Skipulags- hafnar- og húsnæðisnefnd
32. Fundur í skipulags-, húsnæðis- og hafnarnefnd Reykhólahrepps, miðvikudaginn 6. maí 2026 kl. 14.00.
Mætt: Jóhanna Ösp Einarsdóttir, Margrét Sigurbjörnsdóttir og Vésteinn Tryggvason. Einnig sátu fundinn Hrafnkell Guðnason verkefnisstjóri og Hlynur Torfason skipulagsfulltrúi.
Formaður spurði hvort að einhverjar athugasemdir væru vegna boðun fundar eða fundargagna. Engar athugasemdir bárust. Þá spurði formaður hvort að einhver önnur mál hefðu borist fyrir fundinn. Eitt mál barst og var samþykkta að taka það undir liðnum önnur mál.
Dagskrá:
Mál til afgreiðslu:
1. Fundargerð skipulags- húsnæðis- og hafnarnefndar 4. mars 2026.
Fundargerðin lögð fram.
2. 2604029 Umsókn um stöðuleyfi - Þörungaverksmiðjan
Nefndin staðfestir útgefið stöðuleyfi.
Samþykkt samhljóða.
3. 2604023 Hitastigsholur í Flatey framkvæmdaáform - Flateyjarveitur
Skipulagsfulltrúi telur framkvæmdina minniháttar og því ekki þörf á framkvæmdarleyfi. Framkvæmdin er ekki innan verndarsvæðis og hefur ekki áhrif á verndarsvæði í byggð. Skipulagsnefnd fagnar fyrirhuguðum áformum.
Samþykkt samhljóða.
4. 26033013 Áskorun til sveitarstjórna - Siglingasamband Íslands
Skipulags- húsnæðis- og hafnarnefnd tekur undir sjónarmið erindisins. Nefndin felur sviðsstjóra að koma erindinu áfram til verkefnastjóra Fjársjóðs fjalla og fjarða og vísar erindinu til sveitarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
5. 2603036 Afmörkun hafnarsvæða – Innviðaráðuneytið
Skipulags- húsnæðis- og hafnarnefnd felur sviðsstjóra að fylgja erindinu eftir með hafnarstjóra og skipulagsfulltrúa.
Samþykkt samhljóða.
6. 2604040 Stofnun lóðar að Skálmarnesmúla, Hádegisklettur – Helgi Þorvaldsson
Skipulags- húsnæðis- og hafnarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun lóðar.
Samþykkt samhljóða.
7. 2601005 Stofnun lóðar að Hafrafelli 3, Hafrakot 3 – Erla Ingibjörg Guðjónsdóttir
Skipulags- húsnæðis- og hafnarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun lóðar.
Samþykkt samhljóða.
8. 2601004 Stofnun lóðar að Hafrafelli 3, Hafrakot 2 – Sesselja Guðrún Guðjónsdóttir
Skipulags- húsnæðis- og hafnarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun lóðar.
Samþykkt samhljóða.
9. 2601003 Stofnun lóðar að Hafrafelli 3, Brekkukot 3 – Gunnar Guðjónsson
Skipulags- húsnæðis- og hafnarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun lóðar.
Samþykkt samhljóða.
10. 2601002 Stofnun lóðar að Hafrafelli 3, Brekkukot 2 – Hafliði Guðmundur Guðjónsson
Skipulags- húsnæðis- og hafnarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun lóðar.
Samþykkt samhljóða.
Mál til kynningar:
11. 2604028 Minnisblað vegna vsk. á skemmtiferðaskip – Samband íslenskra sveitarfélaga
Lagt fram til kynningar.
12. 2604020 Yfirlit siglingaverndar 2026 - Samgöngustofa
Lagt fram til kynningar.
13. 2404000 Svæðisskipulag Vestfjarða 2025-2050, lokagögn til kynningar
Lagt fram til kynningar.
14. 2604043 Aðalskipulag Reykhólahrepps vegna Bjarkalundar, staðfesting á breytingu til kynningar
Lagt fram til kynningar.
Önnur mál:
15. 2406019 Aðalskipulag 2022-2034 breyting Króksfjarðarnes – Viðbrögð HMS - HMS
Búið er að uppfæra öll gögn og koma til skila. Beðið er eftir að HMS staðfesti breytinguna og auglýsi í B deild stjórnartíðinda.
Skipulags-, húsnæðis- og hafnarnefnd fagnar þessum áfanga í breytingu á aðalskipulagi Reykhólahrepps.
Samþykkt samhljóða.
Formaður nefndarinnar þakkar starfsfólki og nefndarfólki fyrir gott samstarf á kjörtímabilinu.
Fundi slitið klukkan 14:45