Fara í efni

Sveitarstjórn

534. fundur 13. maí 2026 kl. 16:00 - 18:00 Sjórnsýsluhúsið Maríutröð 5a
Nefndarmenn
  • Jóhanna Ösp Einarsdóttir oddviti (JÖE)
  • Hrefna Jónsdóttir varaoddviti (HJ)
  • Margrét Dögg Sigurbjörnsdóttir aðalmaður (MDS)
  • Árný Huld Haraldsdóttir aðalmaður (ÁHH)
  • Vilberg Þráinsson aðalmaður (VÞ)
Starfsmenn
  • Ólafur Þór Ólafsson sveitarstjóri
  • Hrafnkell Guðnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson sveitarstjóri

534. fundur sveitarstjórnar Reykhólahrepps

Miðvikudaginn 13. maí 2026, kl. 16:00

Fundarstaður: Stjórnsýsluhúsið, Maríutröð 5a, Reykhólum.

 

Mætt eru eru:

Jóhanna Ösp Einarsdóttir, oddviti (JÖE)

Hrefna Jónsdóttir, varaoddviti (HJ)

Margrét Dögg Sigurbjörnsdóttir, aðalmaður (MDS)

Árný Huld Haraldsdóttir, aðalmaður (ÁHH)

Vilberg Þráinsson, aðalmaður (VÞ)

 

Einnig sat Ólafur Þór Ólafsson, sveitarstjóri, (ÓÞÓ) fundinn og ritaði fundargerð.

 

Oddviti bauð alla velkomna á fundinn og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboð og fundargögn, fyrirspurn varðandi ársreikning var gerð og svaraði sveitarstjóri fyrirspurninni.

 

Þá spurði oddviti eftir öðrum málum á dagskrá, óskað var eftir því að fundargerð dreifbýlisnefndar sem fór fram þriðjudaginn 5. maí verði tekin á dagskrá til staðfestingar. Varð það samþykkt. Verður hún 5. mál á dagskrá fundarins og færast önnur mál aftar sem því nemur.

 

Samþykkt var að taka mál 18 fyrir í upphafi fundar og mætti Hrafnkell Guðnason á fundinn undir þeim lið.

 

Dagskrá:

1.   533. fundur sveitarstjórnar Reykhólahrepps 14.04.2026.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

Fundargerðir til staðfestingar:

2.   fundur skipulags-, húsnæðis- og hafnarnefndar Reykhólahrepps, 06.05.2026

Varðandi 15. lið fundargerðarinnar, Aðalskipulag 2022-2034 breyting Króksfjarðarnes, staðfesti HMS breytinguna 11. maí. Sveitarstjórn fagnar þessum áfanga og þakkar öllum þeim sem komið hafa að verkefninu.

Fundargerðin er staðfest samhljóða að öðru leiti.

 

3.   24 . fundur mennta- og menningarmálanefndar Reykhólahrepps, 06.05.2026

Varðandi 4. lið fundargerðarinnar er varðar sumarnámskeið samþykkir sveitarstjórn að gjaldskrá taki mið af öðrum gjaldskrárhækkunum sveitarfélagsins fyrir árið 2026. Einnig samþykkir sveitarstjórn að foreldrar greiði kostnað af fæði barna á sumarnámskeiðum.

Fundargerðin er staðfest samhljóða.

 

4.   fundur stjórnar Hjúkrunarheimilisins Barmahlíðar, 05.05.2026

Fundargerðin er staðfest samhljóða.

 

5.   Fundur Dreifbýlisnefndar 5. maí

Nefndin leggur til að leitardagar í Reykhólahreppi 2026 verði eftirfarandi:

Svæði 1-7; Kleifar, Brekkuá að Króksfjarðarnesi, Króksfjarðarnes, frá Bakkadal að

Naðurdalsá og Borgarland verði leitað helgina 19.-20. september.

Svæði 8; frá Naðurdalsá að Hjallaá verði leitað helgina 12.-13. september.

Svæði 9; Reykjanes verði leitað helgina 12.-14. september.

Svæði 10; Frá Hjallaá út Hallsteinsnes að Djúpadal verði leitað 12.-14. september

Svæði 11-14; frá Djúpadal að Skálanesi verði leitað 12.-14. september.

