Skipulags- hafnar- og húsnæðisnefnd
30. fundur í Skipulags-, húsnæðis- og hafnarnefnd Reykhólahrepps
miðvikudaginn 04. febrúar 2026 kl. 14.00.
Fundarstaður: Stjórnsýsluhúsið Maríutröð 5a, Reykhólum.
Mætt: Jóhanna Ösp Einarsdóttir og Margrét Sigurbjörnsdóttir. Einnig sátu fundinn Hrafnkell Guðnason sviðsstjóri, Grettir Ásmundsson byggingafulltrúi,
Vésteinn Tryggvason boðaði forföll og ekki tókst að boða varamann í hans stað.
Formaður setti fundinn og spurði hvort einhverjar athugasemdir væru við boðun eða fundargögn, engar athugasemdir bárust. Einnig spurði formaður hvort einhver önnur mál lægju fyrir fundinum, engin mál bárust og þá var gengið til dagskrár.
Dagskrá:
Mál til afgreiðslu:
1. Fundargerð skipulags- húsnæðis- og hafnarnefndar 3.desember 2025
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
2. 2601011 Ósk um breytingu á deiliskipulagi í Bjarkalundi – Landslag
Lagt fram erindi Landslags dags. 28. janúar 2026 um óverulega breytingu á Aðalskipulagi Reykhólahrepps 2022-2034 í Bjarkarlundi (VÞ10), sbr. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 1237201 og tillaga að breytingu á deiliskipulagi Bjarkarlundar, sbr. 1. mgr. 43. gr. laganna.
1. Óverulega aðalskipulagsbreytingin felst í aukinni heimild fyrir gistingu á verslunar- og þjónustusvæði Bjarkarlundar VÞ10 þar sem nú er hótel og tjaldstæði. Bætt er við heimild fyrir 25 gisti hýsum innan svæðisins. Stærð svæðis og afmörkun er óbreytt. Tillagan er ekki talin hafa teljandi umhverfisáhrif og geta fallið undir málsmeðferð um óverulega breytingu aðalskipulags.
2. Tillaga að breytingu deiliskipulags Bjarkarlundar felur í sér að fjölga gistihýsum í útleigu úr 9 í 25. Heimil stærð gistihýsa er allt að 23 m2 og hámarks mænishæð er 3,5m. Fallið er frá að staðsetja 3 hús norðan við hótelið, heldur verða þau öll á röskuðu svæði nærri hótelinu. Aðkoma að hótelinu og bílastæði uppfærð í samræmi við núverandi stöðu ásamt staðsetningu á orkustöðvum. Byggingarreitir rýmkaðir á óbyggðum lóðum við Stekkjalund, en heimilað byggingarmagn er óbreytt.
Óveruleg aðalskipulagsbreyting samþykkt. Skipulagsfulltrúa falið að senda tillöguna til staðfestingar Skipulagsstofnunar.
Tillaga að breytingu deiliskipulags Bjarkalundar samþykkt til auglýsingar. Endanleg afgreiðsla deiliskipulags verður tekin eftir að aðalskipulagsbreyting hefur verið staðfest af Skipulagsstofnun.
Samþykkt samhljóða.
2. 2601023 Umsókn um byggingarleyfi fyrir gistihúsi í Djúpadal - Leifur Zakarías Samúelsson
Erindi frá Leifi Zakaríasi Samúelssyni dagsett 21. janúar 2026.
Skipulags-, hafnar- og húsnæðisnefnd felur byggingafulltrúa að vinna málið áfram og veita byggingarleyfi að öllum skilyrðum uppfylltum. Ef frekari áform eru um uppbyggingu ferðaþjónustu þá hvetur nefndin til að svæðið verði deiliskipulagt.
Samþykkt samhljóða.
3. 2601034 Kaup félagsins Úr sveitinni ehf. á Ingunnarstöðum, beiðni um umsögn - Atvinnuvegaráðuneytið
Erindi frá Atvinnuvegaráðuneytinu dagsett 2. febrúar 2026. Sérstaklega er óskað eftir sjónarmiðum sveitarfélagsins um það hvort fyrirhuguð ráðstöfun fasteignar og áformuð nýting hennar samrýmist skipulagsáætlunum Reykhólahrepps. Enn fremur hvort áformuð nýting fasteignar sé að mati sveitarfélagsins í samræmi við stærð, staðsetningu og ræktunarskilyrði hennar, samkvæmt 3. málsl. 8. mgr. 10. gr. a skulu umsagnir liggja fyrir eins skjótt og verða má.
Skipulags-, hafnar- og húsnæðisnefnd telur að áform um nýtingu jarðarinnar samræmist aðalskipulag sveitarfélagsins. Jafnframt telur nefndin að áformuð nýting fasteignar sé í samræmi við stærð, staðsetningu og ræktunarskilyrði hennar.
Skipulags-, hafnar og húsnæðisnefnd leggur til við sveitarstjórn að skrifa jákvæða umsögn varðandi erindið.
Samþykkt samhljóða.
4. 2601012 Umsókn um leyfi fyrir uppsetningu fuglaskiltis - Furðufuglar
Erindi frá Guðjóni D. Gunnarssyni dagsett 9. janúar 2026.
Skipulags-, hafnar og húsnæðisnefnd leggur til við sveitarstjórn að taka vel í erindið og að útlit og uppsetning verði unnin í samvinnu við framkvæmda- og skipulagssvið sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.
5. 2602005 Stofnframlög HMS 2026 - Húsnæðis og mannvirkjastofnun
Erindi frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun dagsett 2. febrúar 2026 þar sem vakin er athygli á auglýsingu um umsóknir vegna stofnframlaga til byggingar eða kaupa á almennum íbúðum.
Skipulags-, hafnar og húsnæðisnefnd telur ekki tilefni til að sækja um stofnframlög að þessu sinni en vísar erindinu til sveitarstjórnar.
Samþykkt samhljóða
6. Umsagnarbeiðni - Eyrarkláfur, Ísafirði - Skipulagsgátt
Skipulags-, hafnar- og húsnæðisnefnd leggur til við sveitarstjórn að gera ekki athugasemd við tillöguna.
Samþykkt samhljóða.
Mál til kynningar:
7. 2601031 Boð um þátttöku í samráði - Drög að frumvarpi til laga um leiðarmerki og öryggi siglinga - Innviðaráðuneytið
Lagt fram til kynningar.
8. 2601019 Framtíðin og íslenskar hafnir - skýrsla frá Sambandi sveitarfélaga fyrir hönd Hafnasambands Íslands
Lagt fram til kynningar.
9. 2601028 Fundargerð 479 - Hafnasambands Íslands
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið klukkan 15:01