Öldungaráð
Fundur öldungaráðs Dala, Stranda og Reykhólahrepps.
Viðstaddir voru:
Karl Kristjánsson, Finnbogi Jónsson, Ásta Ólafsdóttir, Þórunn Einarsdóttir, Hallfríður Sigurðardóttir, Ragnheiður Ingimundardóttir og Hlíf Hrólfsdóttir á staðnum og Guðlaug Kristinsdóttir á TEAMS.
Hlíf Hrólfsdóttir ritar fundargerð:
Dagskrá.
Ragnheiður Ingimundardóttir vill opna fundin með tillögu um að Strandabyggð dragi sig út úr sameiginlegu öldungaráði, og að í stað þess verði stofnað sér öldungaráð fyrir Strandabyggð, Kaldrananeshrepp og Árneshrepp, en Reykhólahreppur og Dalabyggð séu saman í öldungaráði.
Kosning formanns, varaformanns og ritara.
Ásta Ólafsdóttir er kjörin fomaður. (Félag eldri borgara dala og reykhóla)
Finnbogi Jónsson er kjörin varaformaður (félag eldri borgara dala og reykhóla)
Ragnheiður Ingimundardóttir ( Strandabyggð)
Endurskoðun erindisbréfs.
Endurskoðun erindsbréfs er frestað.
Verkefni framundan.
Að öldungaráð setji upp einhverskonar spurningarlista sem hægt er að leggja fyrir sveitarstjórnir til þess að skoða hvar hópurinn 67 ára og eldri standi í hverju og einu sveitarfélagi, og hvaða þjónusta er í boði.
Dalabyggð tekur þátt í verkefninu Gott að eldast. Önnur sveitarfélög hafa ekki tekið þátt í þessu. Ef kemur umsókn um þjónustu, þá er teymi sem fer í að meta hver þjónustuþörf einstaklinga er. Teymið samanstendur af hjúkrunarfræðingum, heimaþjónustu, og iðjuþjálfa.
Það þarf að athuga hvernig hægt er að sækja inn í verkefnið frá þeim sveitarfélögum sem ekki eru inn í verkefninu núna.
Halla segir frá því að í flugstöðinni á sunnudögum, verði farið að vera með örnámskeið í lok samveru. Hafa bara stutta fræðslu. Þetta er eitthvað sem hægt er að gera í ýmsum tilfellum.
Það þarf að setja allar helstu upplýsingar saman í bækling sem er aðgengilegur fyrir alla og einnig þarf að dreifa slíkum bæklingi inn á heimili eldri borgara.
Húsnæðismál er eitthvað sem þarf að skoða.
Eldri borgarar eru líka mikilvægir samfélagsþegnar, þeir leggja mikið til samfélagsins.
Aðgengi að gögnum í gegnum netið, með rafrænni auðkenningu, umræða
Önnur mál.
Tillaga frá Ástu Ólafsdóttir
Tillaga um upplýsingagjöf um þjónustu við eldri íbúa í Reykhólahreppi, Strandabyggð og Dalabyggð.
Ég legg til að sveitarfélögin birti á heimasíðum sveitarfélaganna, á aðgegnilegum og sýnilegum stað yfirlit yfir þá þjónustu og úrræði sem standa íbúum 67 ára og eldri til boða.
Greinargerð:
Mikilvægt er að eldri íbúar hafi greiðan aðgang að upplýsingum um þá þjónustu sem sveitarfélagið býður upp á. Með því að birta skýrt og aðgengilegt yfirlit á heimasíðum sveitarfélagana yrði auðveldrar fyrir íbúa að kynna sér réttindi sín og sækja um þá þjónustu sem í boði er.
Slík upplýsingagjöf myndi einnig draga úr misskilningi um hvaða þjónusta stendur til boða og hvaða þjónusta fellur utan verkefna sveitarfélagsins. Það gæti sparað bæði íbúum og velferðarnefnd og félagsmálastjóra tíma og aðveldað samskipti og afgreiðslu erinda.
Markmið tillögunnar er að bæta aðgengi að upplýsingum, efla þjónustu við eldri íbúa og stuðla að auknu gagnsæi í starfsemi sveitarfélagana.
Ég legg til að sveitarstjórnir taki tillöguna til skoðunar og meti hvernig best sé að birta þessar upplýsingar á heimasíðu sveitarfélagana.
Tillaga frá Ástu Ólafsdóttur
Tillaga að breytingu á reglum um snjómokstur í Reykhólahreppi.
Ég legg til að ákvæði í reglum Reykhólahrepps um snjómokstur verði breytt.
Núgildandi ákvæði:
” Heimreiðar að bæjum þar sem er föst búseta eru mokaðar án endurgjalds tvisvar á almanakárinu og skulu ábúendur hafa samband við sveitarstjóra sé moksturs óskað.”
Tillaga að nýju ákvæði:
” Heimreiðar að bæjum þar sem er föst búseta 67 ára og eldri eða fatlaðra einstaklinga eru mokaðir eftir þörfum án endurgjalds og skulu ábúendur hafa samband við sveitarstjóra sé moksturs óskað.”
Greinargerð:
Markmið tillögunnar er að auka öryggi og aðgengi þeirra íbúa sem vegna aldurs eða fötlunar eiga erfiðara með að sjá sjálfir um snjómokstur eða útvega slíka þjónustu. Með breytingunni væri betur komið til móts við þarfir þeirra sem eru viðkvæmastir fyrir einangrun og skertu aðgengi yfir vetrarmánuðina.
Þá styður tillagan einnig við jafnræði í þjónustu sveitarfélagsins með því að taka mið af aðstæðum þeirra íbúa sem hafa mesta þörf fyrir aðstoð. Einnig styður tillagan markmið að aldraðir búa á sínum heimilum sem lengst af æfinni.
Fundargerð lesin upp og samþykkt
Fundi slitið 15.47
Hlíf Hrólfsdóttir