Sveitarstjórn
520. fundur sveitarstjórnar Reykhólahrepps,
miðvikudaginn 28. maí 2025, kl. 16.00.
Fundarstaður: Stjórnsýsluhúsið Maríutröð 5a, Reykhólum.
Mætt eru:
Jóhanna Ösp Einarsdóttir, oddviti (JÖE)
Hrefna Jónsdóttir, varaoddviti (HJ)
Margrét Dögg Sigurbjörnsdóttir, aðalmaður (MDS)
Rebekka Eiríksdóttir, aðalmaður (RE)
Vilberg Þráinsson, aðalmaður (VÞ)
Fundargerð ritaði: Ingibjörg Birna Erlingsdóttir
Gestir á fundinum; Hrafnkell Guðnason verkefnastjóri og Kjartan Þór Ragnarsson verkefnastjóri og Michele Santucci sem sat fundinn á Teams.
Fundargerð rituð á tölvu og er 6 blaðsíður.
Oddviti bauð alla velkomna á fundinn og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboð og fundargögn, engar athugasemdir voru gerðar. Þá spurði oddviti eftir öðrum málum á dagskrá, átta mál bárust og var samþykkt að taka þau til afgreiðslu undir liðnum önnur mál.
Dagskrá:
Fundargerðir nefnda sveitarfélagsins.
1. 519. fundur sveitarstjórnar Reykhólahrepps 9. apríl 2025.
Farið yfir fundargerðina og hún samþykkt samhljóða.
2. Skipulags- húsnæðis- og hafnarnefnd 28. maí 2025.
Fundi var frestað.
3. Mennta- og menningarmálanefnd 12. maí 2025.
Farið yfir fundargerðina og hún samþykkt.
4. Svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða 15 – 17. fundur.
Farið yfir fundargerðirnar og þær staðfestar.
Mál til afgreiðslu
1. 2505011 - Ársreikningur Reykhólahrepps 2024, afskriftir
Lögð eru fram trúnaðargögn.
Sveitarstjórn samþykkir afskriftir ókræfra viðskiptakrafna. Samþykkt samhljóða.
2. 2505004 - C.10 Áhrif loftlagsbreytinga og sveitarfélög. Skýrsla verkefnis, viðkvæmnismat og snið af aðgerðaráætlun, frekari aðgerðir.
Sveitarstjórn þakkar Kjartani fyrir góða vinnu í þágu sveitarfélagsins og samstarfsaðilum, þá sérstaklega Magnúsi Frey, fyrir vönduð gögn sem koma til með að nýtast sveitarfélaginu. Sveitarstjórn felur umhverfis- og náttúruverndarnefnd að vinna tillögu að forgangsaðgerðum og sveitarstjóra að koma gögnunum á vef sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.
3. 2505005 - Ástand almannavarna í Reykhólahreppi.
Lögð er fram skýrsla varðstjóra.
3.1 Lyfjakista í Flatey
Erindi frá Framfarafélagi Flateyjar 22. apríl 2025.
Sveitarstjórn þakkar bréfritara fyrir erindið og leggur til að stofnaður verði starfshópur til að fjalla um mögulegar aðgerðir þar á meðal að funda með framfarafélagi Flateyjar vegna lyfjakistu í Flatey. Sveitarstjórn leggur til að hópinn skipi Hrefna Jónsdóttir, Styrmir Sæmundsson og Kjartan Ragnarsson, auk fulltrúa Björgunarsveitarinnar, Framfarafélags Flateyjar og sveitarstjóra.
Samþykkt samhljóða.
4. 2504011 – Jarðhitinn jafnar leikinn, umsókn Flateyjarveitna.
Sveitarstjórn samþykkir samstarf við Flateyjarveitur í verkefninu Jarðhiti jafnar leikinn og veitir Flateyjarveitum umboð til að sækja um styrk. Sveitarfélagið samþykkir að leggja fram mótframlag, allt að 2.500.000, vegna verkefnisins fái það styrk.
