Fara í efni

Sveitarstjórn

532. fundur 11. mars 2026 kl. 16:00 - 18:40 Sjórnsýsluhúsið Maríutröð 5a
Nefndarmenn
  • Jóhanna Ösp Einarsdóttir oddviti (JÖE)
  • Hrefna Jónsdóttir varaoddviti (HJ)
  • Margrét Dögg Sigurbjörnsdóttir aðalmaður (MDS)
  • Árný Huld Haraldsdóttir aðalmaður (ÁHH)
  • Vilberg Þráinsson aðalmaður (VÞ)
Starfsmenn
  • Ólafur Þór Ólafsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson sveitarstjóri

532. fundur sveitarstjórnar Reykhólahrepps

Miðvikudaginn 11. mars 2026, kl. 16:00

Fundarstaður: Stjórnsýsluhúsið, Maríutröð 5a, Reykhólum.

 

Mætt eru:

Jóhanna Ösp Einarsdóttir, oddviti (JÖE)

Hrefna Jónsdóttir, varaoddviti (HJ)

Margrét Dögg Sigurbjörnsdóttir, aðalmaður (MDS)

Árný Huld Haraldsdóttir, aðalmaður (ÁHH)

Vilberg Þráinsson, aðalmaður (VÞ)

 

Einnig sat Ólafur Þór Ólafsson, sveitarstjóri, (ÓÞÓ) fundinn og ritaði fundargerð.

 

Oddviti bauð alla velkomna á fundinn og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboð og fundargögn, engar athugasemdir voru gerðar. Þá spurði oddviti eftir öðrum málum á dagskrá, eitt mál barst og var samþykkt að taka það á dagskrá.

 

Dagskrá:

1.    531. Fundur sveitarstjórnar Reykhólahrepps 11.02.2026.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

Fundargerðir til staðfestingar:

2.   Fundargerð 5. fundar umhverfisnefndar 16.02.2026

Fundargerðin lögð fram og staðfest samhljóða.

3.   Fundargerð 58. fundar velferðarnefndar 02.03.2026

Fundargerðin lögð fram og staðfest samhljóða.

4.   Fundargerð 22. fundar mennta- og menningarmálanefndar 04.03.2026

Fundargerðin lögð fram og staðfest samhljóða.

5.   Fundargerð 31. fundar skipulags, hafnar- og húsnæðisnefndar 04.03.2026

Fundargerðin lögð fram og staðfest samhljóða.

 

Mál til afgreiðslu:

6.   2602015 Áætlanir á eignarmörkum fasteigna

Erindi frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun dags. 12.02.2026 þar sem tilkynnt er um niðurstöðu áætlaðra eignarmarka jarða í eigu Reykhólahrepps. Þær jarðir sem um ræðir eru Hjallar (L39581), Flatey (L216401), Kötluland (L139665) og Galtará (L139554).

Sveitarstjóra falið að gera athugasemd við afmörkun landareignar 139665 Kötluland, vegna Stóru Geldingseyjar.

Samþykkt samhljóða.

 

7.   2603004 Húsnæði Hlunnindasýningarinnar

Erindi frá verkefnastjóra Fjársjóðs fjalla og fjarða dags. 27.02.2026 varðandi framtíðarnýtingu húsnæðis Hlunnindasýningarinnar.

Sveitarstjórn þakkar fyrir erindið og tekur undir með bréfritara. Sveitarstjóra falið að boða forsvarsmenn sýningarinnar á fund til að ræða framtíð húsnæðisins ásamt verkefnastjóra Fjársjóðs fjalla og fjarða.

Samþykkt samhljóða.

 

8.   2603015 Skiptingaráætlun Leigufélagsins Bríetar

Skiptingaráætlun Leigufélagsins Bríetar og stofnun Leigufélags Grindavíkur, sbr. hlutafafundur Leigufélagsins Bríetar ehf. sem fór fram 05.03.2026.

Sveitarstjórn staðfestir breytinguna fyrir hönd sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.

 

9.   2603022 Tenging Jónsbókar við skjalakerfi - greiningarhluti

Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 05.03.2026 þar sem sveitarfélögum er boðin þátttaka í verkefninu “Tenging Jónsbókar við skjalakerfi – greiningarhluti”.

Sveitarstjórn telur ekki forsendur til að taka þátt í verkefninu að svo stöddu.

Samþykkt samhljóða.

