Sveitarstjórn
527. fundur sveitarstjórnar Reykhólahrepps
miðvikudaginn 12. nóvember 2025, kl. 16:00
Fundarstaður: Stjórnsýsluhúsið, Maríutröð 5a, Reykhólum.
Mætt eru eru:
Jóhanna Ösp Einarsdóttir, oddviti (JÖE)
Hrefna Jónsdóttir, varaoddviti (HJ)
Margrét Dögg Sigurbjörnsdóttir, aðalmaður (MDS)
Rebekka Eiríksdóttir, aðalmaður (RE)
Vilberg Þráinsson, aðalmaður (VÞ)
Einnig sat Ólafur Þór Ólafsson, sveitarstjóri, (ÓÞÓ) fundinn og ritaði fundargerð.
Oddviti bauð alla velkomna á fundinn og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboð og fundargögn, engar athugasemdir voru gerðar. Þá spurði oddviti eftir öðrum málum á dagskrá, en ekkert slíkt kom upp.
Dagskrá:
1. 526. fundur sveitarstjórnar Reykhólahrepps 08.10.2025.
Fundargerðin lögð fram.
Fundargerðir til staðfestingar:
2. Fundargerð 28. fundar skipulags, hafnar- og húsnæðisnefndar 05.11.2025.
Fundargerðin lögð fram og staðfest samhljóða.
3. Fundargerð 57. fundar velferðarnefndar Stranda og Reykhólahrepps 03.11.2025.
Fundargerðin lögð fram og staðfest samhljóða.
Sveitarstjórn staðfestir samhljóða samþykkt velferðarnefndar um skipan Hrefnu Jónsdóttur sem áheyrnarfulltrúa í Velferðarnefnd Ísafjarðarbæjar og að Matthías Lýðsson verði til vara.
Sveitarstjórn staðfestir samhljóða að sveitarstjóri Strandabyggðar verði fulltrúi fyrir Félagsþjónustu Stranda og Reykhóla í notendaráði fatlaðra.
Samþykkt samhljóða.
4. Fundargerð 3. fundar stjórnar Barmahlíðar 06.11.2025.
Fundargerðin lögð fram og staðfest samhljóða.
5. Fundargerð 19. fundar mennta- og menningarmálanefndar 10.11.2025.
Fundargerðin lögð fram og staðfest samhljóða.
Sveitarstjórn staðfestir samhljóða samþykkt nefndarinnar um umsóknir nemenda með lögheimili í öðrum sveitarfélögum um skólavist í Ásgarðsskóla.
Samþykkt samhljóða.
Mál til afgreiðslu:
6. 2507003 Fjárhagsáætlun 2026 og þriggja ára áætlun 2027-2029
Fjárhagsáætlun 2026 lögð fram til fyrri umræðu í samræmi við 62. gr. sveitarstjórnalaga nr. 138/2011 ásamt tillögu um útsvarshlutfall ársins 2026 í samræmi við 23. og 24. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að útsvarshlutfall ársins 2026 í Reykhólahreppi verði 14,97% í samræmi við ákvæði 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.
Samþykkt samhljóða að vísa fjárhagsáætlun 2026 ásamt þriggja ára áætlun 2027-2029 til síðari umræðu í sveitarstjórn sem fer fram á reglubundnum fundi hennar 10.12.2025.
Samþykkt samhljóða.
7. 2409009 Fjárhagsáætlun 2025
Viðauki nr. 1 við fjárhagsáætlun 2025 lagðir fram.
Viðauki nr. 1 er samþykktur að upphæð 16.800.000 og skýrist að mestu leiti af hækkun kostnaðar vegna vegna úrgangsmála og kostnaðar vegna sveitarstjóraskipta.
Samþykkt samhljóða.
8. 2511011 Sameiginlegar reglur um þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra
Sameiginlegar reglur um þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra lagðar fram til staðfestingar. Mál frá 57. fundi velferðarnefndar Stranda og Reykhólahrepps sem fór fram 03.11.2025.
Samþykkt samhljóða.
9. 2511012 Reglur um NPA-þjónustu
Reglur um NPA-þjónustu lagðar fram til staðfestingar. Mál frá 57. fundi velferðarnefndar Stranda og Reykhólahrepps sem fór fram 11.03.2025.
Samþykkt samhljóða.
10. 2501009 Úthlutunarreglur leiguhúsnæðis
Tillaga til sveitarstjórnar um að vinna verði hafin við að fara yfir úthlutunarreglur á leiguhúsnæði í eigu Reykhólahrepps. Mál frá 28. fundi skipulags-, hafnar- og húsnæðisnefndar sem fór fram 05.11.2025.
Sveitarstjóra falið að rýna úthlutunarreglur leiguhúsnæðis og koma með tillögu að breytingum miðað við umræðu á fundinum.
Samþykkt samhljóða.