Svæði 15-16; Kálfadalur, Eyri, Klettur, Seljaland og Fjarðarhorn verði leitað helgina 5.-6. September.

Svæði 17; Þorskafjarðarheiði og norðan Reiphólsfjalla verði leitað frá og með 5.-6.

september og eftir því sem veður leyfir.

Svæði 18; Múlasveit verði leituð 2.-5. sept.

Seinni leit allra svæða verði helgina 26. sept.-27. sept

Sveitarstjórn samþykkir tillögu nefndarinnar og felur sveitarstjóra að auglýsa leitardaga á heimasíðu sveitarfélagsins.

Fundargerðin er staðfest samhljóða.

 

Mál til afgreiðslu:

6.   2605022 Ársreikningur Reykhólahrepps 2025

Ársreikningur Reykhólahrepps 2025 lagður fram til fyrri umræðu.

Sveitarstjóri leggur til að afgreiðslu ársreiknings verði frestað þar sem ekki hefur verið lokið að fullu við uppsetningu hans.

Samþykkt samhljóða.

 

7.   2602025 Svæðisskipulag Vestfjarða

Erindi frá Svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða dags. 05.05.2026, ásamt fylgigögnum, þar sem óskað eftir samþykki sveitarstjórnar á kynningartillögu Svæðisskipulags Vestfjarða 2025-2050, sbr. 2. mgr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Sveitarstjórn samþykkir tillögu að Svæðisskipulagi Vestfjarða 2025-2050 með vísan í 2. mgr. 25. gr. Skipulagslaga.

Samþykkt samhljóða

 

8.   2605008 Áfangastaðaáæltun Vestfjarða

Erindi frá Markaðsstofu Vestfjarða/Vestfjarðastofu ses. dags. 28.04.2026 þar sem endurskoðuð Áfangastaðaáæltun Vestfjarða er send sveitarstjórnum til samþykktar.

Sveitarstjórn samþykkir Áfangastaðaáætlun Vestfjarða.

Samþykkt samhljóða.

 

9.   2604040 Stofnun lóðar að Skálmarnesmúla

Tillaga skipulags-, húsnæðis- og hafnarnefndar til sveitarstjórnar um stofnun lóðarinnar Hádegisklettar að Skálmarnesmúla. Mál frá 32. fundi skipulags-, húsnæðis- og hafnarnefndar Reykhólahrepps sem fór fram 06.05.2026.

Sveitarstjórn samþykkir stofnun lóðarinnar að tillögu nefndarinnar.

Samþykkt samhljóða.

 

10.   2601002 Stofnun lóðar að Hafrafelli, Brekkukot 2

Tillaga skipulags-, húsnæðis- og hafnarnefndar til sveitarstjórnar um stofnun lóðarinnar Brekkukot 2, að Hafrafelli. Mál frá 32. fundi skipulags-, húsnæðis- og hafnarnefndar Reykhólahrepps sem fór fram 06.05.2026.

Sveitarstjórn samþykkir stofnun lóðarinnar að tillögu nefndarinnar.

Samþykkt samhljóða.

 

11.   2601003 Stofnun lóðar að Hafrafelli, Brekkukot 3

Tillaga skipulags-, húsnæðis- og hafnarnefndar til sveitarstjórnar um stofnun lóðarinnar Brekkukot 3, að Hafrafelli. Mál frá 32. fundi skipulags-, húsnæðis- og hafnarnefndar Reykhólahrepps sem fór fram 06.05.2026.

Sveitarstjórn samþykkir stofnun lóðarinnar að tillögu nefndarinnar.

Samþykkt samhljóða.

 

12.   2601004 Stofnun lóðar að Hafrafelli, Hafrakot 2

Tillaga skipulags-, húsnæðis- og hafnarnefndar til sveitarstjórnar um stofnun lóðarinnar Hafrakot 2, að Hafrafelli. Mál frá 32. fundi skipulags-, húsnæðis- og hafnarnefndar Reykhólahrepps sem fór fram 06.05.2026.

Sveitarstjórn samþykkir stofnun lóðarinnar að tillögu nefndarinnar.

