Skipulags- hafnar- og húsnæðisnefnd
31. fundur í skipulags-, húsnæðis- og hafnarnefnd Reykhólahrepps
miðvikudaginn 4.mars 2026 kl. 15.00.
Fundarstaður: Stjórnsýsluhúsið Maríutröð 5a, Reykhólum.
Mætt: Jóhanna Ösp Einarsdóttir, Vésteinn Tryggvason og Margrét Sigurbjörnsdóttir. Einnig sátu fundinn Hrafnkell Guðnason sviðsstjóri, Grettir Ásmundsson byggingafulltrúi og Hlynur Torfason skipulagsfulltrúi.
Formaður setti fundinn og spurði hvort einhverjar athugasemdir væru við boðun eða fundargögn, engar athugasemdir bárust. Einnig spurði formaður hvort einhver önnur mál lægju fyrir fundinum, eitt mál barst og samþykkt var að taka það á dagskrá og þá var gengið til dagskrár.
Dagskrá:
Mál til afgreiðslu:
1. Fundargerð skipulags- húsnæðis- og hafnarnefndar 4. febrúar 2026
Fundargerðin lögð fram.
2. 2406019 Aðalskipulag 2022-2034 breyting Króksfjarðarnes - Afgreiðsla Skipulagsstofnunar – Skipulagsstofnun
Farið yfir afgreiðslubréf skipulagsstofnunar og þær lagfæringar sem gerðar hafa verið. Skipulags-, húsnæðis- og hafnarnefnd telur að brugðist hafi verið við ábendingum skipulagsstofnunar og leggur til við sveitarstjórn að samþykkja uppfærða tillögu til staðfestingar samkvæmt 32. grein skipulagslaga númer 123/2010.
Samþykkt samhljóða.
3. 26002026 Tilkynning um áætlun á eignarmörkum fasteigna – HMS
Nefndin vísar erindinu til sveitarstjórnar og telur mikilvægt að rýna áætlunina út frá hagsmunum sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.
Mál til kynningar:
4. 2509039 Umsókn um byggingarleyfi við Vertshús í Flatey - Umsögn Minjastofnunar Íslands
Lagt fram til kynningar.
5. Fundargerð 480. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands
Lagt fram til kynningar.
Önnur mál:
6. Suðurbraut - staðsetning á mön
Skipulags-, húsnæðis- og hafnarnefnd telur mikilvægt að taka tillit til uppbyggingar við Kúatjörn sem þegar hefur átt sér stað. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram miðað við umræður á fundinum. Vísað til deiliskipulagsvinnu.
Samþykkt samhljóða.
Fundi slitið klukkan 15:46