá auglýsingu um starf sveitarstjóra í næstu viku.

 

8.   2606017 - 71. Fjórðungsþing Vestfirðinga á kosningaári - 24. júní

Allir í sveitarstjórn munu sitja fundinn fyrir hönd Reykhólahrepps.

 

9.   Samþykkt um kjör fulltrúa í stjórnum, ráðum og nefndum Reykhólahrepps

HJ leggur til að taka málið fyrir við fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2027.
Samþykkt samhljóða.

EDBJ leggur til að fulltrúar í sveitarstjórn fái styrk að upphæð 40.000.- kr. Til tölvukaupa. Sú upphæð er á áætlun fyrir árið.

Samþykkt samhljóða.

KÞR falið að undirbúa tölvupóstföng fyrir kjörna fulltrúa og aðstoða við uppsetningu.

 

10.   Erindisbréf Velferðarnefndar

Erindisbréf Velferðarnefndar - samþykkt í Velferðarnefnd 22.4.26
Samþykkt samhljóða

 

11.    Ályktun vegna Baldurs
Lögð er fram ályktun vegna ákvörðunar innviðaráðuneytis um að færa Breiðafjarðarferjuna Baldur úr siglingum á Breiðafirði til að styðja við aukna fólksflutninga til Vestmannaeyja:

“Sveitarfélagið Stykkishólmur, Vesturbyggð og Reykhólahreppur harma og mótmæla harðlega þeirri ákvörðun innviðaráðuneytisins og því fordæmi sem hún kann að skapa við að taka Breiðafjarðarferjuna Baldur úr siglingum á Breiðafirði til að sinna auknu álagi við farþegaflutninga til Vestmannaeyja frá og með 8. júní næstkomandi. Nær enginn fyrirvari er gefinn áður en þessi ákvörðun kemur til framkvæmda og lítið sem ekkert samráð var haft við sveitarfélög og aðra hagaðila við Breiðafjörð við töku hennar, þar sem áhrif hennar á flutninga og þjónustu við Breiðafjörð voru ekki metin né brugðist við þeim af neinni alvöru.

Sveitarfélög við Breiðafjörð hafa haft skilning á því að Breiðafjarðarferjan Baldur sé varaskip fyrir Herjólf þegar hann er óstarfhæfur eða þarf að fara í slipp, líkt og samningar kveða á um. Sveitarfélögin við Breiðafjörð hafa ávallt sýnt því fullan skilning og samstöðu með íbúum Vestmannaeyja þegar slíkar aðstæður koma upp og munu gera áfram. Sú staða er hins vegar ekki uppi í þessu tilviki. Fyrstu dagana sem Baldur verður tekinn úr siglingum á Breiðafirði mun hann sigla samhliða Herjólfi til að mæta aukinni eftirspurn eftir farþega- og ökutækjaflutningum til Vestmannaeyja, meðal annars vegna íþróttaviðburða, samkvæmt upplýsingum sem fram hafa komið af hálfu innviðaráðuneytisins. Að mati sveitarfélaganna fellur slík ráðstöfun ekki að þeim forsendum sem legið hafa til grundvallar notkun Baldurs sem varaskips fyrir Herjólf.

Breiðafjarðarferjan Baldur gegnir lykilhlutverki í samgöngum milli Vestfjarða og Vesturlands og er lífæð Flateyjar. Ferjan þjónustar byggðir við Breiðafjörð og með henni fara mikilvægir flutningar á vörum, aðföngum og afurðum milli Vestfjarða og Vesturlands. Ferðaþjónustuaðilar á Vestfjörðum, Snæfellsnesi og Flatey treysta á öruggar og reglulegar siglingar yfir Breiðafjörð og áhrifa þessarar ákvörðunar mun gæta verulega nú í upphafi ferðamannatímabils með fyrirséðu tekjutapi. Flatey reiðir sig alfarið á Baldur þegar kemur að flutningum og samgöngum, enda fara allir flutningar á neysluvatni, vörum og sorpi með ferjunni. Grásleppuvertíð stendur nú yfir og er afla landað í Flatey, sem svo er fluttur með Baldri til Stykkishólms til vinnslu. Þá hefur Orkubú Vestfjarða undirbúið umfangsmiklar framkvæmdir í Flatey nú í júní við uppsetningu rafstöðvar og rafhlöðuvirkis sem ætlað er að draga verulega úr olíunotkun í eyjunni og styðja þannig við mikilvægt verkefni á sviði orkuskipta. Ljóst er að þær framkvæmdir munu óhjákvæmilega tefjast af þessum sökum. Farþegaskipið Særún, sem ráðuneytið áformar að muni sinna siglingum til Flateyjar á meðan Baldur siglir til Vestmanneyja, er hvorki hönnuð né hefur getu til stórflutninga á vatni, vörum, afla og sorpgámum til og frá Flatey og getur því ekki komið í stað þeirrar þjónustu sem Baldur veitir samfélaginu í Flatey.

