Stjórn hjúkrunarheimilisins Barmahlíðar
Fundargerð
8. fundur
Miðvikudagur 5. maí 2026 kl. 17:00
Haldinn á skrifstofu Reykhólahrepps, Maríutröð 5a, Reykhólum og í gegnum fjarfundarbúnað. Mættir stjórnarmenn:
Árný Huld Haraldsdóttir (ÁHH), formaður
Margrét Dögg Sigurbjörnsdóttir (MDS)
Vilberg Þráinsson (VÞ)
Starfsmenn:
Ólafur Þór Ólafsson (ÓÞÓ), sveitarstjóri.
Helga Garðarsdóttir (HG), afleysingarhjúkrunarforstjóri Barmahlíðar.
Hrefna Thoroddsen (HT), ráðgjafi frá Attentus, tók þátt í fyrsta máli fundarins í gegnum
fjarfundarbúnað.
Dagskrá:
1. Hjúkrunarforstjóri Barmahlíðar
Farið var yfir stöðu mála vegna auglýsingar á starfi hjúkrunarforstjóra Barmahlíðar. Starfið
hefur verið auglýst að nýju og er umsóknarfrestur til 31.05.2026.
2. Starfsemi Barmahlíðar sumarið 2026
Rætt var um skipulag og fyrirkomulag starfseminnar á Barmahlíð sumarið 2026. Stjórn
samþykkir að mánuðina júní, júlí og ágúst verði yfirstjórn heimilisins með þeim hætti að HG
verði áfram afleysingarhjúkrunarforstjóri þar sem ákveðnir starfsmenn sjá um vissa verkþætti
og sveitarstjóri heldur utan um samþykkt reikninga. HG og ÓÞÓ munu vinna nánara skipulag.
3. Breyting dvalarrýma í hjúkrunarrými
Tekin var umræða um möguleika þess að dvalarrýmum á Barmahlíð verði fækkað og
hjúkrunarrýmum fjölgað á móti.
4. Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu
Eftir umræður samþykkir stjórn að fela HG og ÓÞÓ að undirbúa hugsanlega aðild Barmahlíðar
að Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu. Stjórn mun taka málið aftur til umræðu síðar.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:20.