Fara í efni

Sveitarstjórn

528. fundur 10. desember 2025 kl. 16:00 - 17:45 Sjórnsýsluhúsið Maríutröð 5a
Nefndarmenn
  • Jóhanna Ösp Einarsdóttir oddviti (JÖE)
  • Hrefna Jónsdóttir varaoddviti (HJ)
  • Margrét Dögg Sigurbjörnsdóttir aðalmaður (MDS)
  • Rebekka Eiríksdóttir aðalmaður (RE)
  • Vilberg Þráinsson aðalmaður (VÞ)
Starfsmenn
  • Ólafur Þór Ólafsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson sveitarstjóri

528. fundur sveitarstjórnar Reykhólahrepps

 

Miðvikudaginn 10. desember 2025, kl. 16:00

Fundarstaður: Stjórnsýsluhúsið, Maríutröð 5a, Reykhólum.

 

Mætt eru eru:

Jóhanna Ösp Einarsdóttir, oddviti (JÖE)

Hrefna Jónsdóttir, varaoddviti (HJ)

Margrét Dögg Sigurbjörnsdóttir, aðalmaður (MDS)

Rebekka Eiríksdóttir, aðalmaður (RE)

Vilberg Þráinsson, aðalmaður (VÞ)

 

Einnig sat Ólafur Þór Ólafsson, sveitarstjóri, (ÓÞÓ) fundinn og ritaði fundargerð.

 

Oddviti bauð alla velkomna á fundinn og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboð og fundargögn, engar athugasemdir voru gerðar. Þá spurði oddviti eftir öðrum málum á dagskrá, en ekkert slíkt kom upp.

 

Dagskrá:

1.   527. fundur sveitarstjórnar Reykhólahrepps 12.11.2025.

Fundargerðin lögð fram.

Fundargerðir til staðfestingar:

 

2.   Fundargerð 20. fundar mennta- og menningamálanefndar 01.12.2025.

Fundargerðin lögð fram og staðfest samhljóða.

 

3.   Fundargerð 29. fundar skipulags, hafnar- og húsnæðisnefndar 03.12.2025.

Fundargerðin lögð fram og staðfest samhljóða.

 

Mál til afgreiðslu:

4.   2507003 Fjárhagsáætlun 2026 og þriggja ára áætlun 2027-2029

Málinu frestað til aukafundar sem sveitarstjórnar sem verður haldinn 15. desember n.k.

 

5.   2409009 Fjárhagsáætlun 2025

Málinu frestað.

 

6.   2510016 Tilnefningar í Farsældarráð Vestfjarða

Erindi frá verkefnastjóra Farsældarráðs Vestfjarða dags. 26.11.2025 þar sem óskað er eftir tilnefningum sveitarfélaga í Farsældarráð Vestfjarða og í stjórn ráðsins.

Sveitarstjórn skipar Hrefnu Jónsdóttur í Farsældarráð Vestfjarða fyrir hönd sveitarfélagsins. Sveitarstjóra ásamt tilnefndum fulltrúa falið að vinna að öðrum tilnefningum fyrir hönd sveitarfélagsins í ráðið.

Samþykkt samhljóða.

 

7.   2511025 Samræmdar dagsetningar umsókna í grunnskóla

Erindi frá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu dags. 17. 11. 2025 varðandi samræmdar dagsetningar umsókna í grunnskóla.

Sveitarstjórn samþykkir bókun nefndarinnar samhljóða.

 

8.   2509024 Skólavist utan lögheimilissveitarfélags

Mál frá 20. fundi mennta- og menningarmálanefndar Reykhólahrepps sem fór fram 01.12.2025.

Sveitarstjórn samþykkir skólavist utan lögheimilissveitarfélags samhljóða.

 

9.   2509033 Framkvæmdaleyfi vegna endurheimtar votlendis

Umsókn Vegagerðarinnar dags. 19.09.2025 um framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 vegna endurheimtar votlendis í landi Barma (L139535) og Hofstaða (L139591). Skipulags-, húsnæðis- og hafnarnefnd leggur til við sveitarstjórn umsóknin verði staðfest.