Samþykkt samhljóða.
5. 2505006 - Starfslok sveitarstjóra
Ingibjörg Birna Erlingsdóttir starfandi sveitastjóri óskaði eftir starfslokum við sveitarstjórn þann 9. apríl sl. Lagður er fram starfslokasamningur við Ingibjörgu. Ingibjörg lætur af störfum 16. júní n.k.
Sveitarstjórn felur oddvita að undirrita framlagðan starfslokasamning við Ingibjörgu Birnu.
Samþykkt samhljóða.
Sveitarstjórn þakkar Ingibjörgu fyrir að starfa að heilindum og metnaði fyrir sveitarfélagið undanfarin 15 ár. Það hafa verið forréttindi að hafa metnaðarfulla og samviskusama manneskju í leiðtogahlutverki sveitarfélagsins. Sveitarstjórn óskar Ingibjörgu velfarnaðar í næstu verkefnum.
Samþykkt samhljóða.
6. 2505007 - Ráðning sveitarstjóra.
Sveitarstjórn samþykkir að ganga til samninga við Ólaf Þór Ólafsson. Ólafur verði í 50% starfi í júní og júlí og verði svo í 100% starfi frá 1. ágúst 2025. Oddvita falið að útbúa ráðningarsamning og leggja fyrir á næsta fundi.
Sveitarstjórn hlakkar til samstarfsins við Ólaf Þór Ólafsson og býður hann velkominn í Reykhólahrepp.
Samþykkt samhljóða.
Mál til kynningar
7. 2504006 – Syndis, samningur um netöryggi.
Lagður er fram til kynningar undirritaður samingur við Syndis. Innleiðing er langt á veg komin.
- 8. 2505008 - Þakkir frá sambandsþingi UDN.
Lagt fram til kynningar.
9. 2505009 - Fundargerð samstarfsnefndar lögreglu og sveitarfélaga á Vestfjörðum 14.5.25
Fundargerð lögð fram til kynningar.
10. 2503010 - Þinggerð 70. Fjórðungsþings Vestfirðinga og ársreikningur 2024
Lagt fram til kynningar.
11. 2505010 - 68. Fundur stjórnar Vestfjarðastofu.
Lagt fram til kynningar.
12. 2503008 – 973 - 979. Fundur stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.
Önnur mál:
13. 2505011 - Umboð til jarðhitaleitar.
Erindi frá Jóni Guðna Kristinssyni dagsett 26. Maí 2025.
Sveitartjórn felur sveitarstjóra að útbúa umboð sveitarfélagsins til Jóns Guðna og EMH ehf. varðandi styrkumsókn.
Samþykkt samhljóða.
14. 2505012 - Breyting á aðalskipulagi, íbúabyggð í Flatey, skipulagslýsing.
Lögð er fram skipulagslýsing vegna breytingar á Aðalskipulagi Reykhólahrepps 2022-2034 vegna íbúðarbyggðar í Flatey, dags. maí 2025.
Fyrirhuguð breyting felur í sér að breyta skilgreindri landnotkun svæðanna Vesturbúðir (F4) og Þorpsins (F6) í Flatey úr frístundabyggð í íbúðabyggð.
Sveitarstjórn samþykkir framlagða skipulagslýsingu til kynningar sbr. 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða.
15. 2505013 - Breyting á deiliskipulagi í Flatey, lóðastækkun og ný flotbryggja. Hótel Flatey.
Lögð er fram skipulagslýsing vegna breytingar á deiliskipulagi fyrir Þorpið í Flatey á Breiðafirði dags. 25.3.2025. Breytingin felur í sér stækkun lóðanna L139749 (Eyjólfshúsi) og L139769 (Stóra Pakkhúsi og Eyjólfspakkhúsi). Þar að auki er óskað eftir að ný flotbryggja verði staðsett í víkinni Þýskuvör.
