Skipulags- hafnar- og húsnæðisnefnd
Fundur í skipulags-, húsnæðis- og hafnanefnd Reykhólahrepps,
mánudaginn 07. apríl 2025 kl. 14.00
Fundarstaður: Stjórnsýsluhúsið Maríutröð 5a, Reykhólum.
Mætt: Jóhanna Ösp Einarsdóttir, Margrét Dögg Sigurbjörnsdóttir og Vésteinn Tryggvason. Einnig sátu fundinn Hlynur Torfi Torfason skipulagsfulltrúi, Hrafnkell Guðnason og Kjartan Ragnarsson. Grettir Ásmundsson boðaði forföll.
Dagskrá:
Mál til afgreiðslu:
1. Fundargerð skipulags- húsnæðis- og hafnarnefndar mars 2025
Farið yfir fundargerðina og hún samþykkt samhljóða.
2. 2503016 - Umsókn um lóð undir vindmyllu til raforkuframleiðslu í Flatey - Orkubú Vestfjarða
Lögð fram umsókn um lóð frá Orkubúi Vestfjarða dagsett 21. mars 2025.
Skipulags-, húsnæðis- og hafnarnefnd fagnar áformum Orkubús Vestfjarða um orkuskipti í Flatey og vísar málinu til frekari umræðu í samráðshóp sem nú er að störfum með aðilum frá Reykhólahreppi, Framfarafélags Flateyjar, Flateyjarveitum, Bláma og Orkubúi Vestfjarða.
Samþykkt samhljóða.
3. 2503017 - Umsókn um lóð undir sólarorkuver til raforkuframleiðslu í Flatey - Orkubú Vestfjarða.
Lögð fram umsókn um lóð frá Orkubúi Vestfjarða dagsett 19. mars 2025.
Skipulags-, húsnæðis- og hafnarnefnd fagnar áformum Orkubús Vestfjarða um orkuskipti í Flatey og vísar málinu til frekari umræðu í samráðshóp sem nú er að störfum með aðilum frá Reykhólahreppi, Framfarafélags Flateyjar, Flateyjarveitum, Bláma og Orkubúi Vestfjarða.
Samþykkt samhljóða.
4. 2503019 – Umsókn um byggingarleyfi - Nordur & co ehf.
Lögð fram umsókn um breytingu á byggingarleyfi frá Nordur & co ehf dagsett 24. mars 2025.
Skipulags-, húsnæðis- og hafnarnefnd felur byggingafulltrúa að grendarkynna breytingu á byggingarleyfi og ganga frá leyfinu í kjölfarið.
Samþykkt samhljóða.
5. 2406019 - Breyting á aðalskipulagi - Króksfjarðarnes
Hlynur Torfason fór yfir vinnslutillögu aðalskipulagsbreytingu í Króksfjarðarnesi.
Skipulags-, húsnæðis- og hafnarnefnd leggur til við sveitarstjórn að vinnslutillaga fari í almenna kynningu skv. 2. mgr. 30. greinar skipulagslaga 123/2010. Nefndin telur mikilvægt að haldinn sé opinn íbúafundur til að kynna vinnslutillöguna.
Samþykkt samlhjóða.
6. 2504001 - Viljayfirlýsing frá fundi Framfarafélags Flateyjar.
Lögð fram viljayfirlýsing um lögheimilisskráningu í þorpinu í Flatey frá aðalfundi Framfarafélags Flateyjar dagsett 15. mars 2025.
Skipulags-, húsnæðis- og hafnarnefnd leggur til við sveitarstjórn að hefja vinnu við skipulagslýsingu um breytta landnotkun í Flatey ásamt greiningu á áhrifum breyttrar landnotkunar. Mikilvægt er að Framfarafélag Flateyjar sé með í þeirri vinnu.
Samþykkt samhljóða.
7. 3604002 - Bátalægi á Grónesi
Erindi dagsett 23. mars 2025.
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að fela skipulagsfulltrúa að veita framkvæmdaleyfi með fyrirvara um jákvæða umsögn Breiðafjarðarnefndar.
Samþykkt samhljóða.
Mál til kynningar:
8. 2205012 - Kúalaug - kynning á lokahönnun, niðurstöðum útboðs og stöðu verkefnis
Hrafnkell Guðnason kynnti lokahönnun og niðurstöður útboðs. Tilboð bárust frá Geirnaglanum ehf. og Grjótgás ehf.
Lagt fram til kynningar
Önnur mál:
9. Lagnaleið - Erindi frá Orkubúi Vestfjarða
Erindi frá Orkubúi Vestfjarða dagsett 7. apríl 2025.
Skipulags-, húsnæðis- og hafnarnefnd leggur til við sveitarstjórn að fela skipulagsfulltrúa að útbúa framkvæmdarleyfi.
Samþykkt samhljóða.
Fundi slitið 15:59.