11. 2308008 Deiliskipulag fyrir iðnaðar- og hafnarsvæði á Reykhólum
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að gera ráð fyrir fjármagni til að klára deiliskipulag vegna iðnaðar- og hafnarsvæðis á Reykhólum. Mál frá 28. fundi skipulags-, hafnar- og húsnæðisnefndar sem fór fram 05.11.2025.
Sveitarstjórn samþykkir að gera ráð fyrir fjármagni í deiliskipulag í fjárhagsáætlun fyrir árið 2026.
Samþykkt samhljóða.
12. 2510030 Heildarsamningur við STEF
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 21.10.2025 þar sem óskað er eftir afstöðu sveitarfélaga til þess hvort að Sambandið eigi að gera heildarsamning við STEF fyrir hönd þeirra.
Sveitarstjórn samþykkir að Reykhólahreppur verði aðili að heildarsamningi, verði hann gerður.
Samþykkt samhljóða.
13. 2510016 Farsældarráð Vestfjarða
Samningur um farsældarráð Vestfjarða lagður fram til staðfestingar. Erindi frá verkefnastjóra farsældarráðs Vestfjarða dags. 09.10.2025.
Sveitarstjórn staðfestir samning um farsældarráð Vestfjarða.
Samþykkt samhljóða.
14. 250826 Skóladagatal 2025-2026
Tillaga að breytingu á skóladagatali þannig að Fullveldishátíð færist frá 27.11.2025 til 04.12.2025. Mál frá 19. fundi mennta- og menningarnefndar sem fór fram 10.11.2025.
Sveitarstjórn samþykkir breytingu á skóladagatali Reykhólaskóla.
Samþykkt samhljóða.
15. 2511003 Samningur um þjónustu vegna aðstoðar við vinnu við
fjárhagsstjórnun.
Þjónustusamningur milli KPMG og Reykhólahrepps vegna þjónustu vegna aðstoðar við vinnu við fjárhagsstjórnun lagður fram til staðfestingar.
Sveitarstjórn samþykkir samninginn samhljóða.
Mál til kynningar:
16. 2511055 100 ára afmæli Flateyjarkirkju
Erindi dags. 04.11.2025 þar sem greint er frá fyrirhugaðri dagskrá vegna 100 ára afmælis Flateyjarkirkju sumarið 2026.
Lagt fram.
Sveitarstjórn fagnar framtakinu.
17. 12510041 Réttir landsins
Erindi dags. 29.10.2025 varðandi verkefnið “Réttir landsins”.
Lagt fram.
18. 2510038 Ágóðahlutur til aðildarsveitarfélaga EBÍ
Erindi Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands dags. 27.10.2025 þar sem greint er frá ágóðahlutagreiðslu til eigenda félagsins árið 2025.
Lagt fram.
19. 2510037 Framtíð verndarsvæðis Breiðafjarðar
Minnisblað frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga og Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi dags. 14.10.2025 varðandi framtíð verndarsvæðis Breiðafjarðar.
Lagt fram.
20. 2510015 Biðtími eftir NPA-þjónustu
Erindi frá Öryrkjabandalagi Íslands dags. 09.10.2025 varðandi biðtíma eftir NPA-þjónustu og svar Velferðarþjónstu Vestfjarða við erindinu dags. 13.10.2025.
Lagt fram.
21. 2509038 Brunavarnir Dala, Reykhóla og Stranda, fundargerðir
Fundargerðir stjórnarfunda Brunavarna Dala, Reykhóla og Stranda bs. sem fóru fram 07.10.2025 og 28.10.2025.
Lagt fram.
22. 2510010 Heilbrigðisnefnd Vestfjarðasvæðis, fundargerðir
Fundargerð Heilbrigðisnefndar Vestfjarðasvæðis sem fór fram 25.09.2025.
Lagt fram.
23. 2505010 Vestfjarðastofa og Fjórðungssamband Vestfirðinga, fundargerðir
Fundargerðir stjórnar Vestfjarðastofu og Fjórðungssambands Vestfirðinga nr. 70 sem fór fram 11.06.2025, nr. 71 sem fór fram 25.09.2025 og nr. 72 sem fór fram 24.09.2025; ásamt fundargerð stjórnar Fjórðungssambands Vestfirðinga sem fór fram 19.08.2025.
Lagt fram.
24. 2509035 Svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða, fundargerðir
Fundargerðir Svæðisskipulagsnefndar Vestfjarða nr. 21. sem fór fram 20.10.2025 og nr. 22. sem fór fram 03.11.2025. Jafnframt er lögð fram svæðisskipulags tillaga ásamt umhverfismati og stöðumati.
Lagt fram.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við tillöguna og telur að fyrri athugasemdum hafi verið mætt í svæðisskipulagstillögunni.
25. 2503008 Samband íslenskra sveitarfélaga, fundargerðir
Fundargerðir stjórnarfunda Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 986 sem fór fram 10.10.2025, nr. 987 sem fór fram 21.10.2025 og nr. 988 sem fór fram 31.10.2025.
Lagt fram.
Fundi slitið 18:41.