 

10.   2603023 Aðalskipulag Sveitarfélagsins Stykkishólms, nr. 0262/2026: Lýsing (Nýtt aðalskipulag)

Erindi frá Skipulagsgátt dags. 06.03.2026 þar sem tilkynnt er um að Sveitarfélagið Stykkishólmur hefur óskað eftir umsögn Reykhólahrepps um málið “Aðalskipulag Sveitarfélagsins Stykkishólms, nr. 0262/2026: Lýsing (Nýtt aðalskipulag)“.

Sveitarstjórn Reykhólahrepps telur nauðsynlegt að ferjuleið yfir Breiðaförð komi skýrt fram í nýju aðalskipulagi Sveitarfélagsins Stykkishólms og minnir á mikilvægi ferjuleiðarinnar fyrir byggðina í Flatey.

Samþykkt samhljóða.

 

11.   2406019 Aðalskipulag 2022-2034 breyting, Króksfjarðarnes

Tillaga skipulags, hafnar- og húsnæðisnefndar Reykhólahrepps til sveitarstjórnar um að sveitarstjórn samþykki til staðfestingar, samkvæmt 32. grein skipulagslaga nr. 123/2010, uppfærða tillögu að breytingum á aðalskipulagi 2022-2034, Króksfjarðarnes, eftir að tekið hefur verið tillit til athugasemda Skipulagsstofnunar, sem komu fram í erindi dags. 28.01.2026. Mál frá 31. fundi skipulags-, hafnar- og húsnæðisnefndar sem fór fram 04.03.2026.

 

Sveitarstjórn hefur farið yfir ábendingar Skipulagsstofnunar og uppfært breytingartillöguna með tilliti til þeirra. Bætt var við ákvæði um núverandi iðnaðarsvæði I-4 ákvæði um samráð við Breiðafjarðarnefnd vegna deiliskipulagsgerðar. Jafnframt var ákveðið að taka út ákvæði um áfangaskiptingu milli íbúðarsvæða ÍB-3 og ÍB-4 þar sem ekki eru á þessu stigi taldar forsendur eða brýn nauðsyn til að skilgreina hana.

 

Varðandi mótvægisaðgerðir sem fram koma í niðurstöðum umhverfismatsins þá telur sveitarstjórn ákvæði um mótvægisaðgerðir sem settar eru fram í aðalskipulagsbreytingunni nægilega ítarlegar og skýrar fyrir aðalskipulagsáætlun. Í ákvæðum um svæði VÞ-14 fyrir hótel eru sett ákvæði um áherslur og mótvægisaðgerðir við deiliskipulagsgerð og samráð við Breiðafjarðarnefnd. Þar kemur líka fram að hótelframkvæmd er tilkynningarskyld skv. lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Matskylduákvörðun eða álit um umhverfismat verða því einnig til grundvallar í deiliskipulagsvinnu og framkvæmdahönnun.

 

Varðandi ábendingu um þéttbýli þá vísar sveitarstjórn til kafla 5.2.1 um íbúðarbyggð en þar kom fram í auglýstri tillögu ekki stæði til að skilgreina nýtt þéttbýli, sbr. eftirfarandi: „Með þessari breytingu er ekki tekin ákvörðun um nýtt þéttbýli á Króksfjarðarnesi sbr. skilgreiningu skipulagsreglugerðar á þéttbýli. Með hliðsjón af framgangi íbúðaruppbyggingar á Króksfjarðarnes á komandi árum mun sveitarstjórn Reykhólahrepps taka afstöðu til þess hvort Króksfjarðarnes verði skilgreint þéttbýli. Sú ákvörðun yrði þá meðal viðfangsefna heildarendurskoðunar aðalskipulags sveitarfélagsins.“

 

Sveitarstjórn samþykkir til staðfestingar, samkvæmt 32. grein skipulagslaga nr. 123/2010, uppfærða tillögu að breytingum á aðalskipulagi 2022-2034, Króksfjarðarnes.

Samþykkt samhljóða.

 

12.   2511028 Skólareglur Reykhólaskóla

Skólareglur Reykhólaskóla, samþykktar af mennta- og menningarmálanefnd Reykhólahrepps, lagðar fram til staðfestingar. Mál frá 22. fundi mennta- og menningarmálanefndar Reykhólahrepps sem fór fram 04.03.2026.

Sveitarstjórn staðfestir skólareglur Reykhólaskóla.

Samþykkt samhljóða.

 

13.   2602035 Skólavist utan lögheimilissveitarfélags

Umsókn um skólavist utan lögheimilissveitarfélags í Ásgarðsskóla, skóla í skýjunum. Mál frá 22. fundi mennta- menningarmálanefndar Reykhólahrepps sem fór fram 04.03.2026.

Sveitarstjórn samþykkir bókun nefndarinnar og staðfestir skólavist utan lögheimilissveitarfélags.

