Fara í efni

Skipulags- hafnar- og húsnæðisnefnd

33. fundur 30. júní 2026 kl. 17:00 - 18:30 Sjórnsýsluhúsið Maríutröð 5a
Nefndarmenn
  • Björn Samúelsson aðalmaður
  • Árný Huld Haraldsdóttir aðalmaður
  • Embla Dögg B. Jóhannsdóttir varamaður í fjarveru Vésteins Tryggvasonar
Starfsmenn
  • Grettir Örn Ásmundsson
  • Hlynur Torfi Torfason
  • Kjartan Þór Ragnarsson
Fundargerð ritaði: Árný Huld Haraldsddóttir Oddviti

Fundargerð

33. fundur skipulags-, hafnar- og húsnæðisnefndar Reykhólahrepps

30. júní 2026, kl.17:00

Fundarstaður: Stjórnsýsluhúsið Maríutröð 5a, Reykhólum.

Mætt:

Björn Samúelsson aðalmaður

Árný Huld Haraldsdóttir aðalmaður

Embla Dögg B. Jóhannsdóttir varamaður í fjarveru Vésteins Tryggvasonar

 

Einnig sátu fundinn:

Grettir Örn Ásmundsson

Hlynur Torfi Torfason

Kjartan Þór Ragnarsson

 

ÁHH ritaði fundargerð

 

ÁHH bauð alla velkomna á fundinn. Kannaði hvort einhverjar athugasemdir væru við fundarboð og fundargögn. Engar athugasemdir bárust. Þá var kallað eftir öðrum málum á dagskrá, 2 mál bárust. Samþykkt að taka þau fyrir undir liðnum önnur mál.

 

Dagskrá:

Mál til afgreiðslu

1.   Kosning formanns skipulags-, hafnar- og húsnæðisnefndar

Embla Dögg leggur til að Árný Huld Haraldsdóttir verði formaður nefndarinnar.

Samþykkt samhljóða

Árný leggur til að Björn Samúelsson verði varaformaður nefndarinnar.

Samþykkti samhljóða.

 

2.   Mál 2606026 – Umsókn um byggingarleyfi að Kletti, 74,8m2 frístundahús

Nefndin leggur til við sveitarstjórn að samþykkja umsókn um byggingarleyfi, með fyrirvara um að mótvægisaðgerðum í kafla 1.4 í deiliskipulagi sé fylgt eftir. Byggingafulltrúa falið að hafa samband við Minjavörð.

Samþykkt samhljóða.

3.   Mál 2606039 – Umsókn um byggingarleyfi að Bjarkalundi, 4 stk 15.3 m2 gistihús

Nefndin leggur til við sveitarstjórn að samþykkja umsókn um byggingaleyfi, með fyrirvara um gildistöku deiliskipulags.

Samþykkt samhljóða.

4.   Mál 2603042 – Umsókn um stofnun lóðar í Berufirði. Staðfesting merkjalýsingar

Nefndin leggur til við sveitarstjórn að staðfesta merkjalýsingu vegna lóðar.

Samþykkt samhljóða.

5.   Mál 2606042 – Umsókn um úthlutun á leiguhúsnæði á vegum sveitarfélags

Nefndin leggur til að eftirfarandi íbúðum verði úthlutað til eftirfarandi:

Íbúð á efri hæð í skóla - Regnbogalitir- í 6 vikur vegna málningarvinnu fyrir Reykhólahrepp,

Hellisbraut 66A - Ólafía Anna Þorvaldsdóttir

Samþykkt samhljóða.

6.   Mál 2601012 – Umsókn um leyfi til uppsetningar fuglaskiltis (Furðufuglar)

Nefndir leggur til að sveitarstjórn samþykki uppsetningu á skiltinu. Staðsetning verður fundinn í samstarfi við Furðufugla.

Samþykkt samhljóða.

Mál til kynningar

7.   Mál 2606040 – Athugun LHG á ástandi leiðar- og legumerkjum í Flatey

Nefndin leggur til við sveitarstjórn að finna leiðir til að sinna viðhaldi leiðarmerkja og þau séu uppfærð í samræmi við hvernig þeim er lýst í vitaskrá. Sveitarstjóra verði falið að kanna greiðsluþáttöku vegagerðarinnar vegna þess.

Samþykkt Samhljóða

Önnur mál: Löglega upp borin

8.   Umsókn um heimild itl að vinna deiliskipulag fyrir Eyri í Kollafirði - Reykhólahreppi

Lagt fram erindi Jóns Kristins Snæhólm, í umboði móður sinnar, dags. 19. Júni, þar sem óskað er heimildar til að hefja vinnu við deiliskipulag samkvæmd 38. grein skipulagslaga.

Nefndin leggur til við sveitarstjórn að samþykkja umsóknina með fyrirvara um staðfestingu allra landeiganda jarðarinnar.

Samþykkt samhljóða.

9.   Ökutæki í Flatey

Erindi lagt fram er varðar geymslu ökutækja í Flatey.

Nefndin tekur vel erindið. Nefndin leggur til að ökutækjum, öðrum en landbúnaðartækjum, verði lagt við “brennuna” við norðurhluta Tröllenda, þar til varanleg lausn verður fundin á geymslu ökutækja.

Samþykkt samhljóða.

Fleira ekki gert og fundi sliti kl. 18:30

Fundargerð undirrituð rafrænt