Stjórn hjúkrunarheimilisins Barmahlíðar
Fundargerð
4. fundur
Fimmtudagur 9. desember 2025 kl. 16:30.
Haldinn á skrifstofu Reykhólahrepps, Maríutröð 5a, Reykhólum.
Mættir stjórnarmenn:
Margrét Dögg Sigurbjörnsdóttir (MDS), varaformaður, sem stýrði fundi
Rebekka Eiríksdóttir (RE)
Vilberg Þráinsson (VÞ)
Starfsmenn:
Ólafur Þór Ólafsson (ÓÞÓ), sveitarstjóri
Dagskrá:
1. Starfsmannamál.
Hjúkrunarforstjóri hefur sagt starfi sínu lausu með erindi dags. 27.11.2025. Uppsögn mun taka gildi frá og með 01.03.2026. Jafnframt hefur viðkomandi sagt upp íbúðarhúsnæði sem hún hefur haft á leigu hjá sveitarfélaginu í samræmi við gildandi leigusamning.
Stjórn Barmahlíðar þakkar Steinunni Agnarsdóttur, hjúkrunarforstjóra, góð störf fyrir Barmahlíð og óskar henni velfarnaðar í þeim verkefnum sem hún mun taka sér fyrir hendur.
Stjórn samþykkir að starf hjúkurnarforstjóra verði auglýst laust til umsóknar sem fyrst. Sveitarstjóra og VÞ falið að koma auglýsingaferlinu af stað og leita aðstoðar hjá ráðningarskrifstofu í því verkefni.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:25.