Fara í efni

Sveitarstjórn

531. fundur 11. febrúar 2026 kl. 16:00 - 18:50 Sjórnsýsluhúsið Maríutröð 5a
Nefndarmenn
  • Jóhanna Ösp Einarsdóttir oddviti (JÖE)
  • Hrefna Jónsdóttir varaoddviti (HJ)
  • Margrét Dögg Sigurbjörnsdóttir aðalmaður (MDS)
  • Árný Huld Haraldsdóttir aðalmaður (ÁHH)
  • Vilberg Þráinsson aðalmaður (ÁHH)
Starfsmenn
  • Ólafur Þór Ólafsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson sveitarstjóri

Sveitarstjórn Reykhólahrepps,

fundargerð

531. fundur sveitarstjórnar Reykhólahrepps

 

Miðvikudaginn 11. febrúar 2026, kl. 16:00

Fundarstaður: Stjórnsýsluhúsið, Maríutröð 5a, Reykhólum.

 

Mætt eru eru:

Jóhanna Ösp Einarsdóttir, oddviti (JÖE)

Hrefna Jónsdóttir, varaoddviti (HJ)

Margrét Dögg Sigurbjörnsdóttir, aðalmaður (MDS)

Árný Huld Haraldsdóttir, aðalmaður (ÁHH)

Vilberg Þráinsson, aðalmaður (ÁHH)

 

Einnig sat Ólafur Þór Ólafsson, sveitarstjóri, (ÓÞÓ) fundinn og ritaði fundargerð.

 

Oddviti bauð alla velkomna á fundinn og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboð og fundargögn, engar athugasemdir voru gerðar. Þá spurði oddviti eftir öðrum málum á dagskrá, ein fundargerð barst og var samþykkt að taka hana á dagskrá undir liðnum fundargerðir til staðfestingar.

 

Gestir á fundinum voru Þórgunnur Ríta Gústafsdóttir og Erna Lea Bergsteinsdóttir fyrir hönd ungmennaráðs Vestfjarða og sátu undir lið 5.

 

Dagskrá:

1.   fundur sveitarstjórnar Reykhólahrepps 14.01.2026.

 

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

Fundargerðir til staðfestingar:

2.   Fundargerð 21. fundar mennta- og menningarmálanefndar 04.02.2026.

Fundargerðin lögð fram og staðfest samhljóða.

 

3.   Fundargerð 30. fundar skipulags, hafnar- og húsnæðisnefndar 04.02.2026.

Fundargerðin lögð fram og staðfest samhljóða.

 

4.   Fundargerð stjórnar hjúkrunarheimilisins Barmahlíðar 10. 02. 2026.

Fundargerðin lögð fram og staðfest samhljóða.

 

Mál til afgreiðslu:

5.   2602015 Ungmennaráð Vestfjarða

Fulltrúar frá Ungmennaráði Vestfjarða verða gestir á fundinum undir þessum lið.

Fulltrúi ungmennaráðs fór yfir helstu atriði sem hún vildi koma á framfæri fyrir hönd ráðsins. Meðal þess sem kom fram var eftirtalið:

Fleiri viðburðir tengdir ungmennum þar á meðal aukið samstarf á Vestfjörðum.

Mikilvægt að skilgreina svæðið Reykhólahrepp sem hluta af svæði en ekki með lítilli þátttöku í allar áttir.

Betri göngustíga innan þéttbýlis til að auka öryggi íbúa.

Samgöngur þar með talið malbik á götur og almenningssamgöngur.

Bætt þjónusta í sundlaug.

Bætt aðgengi fyrir fatlaða.

 

Sveitarstjórn tekur undir sjónarmið fulltrúa ungmennaráðs Vestfjarða og felur sveitarstjóra að taka saman minnisblað með stöðu þeirra verkefna sem fulltrúi ungmennaráðs fór yfir og leggja fyrir á næsta fundi.

Sveitarstjórn þakkar fulltrúa ungmennaráðsins fyrir góða yfirferð.

Samþykkt samhljóða.

 

 

6.   2601020 Hjallar í Þorskafirði

Erindi frá Snæbirni Jónssyni frá Mýrartungu dags. 20. 01. 2026 þar sem óskað er eftir því að hafinn verði undirbúningur að landskiptum jarðarinnar Hjalla við Þorskafjörð.

Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að hefja vinnu vegna undirbúnings á landskiptum á Hjöllum. Málið mun koma til afgreiðslu í sveitarstjórn á síðari stigum.

Samþykkt samhljóða.

 

 

7.   2601007 Kötluland, fasteignagjöld.

Erindi frá Félagi áhugamanna um bátasafn Breiðafjarðar dags. 07. 01. 2026 vegna fasteignagjalda af fasteign nr. 212-2543, Kötluland lóð 1.

Um fasteignagjöld er fjallað í lögum um tekjustofna sveitarfélaga 4/1995 og er sveitarstjóra falið að svara bréfritara í samræmi við ákvæði þeirra laga.