Mál frá 29. fundi skipulags-, húsnæðis- og hafnarnefndar Reykhólahrepps sem fór fram 03.12.2025.

Sveitarstjórn samþykkir að veita Vegagerðinni framkvæmdaleyfi og felur skipulagsfulltrúa að veita leyfið.

Samþykkt samhljóða.

 

10.   2406019 Breyting á Aðalskipulagi 2022-2034 á Króksfjarðarnesi og í

Geiradal, til afgreiðslu eftir auglýsingu.

Lögð fram til afgreiðslu eftir auglýsingu skv. 1. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Reykhólahrepps 2022-2034 á Króksfjarðarnesi og í Geiradal. Tillagan var auglýst í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga frá 17. september 2025 með athugasemdarfresti til 29. október 2025. Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands, Vegagerðinni,

Strandabyggð, Breiðafjarðarnefnd, Náttúruverndarstofnun, Náttúrufræðistofnun og Heilbrigðiseftirliti Vestfjarða. Samantekt um umsagnir og viðbrögð fylgir tillögunni til afgreiðslu. Umsagnir Minjastofnunar Íslands, Vegagerðarinnar, Strandabyggðar og Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða fólu ekki sér athugasemdir við auglýsta tillögu. Skipulags- húsnæðis- og hafnarnefnd hefur farið yfir tillöguna og umsagnir sem bárust og leggur til við sveitarstjórn að samþykkja aðalskipulagsbreytinguna með eftirfarandi lagfæringum

  • Að fella út reit H-7 fyrir nýja bryggju í auglýstri tillögu og gera þess í stað ráð fyrir að gamla bryggjan við Króksfjarðarnes verði endurbyggð, sbr. gildandi ákvæði um iðnaðarsvæðið I4 með hliðsjón af umsögn Breiðafjarðarnefndar.
  • Með hliðsjón af umsögnum Náttúverndarstofnunar og Náttúrufræðistofnunar er bætt inn í skipulagsákvæði fyrir um verslunar- og þjónustureitinn VÞ-14 á Króksfjarðarnestanga eftirfarandi ákvæðum: Við deiliskipulag skal áhersla lögð á að lágmarka áhrif á verndarsvæði, þ.e. fjörur Breiðafjarðar, leiruvistgerðir og alþjóðlega mikilvægt fuglasvæði. Nauðsynlegt er að hanna fráveitu og lagnakerfi með tilliti til verndarsvæðisins. Deiliskipulag skal, í samstarfi við Breiðafjarðarnefnd, setja skilmála um umgengi í tengslum við starfsemina til að vernda viðkvæma náttúru og dýralíf.

Mál frá 29. fundi skipulags-, húsnæðis- og hafnarnefndar Reykhólahrepps sem fór fram 03.12.2025.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykhólahrepps 2022-2034 á Króksfjarðarnesi og í Geiradal, með ofangreindum breytingum sbr. afgreiðslu Skipulags-, húsnæðis og hafnarnefndar 3. desember 2025 í samræmi við 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga.

Samþykkt samhljóða.

 

11.   2512001 Framkvæmdaleyfi í Djúpadalsá

Umsókn landeiganda Djúpadals um framkvæmdaleyfi skv. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna varna meðfram vestari árbakka Djúpadalsár. Með erindi fylgir framkvæmdalýsing með yfirlitsmyndum unnin af Land og skógi dags. 13.10.2025. Umsækjandi hefur sótt um leyfi Fiskistofu og er leyfisumsóknin í afgreiðslu.

Skipulags- húsnæðis- og hafnarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja umsóknina með fyrirvara um leyfi Fiskistofu og fela skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við framkvæmdalýsingu í umsókn og leyfi Fiskistofu.

Mál frá 29. fundi skipulags-, húsnæðis- og hafnarnefndar Reykhólahrepps sem fór fram 03.12.2025.

Sveitarstjórn samþykkir umsóknina með fyrirvara um leyfi Fiskistofu og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdarleyfi.