Afleiðingar þess að Baldur er færður úr siglingum um Breiðafjörð eru því verulegar og ljóst að ekki liggja fyrir fullnægjandi og raunhæfar viðbragðsáætlanir til þess að tryggja neysluvatnsöryggi Flateyjar, vöruflutninga og samgöngur yfir Breiðafjörð meðan á þessu ástandi stendur. Fyrir lá um nokkurt skeið að Herjólfur þyrfti að fara í vélaviðgerð, en þrátt fyrir það var ekkert formlegt samráð haft við sveitarfélög og aðra hagaðila við Breiðafjörð um hvernig mæta skyldi áhrifum þessarar ákvörðunar né lagðar fram raunhæfar lausnir til að tryggja viðunandi þjónustustig á svæðinu á meðan.

Þá vekur athygli að frumkvæði til að reyna að tryggja neysluvatnsöryggi í Flatey meðan á þessu stendur hefur komið frá Flateyingum sjálfum en ekki frá þeim stjórnvöldum sem ákvörðunina tóku. Sú ákvörðun að taka Baldur úr siglingum um Breiðafjörð í um heila viku til að auka farþega- og ökutækjaflutninga til Vestmanneyja tekur að mati sveitarfélaganna ekki nægilegt tillit til þeirra hagsmuna sem í húfi eru fyrir íbúa, atvinnulíf og byggðir við Breiðafjörð og á Vestfjörðum og ber vott um alvarlegt skeytingarleysi gagnvart þeim samfélögum sem reitt hafa sig á þjónustu ferjunnar og um árabil unnið að eflingu samgangna og byggðafestu á svæðinu. Betur hefði farið á því að nýta þann tíma sem fyrir hendi var til að undirbúa raunhæfar viðbragðsáætlanir í samráði við sveitarfélög og aðra hagaðila á svæðinu.

Þegar Baldur er færður til siglinga til Vestmannaeyja eru áhrifin á samfélögin við Breiðafjörð augljóslega veruleg og réttlætast aðeins af þeirri nauðsyn að tryggja samgöngur til Vestmannaeyja þegar Herjólfur er í slipp eða óstarfhæfur. Öðru máli gegnir þegar ferjan er nýtt til að mæta tímabundnu auknu álagi vegna viðburða eða annarrar eftirspurnar. Slík ráðstöfun hefur víðtæk áhrif á samgöngur, þjónustu og atvinnulíf við Breiðafjörð og fellur að mati sveitarfélaganna ekki að þeim forsendum sem legið hafa til grundvallar á notkun Baldurs sem varaskips fyrir Herjólf.

Sveitarfélögin ítreka því að mikilvægt er að innviðaráðuneytið og Vegagerðin staðfesti að ekki verði vikið frá þeim samningsforsendum sem legið hafa til grundvallar notkun Baldurs sem varaskips fyrir Herjólf, nema þegar Herjólfur er í slipp eða óstarfhæfur. Jafnframt telja sveitarfélögin mikilvægt að þær forsendur og þau mörk sem mótast hafa í samskiptum ríkisins og sveitarfélaganna við Breiðafjörð um hlutverk Baldurs verði virt framvegis og að öryggi, þjónusta og samgöngur samfélaganna við Breiðafjörð verði tryggð þegar nauðsyn krefur að færa Baldur úr siglingum á svæðinu.”


Ályktunin samþykkt samhljóða.

 

12.   Gjaldskrá Tjaldsvæðis við Grettislaug

Gjaldskrá vegna Tjaldsvæðis við Grettislaug lögð fyrir.
Samþykkt samhljóða. KÞR falið að koma gjaldskránni á vef sveitarfélagsins.

 

Mál til kynningar

 

13.   Fundargerð 998. fundar Sambands Íslenskra sveitarfélaga

Fundargerðin kynnt.

 

14.  Sveitarfélagaskólinn - Sambands Íslenskra sveitarfélaga

ÁHH segir kjörnum fulltrúum frá sveitarfélagaskólanum og hvetur fólk til að skoða það.

15.   Aðalfundur Þörungaverksmiðjunnar - 2. júní

ÁHH, EDBJ og KÞR fóru á aðalfundinn fyrir hönd Reykhólahrepps.

 

16.   Orkuþing Vestfjarða - 3. Júní

Kynnt.

 

17.   Málstofa – orkuskipti í höfnum, landtengingar og rafvæðing fiskiskipa - 4. júní

Kynnt.

 

18.   Menntaþing Vestfjarða - 8. júní

Kynnt.

 

Ekki fleira gert, fundi slitið kl. 16:15
Fundargerð undirrituð rafrænt