Sveitarstjóra er jafnframt falið að fara yfir álagningu sorpgjalda viðkomandi eignar.

Samþykkt samhljóða.

 

8.   2601022 Þjónustusamningur vegna reykvískra nemenda í Ásgarðsskóla

Þjónustusamningur vegna reykvískra nemenda í Ásgarðsskóla, gerður milli Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, Reykhólahrepps og Í skýjunum ehf. Samningurinn gildir fyrir skólaárin 2025-2026 og 2026-2027. Mál frá 21. fundi mennta- menningarmálanefndar Reykhólahrepps sem fór fram 04. 02. 2026.

Sveitarstjórn samþykkir samninginn og felur sveitarstjóra að undirrita hann fyrir hönd sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.

 

9.   2601015 Skólavist utan lögheimilissveitarfélags

Umsókn um skólavist utan lögheimilissveitarfélags í Reykhólaskóla. Mál frá 21. fundi mennta- menningarmálanefndar Reykhólahrepps sem fór fram 04. 02. 2026.

Sveitarstjórn samþykkir bókun nefndarinnar og staðfestir skólavist utan lögheimilissveitarfélags.

Samþykkt samhljóða.

 

10.   2601011 Ósk um breytingar á deiliskipulagi í Bjarkarlundi

Erindi Landslags dags. 28. 01. 2026 um óverulega breytingu á Aðalskipulagi Reykhólahrepps 2022-2034 í Bjarkarlundi (VÞ10), sbr. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 1237201 og tillaga að breytingu á deiliskipulagi Bjarkarlundar, sbr. 1. mgr. 43. gr. laganna. Mál frá 30. fundi skipulags, hafnar- húsnæðinefndar Reykhólahrepps sem fór fram 04. 02. 2026.

Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.

Sveitarstjóra falið að koma ábendingum sveitarstjórnar á framfæri við landeigendur, varðandi snjósöfnun á hluta þess svæðis sem um ræðir.

Samþykkt samhljóða.

 

12.   2601034 Kaup félagsins Úr sveitinni ehf. á Ingunnarstöðum

Erindi frá Atvinnuvegaráðuneytinu dagsett 02. 02. 2026. Sérstaklega er óskað eftir sjónarmiðum sveitarfélagsins um það hvort fyrirhuguð ráðstöfun fasteignar og áformuð nýting hennar samrýmist skipulagsáætlunum Reykhólahrepps. Enn fremur hvort áformuð nýting fasteignar sé að mati sveitarfélagsins í samræmi við stærð, staðsetningu og ræktunarskilyrði hennar, samkvæmt 3. málsl. 8. mgr. 10. gr. a skulu umsagnir liggja fyrir eins skjótt og verða má. Skipulags-, hafnar og húsnæðisnefnd Reykhólahrepps leggur til við sveitarstjórn að skrifa jákvæða umsögn varðandi erindi enda samræmist áform um nýtingu jarðarinnar aðalskipulag sveitarfélagsins. Jafnframt telur nefndin að áformuð nýting fasteignar sé í samræmi við stærð, staðsetningu og ræktunarskilyrði hennar. Mál frá 30. fundi skipulags, hafnar- húsnæðinefndar Reykhólahrepps sem fór fram 04. 02. 2026.

Sveitarstjórn tekur undir bókun nefndarinnar og felur sveitarstjóra að skila jákvæða umsögn.

Samþykkt samhljóða.

 

13.   2601012 Umsókn um leyfi fyrir uppsetningu fuglaskiltis

Erindi frá Guðjóni D. Gunnarssyni dags. 09. 01. 2026 þar sem sótt er um leyfir fyrir uppsetningu fuglaskiltis. Fyrir liggur tillaga skipulags-, hafnar og húsnæðisnefndar til sveitarstjórnar um að taka vel í erindið. Mál frá 30. fundi skipulags, hafnar- húsnæðinefndar Reykhólahrepps sem fór fram 04. 02. 2026.

Sveitarstjórn tekur vel í erindið og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við bókun nefndarinnar.

Samþykkt samhljóða.

 

13.   2602005 Stofnframlög HMS 2026

Erindi frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun dagsett 02. 02. 2026 þar sem vakin er athygli á auglýsingu um umsóknir vegna stofnframlaga til byggingar eða kaupa á almennum íbúðum. Skipulags-, hafnar og húsnæðisnefnd telur ekki tilefni til að sækja um stofnframlög að þessu sinni en vísar erindinu til sveitarstjórnar. Mál frá 30. fundi skipulags, hafnar- húsnæðinefndar Reykhólahrepps sem fór fram 04. 02. 2026.

Sveitarstjórn staðfestir bókun nefndarinnar.

Samþykkt samhljóða.

 

14.   2602016 Eyrarkláfur, Ísafirði

Erindi frá Skipulagátt dags. 03. 02. 2026 þar sem ítrekuð er ósk Ísafjarðarbæjar um umsögn vegna deiliskipulagstillögu á vinnslustigi um Eyrarkláfi. Mál frá 30. fundi skipulags, hafnar- húsnæðinefndar Reykhólahrepps sem fór fram 04. 02. 2026.

Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við tillöguna.

Samþykkt samhljóða.

 

15.   2602019 Þorrablót.

Erindi frá Þorrablótsnefnd 2026 dags. 08. 02. 2026 varðandi framkvæmd þorrablóts og búnað tengdum því.

Sveitarstjórn telur mikilvægt að hljóðkerfi verði yfirfarið og eignarhald og ábyrgð á hljóðkerfi verði skýrt. Sveitarstjóra falið að skoða þá kosti sem eru í boði og leggja fyrir sveitarstjórn.

Sveitarstjóra falið að svara bréfriturum miðað við umræður á fundinum.

Sveitarstjórn felur sveitarstjóra jafnframt að útbúa minnisblað um gistingu í skólahúsnæðis og leggja fyrir á næsta sveitarstjórnarfundi.

Samþykkt samhljóða.

 

Mál til kynningar:

16.   2508011 Reykhóladagar 2025

Mál frá 21. fundi mennta- menningarmálanefndar Reykhólahrepps sem fór fram 04. 02. 2026. Mál frá 21. fundi mennta- menningarmálanefndar Reykhólahrepps sem fór fram 04. 02. 2026. Einnig er lögð fram samantekt vegna Reykhóladaga 2025.

Sveitarstjórn vísar samantektinni til mennta og menningarmálanefndar til umfjöllunar.

Samþykkt samhljóða.

 

17.   2601037 Framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn

Erindi frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis dags. 29. 01. 2026 þar sem Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar 305. mál “ Framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn”.

Lagt fram.

 

 

18.   2601036 Réttarvernd fatlaðs fólks

Erindi frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis dags. 29. 01. 2026 þar sem Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar 311. mál “ Réttindavernd fatlaðs fólks”.

Lagt fram.

 

19.   2602018 Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Erindi frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis dags. 29. 01. 2026 þar sem Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar 312. mál “Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir (stytting bótatímabils o.fl.)”.

Lagt fram.

 

20.  2601035 Breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun og vernd og

orkunýtingu landsvæða

Erindi frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis dags. 29. 01. 2026 þar sem Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 307. mál “Breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun og vernd og orkunýtingu landsvæða”.

Sveitarstjórn setur sig ekki upp á móti tillögunni en leggur áherslu á að tekið sé tillit til hverfisverndar og nærsamfélags þegar virkjanakostur er metinn.

Samþykkt samhljóða.

 

21.   2510022 Samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára

aðgerðaráætlun fyrir árin 2026-2030

Erindi frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis dags. 21. 01. 2026 þar sem Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 322. mál “Samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára

aðgerðaráætlun fyrir árin 2026-2030”.

Umsögn Reykhólahrepps um samgönguáætlun lögð fram og samþykkt samhljóða.

 

22.   2601030 Styrktarsjóður EBÍ

Erindi frá Eignarhaldsfélaginu Brunabótarfélag Íslands dags. 27. 01. 2026 þar sem er vakin athygli á að umsóknarfrestur í Styrktarsjóð fyrir árið 2026 sé til febrúarloka.

Sveitarstjóra falið að kanna grundvöll fyrir umsókn í sjóðinn.

Samþykkt samhljóða.

 

23.   2601026 Framkvæmdasjóður aldraðra 2026

Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 21. 01. 2026 þar sem vakin er athygli á að félags- og húsnæðismálaráðuneytið hefur opnað fyrir umsóknir um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2026.

Sveitarstjóra falið að kanna grundvöll fyrir umsókn í sjóðinn.

Samþykkt samhljóða.

 

24.   2601008 E.-félag Íslands

Erindi móttekið 07. 01. 2026 varðandi starfsemi félagsins.

Lagt fram.

 

25.   2505004 Áhrif loftslagsbreytinga á sveitarfélög

Skýrslan “Aðlögun sveitarfélagsins Reykhólahrepps að áhrifum loftslagsbreytinga. Niðurstöðuskýrsla úr verkefninu C.10 í núgildandi byggðaáætlun – Áhrif loftslagsbreytinga á sveitarfélög” lögð fram. Gefin úf Þróunarsviði Byggðarstofnunnar í janúar 2026.

Skýrslunni vísað til umfjöllunar í skipulags-, hafna og húsnæðisnefnd og umhverfis- og náttúruverndarnefnd. Sveitarstjóra falið að koma skýrslunni í birtingu á vefsíðu sveitarfélagsins ásamt því að kynna skýrsluna fyrir hluteigandi starfsfólki.

Samþykkt samhljóða.

 

26.   2602001 Samband íslenskra sveitarfélaga, fundargerðir

Fundargerð 992. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga sem fór fram 23. 01. 2026.

Lagt fram.

Fundi slitið klukkan 18:50.