Samþykkt samhljóða.

 

13.   2601005 Stofnun lóðar að Hafrafelli, Hafrakot 3

Tillaga skipulags-, húsnæðis- og hafnarnefndar til sveitarstjórnar um stofnun lóðarinnar Hafrakot 3, að Hafrafelli. Mál frá 32. fundi skipulags-, húsnæðis- og hafnarnefndar Reykhólahrepps sem fór fram 06.05.2026.

Sveitarstjórn samþykkir stofnun lóðarinnar að tillögu nefndarinnar.

Samþykkt samhljóða.

 

14.   2605001 Haustþing Kennarasambands Vestfjarða

Erindi frá Kennarasambandi Vestfjarða dags. 01.05.2026 varðandi Haustþing Kennarasambands Vestfjarða 2026, þar sem óskað er eftir styrk frá sveitarfélaginu vegna þingsins. Mál frá 24. fundi mennta- og menningarmálanefndar Reykhólahrepps sem fór fram 06.05.2026.

Sveitarstjórn telur farsælla að þeir kennarar sem komi til með að sækja þingið fái til þess svigrúm frá sínum yfirmanni.

Samþykkt samhljóða.

 

15.   2605024 Samningur vegna framkvæmda í húsnæði

Samningur milli Reykhólahrepps og Björgunarsveitarinnar Heimamanna vegna framkvæmda í sameiginlegu húsnæði lagður fram til staðfestingar.

Sveitarstjórn samþykkir samninginn samhljóða.

 

16.   2604023 Jarðhiti í Flatey

Samningur við Flateyjarveitur vegna borunar hitastigulshola lagður fram til staðfestingar. Mál frá 533. fundi sveitarstjórnar Reykhólahrepps sem fór fram 14.04.2026.

Sveitarstjóri fór yfir stöðu málsins. Málinu frestað.

 

17.   2605004 Tröllendi 4, lóðaleigusamningur

Lóðaleigusamningur vegna Tröllenda 4 verður lagður fram til staðfestingar.

Sveitarstjórn staðfestir samninginn samhljóða.

 

Mál til kynningar:

18.   2605023 Framkvæmdir 2026.

Lagt verður fram minnisblað um stöðu framkvæmda og fjárfestinga á vegum Reykhólahrepps 2026.

Hrafnkell Guðnason fór yfir stöðu framkvæmda.

Lagt er fram minnisblað með yfirliti yfir helstu framkvæmdir sumarsins.

Sveitarstjórn þakkar sviðsstjóra fyrir samstarfið á kjörtímabilinu.

 

19.   2605009 Vindorkuver á Garpsdalsfjall, álit um umhverfismat framkvæmdar

Álit Húsnæðis- og mannvirkjastofnunnar um umhverfismat framkvæmdar vegna vindorkuvers á Garpsdalsfjalli, dags. 28.04.2026.

Lagt fram.

 

20.   2605019 Aðalfundur Landskerfis bókasafna hf

Erindi frá Landskerfi bókasafna hf. dags. 17.04.2026 þar sem boðað er til aðalfundar sem fer fram í Reykjavík 12.05.2026.

 

Lagt fram.

 

21.   2511005 Ársskýrsla Náttúrufræðistofnunar 2025

Ársskýrsla Náttúrufræðistofnunar fyrir árið 2025 lögð fram.

Lagt fram.

 

22.   2604014 Menntaþing Vestfjarða

Dagskrá menntaþings Vestfjarða sem fer fram á Þingeyri 08.06.2026.

Lagt fram.

 

23.   2605010 Fyrirtækjakönnun landshlutanna

Erindi frá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi þar sem samantekt úr Fyrirtækjakönnun landshlutanna 2025 er komið á framfæri.

Lagt fram.

 

24.   2602024 Svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða

Fundargerðir funda Svæðisskipulagsnefndar Vestfjarða nr. 25 frá 14.04.2026 og nr. 26 frá 4.05.2026.

Lagt fram.

 

25.   2604003 Samband íslenskra sveitarfélaga

Fundargerð 997. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga sem fór fram 17.04.2026.

Lagt fram.

 

Fundi slitið klukkan 18:00