Samþykkt samhljóða.

 

14.   2603017 Skólastarf í Reykhólaskóla

Erindi frá nokkrum foreldrum nemenda í Reykhólaskóla dagsett í febrúar varðandi skólastarf í Reykhólaskóla.

Þrír meðlimir sveitarstjórnar hafa vakið athygli á mögulegu vanhæfi sínu og óska eftir að víkja af fundi undir þessum lið. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að HJ, JÖE og ÁHH víki af fundi.

JÖE og HJ leggja fram eftirfarandi bókun:

Í  2. mgr. 20 gr. Sveitarstjórnarlaga 138/2011kemur fram að í öðrum tilvikum en skv. 1. mgr. ber sveitarstjórnarmanni, nefndarfulltrúa eða starfsmanni sveitarfélags að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af. Þessi regla tekur einnig til gerðar samninga fyrir hönd sveitarfélags.

Undirritaðar starfa báðar við Reykhólaskóla og telja sig því vanhæfar til að taka þátt í umræðu og afgreiðslu þessa máls. Í ljósi þess að málið tengist bæði starfsumhverfi skólans og þeim starfsmönnum sem koma að skólastarfi telja undirritaðar rétt að víkja af fundi meðan málið er tekið til umræðu og afgreiðslu með vísan til 2. mgr. 20. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

JÖE og HJ

Að svo komnu máli tók varafulltrúinn Rebekka Eiríksdóttir sæti á fundinum við afgreiðslu málsins.

Sveitarstjórn kaus sér oddvita undir þessu máli og var Margrét Dögg Sigurbjörnsdóttir kosin einum rómi og tók við stjórn fundarins.

Erindið er lagt fram og vísað til sveitarstjóra til skoðunar og úrvinnslu.

JÖE, HJ og ÁHH komu aftur inn á fund og JÖE tók við fundarstjórn.

 

 

Mál til kynningar:

15.   2603001 Ársreikningur Fjórðungssambands Vestfirðinga 2025

Erindi frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga dags. 02.03.2026 þar sem árreikningur Fjórðungssambands Vestfirðinga 2025 er sendur til kynningar.

Lagt fram.

 

16.   2603002 Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga 2026

Erindi frá Lánasjóði sveitarfélaga þar sem boðað er til aðalfundar sjóðsins sem fer fram í Reykjavík 20.03.2026.

Lagt fram.

 

17.   2603013 Siglingasamband Íslands, áskorun

Erindi frá Siglingasambandi Íslands dags. 21.02.2026 þar sem finna má áskorun til sveitarfélaga landsins varðandi verndun strandlengju Íslands.

Lagt fram.

 

18.   2603016 Vatnaskil í þjóðlendumálum, ráðstefna

Erindi frá forsætisráðuneytinu dags. 02.03.2026 þar sem boðað er til ráðstefnunnar “Vatnaskil í þjóðlendumálum” sem fer fram í Reykjavík 12.03.2026.

Lagt fram.

 

19.   2603019 Sveitarstjórnarlög

Erindi frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis dags. 06.03.2026 þar sem Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 505. mál “Sveitarstjórnarlög”.

Sveitarstjóra falið að fara yfir og skrifa umsögn fyrir hönd sveitarfélagsins ef þörf er á.

Samþykkt samhljóða.

 

 

 

20.   2603024 Varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum

Erindi frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis dags. 05.03.2026 þar sem Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 499. mál “Varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum og Vegagerðin, framkvæmdastofnun samgöngumála (markmið nýting eigna, framkvæmdaumsjón”.

Lagt fram.

 

21.   2603026 Vestfjarðavíkingurinn 2026

Erindi frá Félagi kraftamanna dags. 23.02.2026 varðandi Vestfjarðavíkinginn 2026.

Lagt fram.

 

22.   2602024 Svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða

Fundargerð 24. fundar Svæðisskipulagsnefndar Vestfjarða sem fór fram 11.02.2026.

Lagt fram.

 

23.   2602001 Samband íslenskra sveitarfélaga, fundargerðir

Fundargerðir funda stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 993 frá 18.02.2026 og nr. 994 frá 03.03.2026.

Lagt fram.

 

24.   2603031 Reglubundinn fundur sveitarstjórnar í apríl 2026

Lagt er til að reglubundinn fundur sveitarstjórnar í apríl fari fram þriðjudaginn 14. apríl 2026 klukkan 16:30. Ástæða þess er tímasetning páskahátíðarinnar í ár.

Samþykkt samhljóða.

 

Fundi slitið 18:40.