Fara í efni

Sveitarstjórn

533. fundur 14. apríl 2026 kl. 16:30 - 17:30 Sjórnsýsluhúsið Maríutröð 5a
Nefndarmenn
  • Jóhanna Ösp Einarsdóttir oddviti (JÖE)
  • Hrefna Jónsdóttir varaoddviti (HJ)
  • Margrét Dögg Sigurbjörnsdóttir aðalmaður (MDS)
  • Árný Huld Haraldsdóttir aðalmaður (ÁHH)
  • Vilberg Þráinsson aðalmaður (VÞ)
Starfsmenn
  • Ólafur Þór Ólafsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson sveitarstjóri

533. fundur sveitarstjórnar Reykhólahrepps

 

Miðvikudaginn 14. apríl 2026, kl. 16:30

Fundarstaður: Stjórnsýsluhúsið, Maríutröð 5a, Reykhólum.

 

Mætt eru eru:

Jóhanna Ösp Einarsdóttir, oddviti (JÖE)

Hrefna Jónsdóttir, varaoddviti (HJ)

Margrét Dögg Sigurbjörnsdóttir, aðalmaður (MDS)

Árný Huld Haraldsdóttir, aðalmaður (ÁHH)

Vilberg Þráinsson, aðalmaður (VÞ)

 

Einnig sat Ólafur Þór Ólafsson, sveitarstjóri, (ÓÞÓ) fundinn og ritaði fundargerð.

 

Oddviti bauð alla velkomna á fundinn og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboð og fundargögn, engar athugasemdir voru gerðar.

 

Þá spurði oddviti eftir öðrum málum á dagskrá, óskað var eftir því að fundargerð 23. fundar mennta- og menningarmálanefndar Reykhólahrepps verði tekin á dagskrá til staðfestingar. Varð það samþykkt. Verður hún 2. mál á dagskrá fundarins og færast önnur mál aftar sem því nemur.

 

Dagskrá:

1.   532. fundur sveitarstjórnar Reykhólahrepps 11.03.2026.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

Fundargerðir til staðfestingar:

2.   Fundargerð 23. fundar mennta- og menningarmálanefndar 13.04.2026

Varðandi lið 3 í fundargerðinni staðfestir sveitarstjórn bókun nefndarinnar.

Fundargerðin lögð fram og staðfest samhljóða að öðru leiti.

 

Mál til afgreiðslu:

3.   2604015 Staða skólastjóra Reykhólaskóla

Erindi frá Önnu Margréti Tómasdóttur, dags. 06.04.2026, þar sem hún segir starfi sínu lausu sem skólastjóri Reykhólahrepps samkvæmt gildandi ráðningarsamningi.

Sveitarstjórn þakkar skólastjóra fyrir vel unnin störf í þágu sveitarfélagsins og óskar henni velfarnaðar.

Sveitarstjóra falið að auglýsa stöðuna.

Samþykkt samhljóða.

 

 

4.   2604011 Slit á Byggðasamlagi Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks

Erindi frá stjórn Byggðasamlags Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks dags. 27.03.2026 þar sem óskað eftir formlegri afstöðu sveitarstjórnar tillögu stjórnar um að starfsemi byggðasamlagsins verði hætt og því slitið.

Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við að starfsemi byggðasamlagsins verði hætt og því slitið.

Samþykkt samhljóða.

 

5.   2604022 Kjörstjórn, skipan

Erindi frá Steinunni Rasmus dags. 10.04.2026 þar sem hún segir úr kjörstjórn vegna vanhæfis. Í samræmi við 27. gr. og 39. gr. samþykkta um stjórn Reykhólahrepps þarf að skipa nýja fulltrúa í kjörstjórn.

Sveitarstjórn skipar Kolfinnu Ýri Ingólfsdóttur sem aðalmann í kjörstjórn. Andrea Björnsdóttir hefur tekið sæti á lista og er Lovísa Ósk Jónsdóttir skipuð í hennar stað sem varamaður í kjörstjórn.

Samþykkt samhljóða.

 

6.   2604023 Jarðhiti í Flatey

Erindi frá Flateyjarveitum vegna jarðhita í Flatey.

Sveitarstjórn samþykkir að veita Flateyjarveitum 1.000.000 í styrk vegna jarðhitaborana í Flatey. Sveitarstjórn samþykkir jafnframt að verða formlegur samstarfsaðili í verkefninu.

Sveitarstjóra falið að gera drög að samstarfssamningi við Flateyjarveitur og leggja fyrir sveitarstjórn á næsta fundi ásamt viðauka vegna þeirra fjármuna sem felast í verkefninu.

Samþykkt samhljóða.

 

7.   26003023 Reykhóladagar 2026

Undirritaður samningur um framkvæmdastjórn vegna Reykhóladaga 2026 dags. 08.04.2026 lagður fram til staðfestingar.

Sveitarstjórn samþykkir undirritaðan samning samhljóða.

 

Mál til kynningar:

8.   2603043 Aukaþing Fjórðungssambands Vestfirðinga

Erindi frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga dags. 23.03.2026 þar sem boðað er til aukaþings Fjórðungssambands Vestfirðingar sem fer fram 15.04.2026.

