Stjórn hjúkrunarheimilisins Barmahlíðar
Stjórn hjúkrunarheimilisins Barmahlíðar
Fundargerð
5. fundur
þriðjudag 10. febrúar 2026 kl. 16:15
Haldinn á skrifstofu Reykhólahrepps, Maríutröð 5a, Reykhólum.
Mættir stjórnarmenn:
Árný Huld Haraldsdóttir (ÁHH), formaður
Margrét Dögg Sigurbjörnsdóttir (MDS)
Vilberg Þráinsson (VÞ)
Starfsmenn:
Ólafur Þór Ólafsson (ÓÞÓ), sveitarstjóri
Steinunn Helga Agnarsdóttir (SHA), hjúkrunarforstjóri
Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir (ÁSK), skrifstofustjóri
Gestur á fundinum:
Hildur Vilhelmsdóttir (HV), ráðgjafi hjá Attendus
Dagskrá:
1. Starfsmannamál
Starf hjúkrunarforstjóra Barmahlíðar hefur verið auglýst laust til umsóknar og hefur sú auglýsing verið í loftinu frá 19.12.2025. HV fór yfir ferlið við auglýsinguna og þeim viðtökum sem hún hefur fengið, en engar gildar umsóknir hafa borist til þessa.
Eftir umræður var samþykkt að framlengja gildistíma auglýsingarinnar og hafa hana ótímabundna a.m.k. í einhvern tíma. Jafnframt samþykkt að fara yfir texta auglýsingarinnar með það að markmiði að gera auglýsinguna meira aðlaðandi.
2. Skipulag á starfi
Farið var yfir stöðu mála og hvernig hægt er að bregðast við ef ekki tekst að ráða í starf hjúkrunarforstjóra. Verður betur rætt á næsta fundi stjórnarinnar sem fer fram í næstu viku.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:20.