Fara í efni

Sveitarstjórn

530. fundur 14. janúar 2026 kl. 16:00 - 17:10 Sjórnsýsluhúsið Maríutröð 5a
Nefndarmenn
  • Jóhanna Ösp Einarsdóttir oddviti (JÖE)
  • Hrefna Jónsdóttir varaoddviti (HJ)
  • Margrét Dögg Sigurbjörnsdóttir aðalmaður (MDS)
  • Rebekka Eiríksdóttir aðalmaður (RE)
  • Vilberg Þráinsson aðalmaður (VÞ)
Starfsmenn
  • Ólafur Þór Ólafsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson sveitarstjóri

530. fundur sveitarstjórnar Reykhólahrepps

 

Miðvikudaginn 14. janúar 2026, kl. 16:00

Fundarstaður: Stjórnsýsluhúsið, Maríutröð 5a, Reykhólum.

 

Mætt eru:

Jóhanna Ösp Einarsdóttir, oddviti (JÖE)

Hrefna Jónsdóttir, varaoddviti (HJ)

Margrét Dögg Sigurbjörnsdóttir, aðalmaður (MDS)

Rebekka Eiríksdóttir, aðalmaður (RE)

Vilberg Þráinsson, aðalmaður (VÞ)

 

Einnig sat Ólafur Þór Ólafsson, sveitarstjóri, (ÓÞÓ) fundinn og ritaði fundargerð.

 

Oddviti bauð alla velkomna á fundinn og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboð og fundargögn, engar athugasemdir voru gerðar. Þá spurði oddviti eftir öðrum málum á dagskrá, eitt mál barst og var samþykkt að taka það á dagskrá undir liðnum önnur mál.

 

Dagskrá:

1.   528. fundur sveitarstjórnar Reykhólahrepps 12.11.2025 og 529. fundur sveitarstjórnar Reykhólahrepps 15.12.2025.

Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

 

Mál til afgreiðslu:

2.   2510016 Tilnefningar í Farsældarráð Vestfjarða

Tilnefningar sveitarfélaga í Farsældarráð Vestfjarða og stjórn ráðsins, sbr. erindi frá verkefnastjóra Farsældarráðs Vestfjarða dags. 26.11.2025. Mál áður á dagskrá á 528. fundi sveitarstjórnar þar sem sveitarstjóra og tilnefndum fulltrúa var falið að vinna að öðrum tilnefningum fyrir hönd sveitarfélagsins í ráðið.

Sveitarstjórn samþykkir að eftirtaldir aðilar taki sæti í farsældarráði Vestfjarða, samkvæmt tillögu undirbúningshóps.

Félagsmálastjóri, Hlíf Hrólfsdóttir

Fulltrúi skólastjórnenda, Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir

Fulltrúi Foreldra, Jón Örn Haraldsson.

Jafnframt samþykkir sveitarstjórn að Þorgeir Pálsson verði fulltrúi í Stjórn Farsældarráðs og Hrefna Jónsdóttir varafulltrúi.

Samþykkt samhljóða.

 

3.   2512019 Samræmd móttaka og inngilding íbúa af erlendum uppruna hjá sveitarfélögum á Vestfjörðum

Stefna um samræmda móttöku og inngildingu íbúa af erlendum uppruna hjá sveitarfélaga á Vestfjörðum, unnin af Fræðslumiðstöð Vestfjarða fyrir Fjórðungssamband Vestfirðinga.

Sveitarstjórn samþykkir stefnu um samræmda móttöku og inngildingu íbúa af erlendum uppruna fyrir sitt leiti. Sveitarstjórn þakkar fyrir góða vinnu og þarft frumkvæði.

Samþykkt samhljóða.

 

4.   2601006 Eftirfylgni við eftirlitskönnun 2025

Erindi frá Þjóðskjalasafni Íslands dags. 07.01.2026 þar sem fylgt er eftir eftirlitskönnun sem safnið framkvæmdi í febrúar 2025 á skjalavörslu og skjalastjórn hjá Reykhólahreppi. Í erindinu koma fram tilmæli um nauðsynlegar úrbætur til að sveitarfélagið hlíti lögum og reglum um skjalavörslu og skjalastjórn.