JÖE fer á þingið fyrir hönd sveitarfélagsins.

 

9.   2603002 Aðalfundur Leigufélagsins Bríetar ehf. 2026

Erindi frá Leigufélaginu Bríeti ehf. dags. 08.04.2026 þar sem boðað er til aðalfundar sem fer fram 21.04.2026.

Sveitarstjóri fer með umboð sveitarfélagsins á fundinum.

 

10.   2603028 Umsóknir um styrkvegi

Umsóknir Reykhólahrepps til Vegagerðarinnar dags. 19.03.2026 vegna styrkvega 2026.

Lagt fram.

 

11.   2511005 100 ára afmæli Flateyjarkirkju

Erindi frá Undirbúningsnefnd 100 ára afmælis Flateyjarkirkju á Breiðafirði dags. 10.04.2026 þar sem sveitarstjórnarfólki, sveitarstjóra og öðru starfsfólki sveitarfélagsins er boðið til þátttöku á viðburðum er tengjast 100 ára afmæli Flateyjarkirkju.

Sveitarstjórn þakkar gott boð og hvetur nýja sveitarstjórn til að mæta á hátíðina.

 

12.   2604014 Menntaþing Vestfjarða

Erindi frá Vestfjarðastofu dags. 07.04.2026 boðað er til Menntaþings Vestfjarða sem fer fram á Þingeyri 08.06.2026.

Lagt fram.

 

13.   2603019 Sveitarstjórnarlög

Umsögn sveitarstjóra Reykhólahrepps dags. 20.03.2026 vegna frumvarps til sveitarstjórnarlaga. Mál áður á dagskrá 532. fundar sveitarstjórnar Reykhólahrepps sem fór fram 11.03.2026.

Lagt fram.

 

14.   2604001 Ályktun Skógræktarfélags Íslands

Erindi frá Skógræktarfélagi Íslands dags. 30.03.2026 þar sem komið er á framfæri ályktun frá fulltrúafundi félagsins sem fór fram 28.03.2026.

Lagt fram.

 

15.   2603046 Frumvarp til laga um lagareldi

Erindi frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis dags. 24.03.2026 þar sem atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um lagareldi, 529. mál.

Lagt fram.

 

16.   2603047 Frumvarp til laga um breytingu á lögum um lax- og siglungaveiði

Erindi frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis dags. 24.03.2026 þar sem atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um lax- og siglungaveiði, 530. mál.

Lagt fram.

 

17.   2603051 Verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka- og verndarflokkur)

Erindi frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis dags. 26.03.2026 þar umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir er til umsagnar verndar- og orkunýtingaráætlun, 565. mál.

Sveitarstjórn Reykhólahrepps fagnar því a að tekin séu af tvímæli um að lög um verndar- og orkunýtingaráætlun nr. 48/2011 skulu einnig taka til vindorku. Það er mikilvægt að skýr lagarammi sé um meðferð virkjanahugmynda í vindorku. Slíkt kemur í veg fyrir óþarfa drátt í meðferð mála og auðveldar nauðsynlega uppbyggingu orkuinnviða um leið og vernd er tryggð þar sem hún á við. Þá ber að fagna að í lögunum sé kveðið á um að horfa skuli til þess hvort að viðkomandi sveitarfélag hafi lýst yfir formlegri afstöðu til virkjunarhugmyndar og hvaða sjónarmið liggi þar til grundvallar.

Samþykkt samhljóða.

 

18.   2604002 Stefna um opinbera þjónustu

Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 27.03.2026 þar sem drög að stefnu um opinbera þjónustu er send til sveitarfélaga. Stefnan er unnin af fjármála- og efnahagsráðuneytinu í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga.

Lagt fram.

 

19.   2604003 Stofnun atvinnuveganna

Erindi frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis dags. 27.03.2026 þar atvinnuveganefnd Alþingis sendir er til umsagnar 568. mál, Stofnun atvinnuveganna.

Lagt fram.

 

20.   2604008 Einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum mengunarvörnum (einföldun eftirlits)

Erindi frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis dags. 30.03.2026 þar atvinnuveganefnd Alþingis sendir er til umsagnar 582. mál, Einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum mengunarvörnum (einföldun eftirlits).

Lagt fram.

 

21.   2604012 Velferðarþjónusta Vestfjarða, uppgjör 2024 og 2025

Erindi frá fjármálastjóra Ísafjarðarbæjar dags. 26.03.2026 þar sem sent er minnisblað vegna uppgjörs á Velferðarþjónustu Vestfjarða fyrir árin 2024 og 2025.

Málinu vísað til uppgjörsvinnu sveitarfélagsins og Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps.

 

22.   2603026 Framkvæmdaráð Velferðarþjónustu Vestfjarða

Fundargerð 14. fundar framkvæmdaráðs Velferðarþjónustu Vestfjarða sem fór fram 26.03.2026.

Lagt fram.

 

23.   2604010 Breiðafjarðarnefnd

Fundargerðir funda Breiðafjarðarnefndar nr. 240 frá 20.01.2026 og nr. 241 frá 24.02.2026.

Lagt fram.

 

Fundi slitið kl. 17:30