Óskað er heimildar til að breyta deiliksipulaginu sbr. 2. mgr. 38. gr. skipulaglaga og jafnframt að skipulagslýsingin verði kynnt sbr. 1. mgr. 31. gr. laganna.
Sveitarstjórn felur Kjartani Ragnarssyni að koma ábendingum frá sveitarstjórn til Hótel Flateyjar ehf.
Samþykkt samhljóða.
16. 2505014 - Óveruleg breyting á Aðalskipulagi Reykhólahrepps 2022-2034 – athafnasvæði við Tröllenda í Flatey.
Lögð er fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Reykhólahrepps 2022–2034 felst í stækkun skipulagssvæðis AT-2 í Flatey í Breiðafirði um 0,1 hektara. Með breytingunni verður landnotkun svæðisins breytt úr óbyggðu svæði í athafnasvæði. Jafnframt eru ákvæði aðalskipulagsins um AT-2 um heimild til reksturs gistiþjónustu rýmkuð.
Breytingartillagan fellur undir málsmeðferð óverulegrar aðalskipulagsbreytingar með tillit til efnis, umfangs og áhrifa hennar, sbr. 2. mgr. 36. gr. skipulaglaga nr. 123/2010. Í 6. kafla greinargerðar breytingartillögu er rökstuðningur fyrir málmeðferðinni.
Sveitarstjórn telur mikilvægt að tillagan fái umfjöllun meðal húseigenda í Flatey og leggur til að skipulagsmál Flateyjar verði rædd á sumarfundi sveitarstjórnar í Flatey eftir verslunarmannahelgi. Jóhönnu Ösp og Kjartani Ragnarssyni falið að finna dagsetningu og undirbúa fundinn.
Samþykkt samhljóða.
17. 2505015 - Umsókn um nám utan lögheimilissveitarfélags.
Sveitarstjórn samþykkir umsóknina fyrir skólaárið 2025-2026 og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram.
Samþykkt samhljóða.
18. 2505016 - Kynning Elysia Tours.
Michele frá Elysia Tours kynnti hugmyndir um sólmyrkvahátíð á Reykhólum. Sveitarstjórn tekur vel í hugmydir Michele. Hrefna Jónsdóttir og Kjartan Ragnarsson munu koma á tengingum við lykilfólk í samfélaginu og þróa verkefnið áfram.
Samþykkt samhljóða.
19. Fundargerð fjallskilanefndar:
Formaður nefndarinnar fór yfir fundargerðina.
Nefndin leggur til að
Leitir í Djúpi verði 6.-7. september.
Leitir á Reykjanesi og í Gufudalssveit verði 12.-14. september.
Leitir frá Naðurdalsá að varnarlínu í Gilsfirði verði 20.-21. september.
Seinni leitir verði helgina 27.-28. September.
Sveitarstjórn samþykkir þessar dagsetningar miðað við gefnar forsendur en hvetur nefndina til að halda sveitarstjórn upplýstri verði forsendubrestur vegna lokunar sláturhússins á Blönduósi. Sveitarstjóra falið að birta dagsetningarnar á vef sveitarfélagsins.
20. 2306007 - Lagning ljósleiðara í þorpinu á Reykhólum:
Hrafnkell Guðnason fór yfir tillögur að skiptingu á milli ríkis, sveitarfélags og íbúa vegna lagningar ljósleiðara í þorpinu á Reykhólum. Lagt er til að stofngjald íbúa fyrir tengingu í þorpinu verði 150.000, ríkisstyrkur nemur 80.000 á tengingur og sveitarfélagið fjármagni mismuninn sem gæti numið allt að 150.000. Kynningarfundur verði boðaður með íbúum fyrrihluta júnímánaðar.
Samþykkt samhljóða.
Farið yfir fundargerð, fundi slitið kl. 19.50