Sveitarstjórn hefur þegar skapað svigrúm til aðgerða með fjárheimildum í fjárhagsáætlun. Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að vinna áfram að úrbótum vegna málsins og leggja fyrir minnisblað í sveitarstjórn varðandi nauðsynlegar aðgerðir vegna skjalamála.

Samþykkt samhljóða.

 

5.   2601009 Tækifærisleyfi fyrir þorrablót

Erindi frá Sýslumanninum á Vestfjörðum dags. 12.01.2026 þar sem óskað er eftir umsögn um umsókn Ungmennafélagsins Aftureldingar vegna þorrablóts sem fer fram í íþróttahúsinu á Reykhólum 24.01.2026.

Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við umbeðið leyfi og felur sveitarstjóra að ganga frá umsögn sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.

 

6.   2601001 Umsókn um leyfi fyrir steypustöð á verkstað

Erindi frá Leonhard Nilsen & Sønner AS dags. 19.12.2025 vegna umsóknar um leyfi fyrir steypustöð á verkstað vegna vegagerðar í Gufufirði.

Sveitarstjórn samþykkir leyfi fyrir uppsetningu steypustöðvar í samræmi við innsenda umsókn með vísan í þau skilyrði sem fram koma í umhverfismatsskýrslu framkvæmdarinnar.

Samþykkt samhljóða.

 

Mál til kynningar:

7.   2512015 Skólahreysti 2026.

Erindi frá Hreystismiðjunni ehf. dags. í desember 2025 varðandi Skólahreysti 2026.

Lagt fram til kynningar.

 

 

8.   2512021 Ósk um upplýsingar og gögn vegna rannsóknar Samkeppniseftirlitsins

Erindi frá Samkeppniseftirlitinu dags. 17.12.2025 þar sem óskað er eftir upplýsingum og gögnum vegna rannsóknar eftirlitsins á því hvort Terra umhverfisþjónusta hf. og Kubbur ehf. hafi brotið gegn banni 10. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005 og 1. mgr. 53. gr. EES-samningsins með ólögmætu samráði í tengslum við úrgangsþjónustu, s.s. við útboð sveitarfélaga og með markaðsskiptingu eftir svæðum og viðskiptavinum.

Lagt fram til kynningar.

 

9.   2512028 Breyting á 4. grein fylgiskjals I við reglugerð nr. 1212/2015 um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga

Erindi frá Innviðaráðuneytinu dags. 22.12.2025 þar sem vakin er athygli á því að reglugerð um breytingu á 4. gr. í fylgiskjali I með reglugerð nr. 1212/2015 um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga verði send til birtingar í Stjórnartíðindum á næstu dögum. Reglugerðin öðlast gildi við birtingu hennar og skal gilda um reikningsár sem hefst 1. janúar 2026. Gert er ráð fyrir að reglugerðin verði birt snemma í janúar 2026.

Lagt fram til kynningar.

 

10.   2512009 Sólmyrkvi 12. ágúst 2026, fundarpunktar starfshóps

Punktar frá 1. fundi starfshóps sveitarfélaga á Vestfjörðum vegna sólmyrkva 12. ágúst 2026 sem fór fram 10.11.2025. Sveitarstjóri fór yfir fundarpunkta.

Lagt fram til kynningar.

 

11.   2512022 Breiðafjarðarnefnd, fundargerðir

Fundargerðir Breiðafjarðarnefndar nr. 229 sem fór fram 04.02.2025, nr. 230 sem fór fram 04.03.2025, nr. 231 sem fór fram 20.03.2025, nr. 232 sem fór fram 09.04.2025, nr. 233 sem fór fram 23.05.2025, nr. 234 sem fór fram 13.06.2025, nr. 235 sem fór fram 04.07.2025, nr. 236 sem fór fram 18.08.2025, nr. 237 sem fór fram 29.10.2025 og nr. 238 sem fór fram 20.11.2025.

Lagt fram til kynningar.

 

12.   2508019 Fjórðungsþing að hausti, fundargerð.

Þinggerð 70. Fjórðungsþings Vestfirðinga að hausti, sem fór fram í Hnífsdal 16.09.2025 - 17.09.2025.

Lagt fram til kynningar.

 

Önnur mál:

13.   2512010 Umsókn um vegabætur

Erindi dagsett 8. 12. 2025 frá eigendum Hafrafells 3.

Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram með tilliti til flokkunar vegar.

Samþykkt samhljóða

 

Fundi slitið klukkan 17:10