Samþykkt samhljóða.

 

12.   2511026 Svæðisskipulag Vestfjarða

Lögð fram til afgreiðslu skv. 3. mgr 23. gr. skipulagslaga 123/2010 tillaga að Svæðsskipulag Vestfjarða 2025-2050 ásamt fylgigögnum. Skipulags- húsnæðis- og hafnarnefnd hefur farið yfir tillöguna og leggur til við sveitarstjórn að samþykkja tillöguna til auglýsingar í samræmi við 24. gr. skipulagslaga.

Mál frá 29. fundi skipulags-, húsnæðis- og hafnarnefndar Reykhólahrepps sem fór fram 03.12.2025.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða tillögu að Svæðsskipulagi Vestfjarða 2025-2050 ásamt fylgigögnum til auglýsingar í samræmi við 24. gr. Skipulagslaga.

Samþykkt samhljóða.

 

Mál til kynningar:

 

13.   2511055 Áskoranir og hvatningar frá þingi UMFÍ

Erindi frá UMFÍ dags. 13.11.2025 þar sem komið er á framfæri áskorunum og hvatningum frá 54. Sambandsþingi UMFÍ sem fór fram í Stykkishólmi 10.10.2025-12.10.2025.

Lagt fram.

 

14.   2512004 Samband íslenskra sveitarfélaga tekur við söfnun fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2026

Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 25.11.2025 þar sem greint er frá því að sambandið taki yfir söfnun fjárhagsáætlana sveitarfélaga fyrir árið 2026, næstu þriggja ára þar á eftir sem og útgönguspá fyrir 2025. Jafnframt er greint frá því að sambandið taki yfir vistun á Upplýsingaveitu sveitarfélaga af Hagstofu Íslands.

Lagt fram.

 

15.   2512005 ADHD-samtökin

Erindi frá ADHD-samtökunum dags. 26.11.2025 varðandi starfsemi samtakanna.

Lagt fram.

 

16.   2512006 Stafrænt samstarf sveitarfélaga

Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 2.12.2025 varðandi verkefnaáætlun og kostnaðarskiptingu stafræns samstarfs fyrir árið 2026.

Lagt fram.

 

17.   2512007 Ný gjaldskrá Þjóðskjalasafns Íslands

Erindi frá Þjóðskjalasafni Íslands dags. 05.12.2025 þar sem ný gjaldskrá stofnunarinnar er kynnt.

Lagt fram.

 

18.   2512008 Endurskoðun stjórnvaldsfyrirmæla um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga eftir setningu laga nr. 56/2025

Erindi frá Innviðaráðuneytið dags. 05.12.2025 þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 242/2025, „Endurskoðun stjórnvaldsfyrirmæla um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga eftir setningu laga nr. 56/2025“ og sveitarfélaginu boðið sérstaklega að taka þátt í samráðinu.

Sveitarstjóra falið að skrifa umsögn fyrir hönd sveitarfélagsins einkum hvað varðar akstursþjónustu í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða.

 

19.   2510010 Heilbrigðisnefnd Vestfjarðarsvæðis, fundargerðir

Fundargerð 154. fundar Heilbrigðisnefndar Vestfjarðarsvæðis sem fór fram 19.11.2025.

Lagt fram.

 

20.   2512009 Starfshópur sveitarfélaga á Vestfjörðum vegna almyrkva 12. ágúst 2026, fundargerðir

Fundargerð 1. fundar Starfshóps sveitarfélaga á Vestfjörðum vegna almyrkva 12. ágúst 2026, sem fór fram 10.11.2025.

Lagt fram.

 

21.   2509035 Svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða, fundargerðir

Fundargerð 23. fundar Svæðisskipulagsnefndar Vestfjarða sem fór fram 17.11.2025.

Lagt fram.

 

22.   2503008 Samband íslenskra sveitarfélaga, fundargerðir

Fundargerðir 989. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga sem fór fram 14.11.2025.

Lagt fram.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:45