Mennta- og menningarmálanefnd
Fundur haldinn á skrifstofu Reykhólahrepps að Maríutröð 5a, Reykhólum, miðvikudaginn 6. maí 2026.
Fundur settur kl. 11:00.
Nefndarfólk:
Árný Huld Haraldsdóttir (ÁHH), formaður.
Vilberg Þráinsson (VÞ).
Steinunn Rasmus (SR)
Áheyrnarfulltrúar:
Anna Margrét Tómasdóttir (AMT), skólastjóri Reykhólaskóla.
Marie-Suzann Zeise (MSZ), lýðheilsufulltrúi.
Kristrún Birgisdóttir (KB), skólastjóri Ásgarðsskóla, skóla í skýjunum, í gegnum fjarfundarbúnað
Íris Ósk Sigþórsdóttir (ÍÓS), fulltrúi starfsfólks leikskóla í gegnum fjarfundarbúnað.
Kolfinna Ýr Ingólfsdóttir (KÝI), fulltrúi kennara.
Ólafur Þór Ólafsson (ÓÞÓ), sveitarstjóri, ritaði fundargerð.
Fundargerðin er rituð á tölvu og er þrjár blaðsíður.
Formaður bauð alla velkomna á fundinn, kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboð og fundargögn, engar athugasemdir bárust. Þá var athugað hvort væru önnur mál á dagskrá og óskaði ÓÞÓ eftir að eitt mál yrði lagt fram til kynningar. Var það samþykkt og verður það 12. mál þessa fundar.
Fundargerðir:
1. Fundargerð 23. fundar mennta- og menningarmálanefndar 13. apríl 2026
Farið yfir fundargerð nefndarinnar frá 13.04.2026.
Mál til afgreiðslu:
2. Vinnuskóli 2026 – 2603009
Farið var yfir drög að skipulagi vinnuskóla fyrir árið 2026. MSZ fylgdi málinu eftir. Áður á dagskrá á 23. fundi 13.04.2026.
ÁHH lagði fram tillögu um að nemendum verði boðið upp á tímafjölda í vinnuskóla sem er sambærilegur við það sem var á árinu 2025, sem eru eru samtals yfir sumarið 100 klst. fyrir þau sem hafa klárað 8. bekk, 120 klst. fyrir þau sem hafa klárað 9. bekk og 150 klst. fyrir þau sem hafa klárað 10. bekk og að 18 ára aldri.
Mennta- og menningarmálanefnd staðfestir framlagða tillögu samhljóða. Nefndin leggur áherslu á að starfsemi vinnuskólans verði kynnt sem fyrst.
3. Grettislaug sumarið 2026 – 2603009
Rætt um starfsemi Grettislaugar sumarið 2026. Áður á dagskrá 23. fundar mennta- og menningarmálanefndar sem fór fram 13.04.2026. MSZ fylgdi málinu eftir.
Lagt er til að sundlaugin verði opin kl. 09:00 til kl. 21:00 alla daga vikunnar frá 1. júní til 31. ágúst sumarið 2026. Starfsfólk sundlaugar mun jafnframt sinna þjónustu við tjaldsvæði sveitarfélagsins.
Mennta- og menningarmálanefnd samþykkir framlagða tillögu samhljóða.
4. Sumarnámskeið 2026 - 2603011
Rætt um sumarnámskeið á vegum Reykhólahrepps 2026. Áður á dagskrá 23. fundar mennta- og menningarmálanefndar sem fór fram 13.04.2026. MSZ fylgdi málinu eftir.
Lagt er upp með að boðið verði upp á hádegishressingu á námskeiðinu. Jafnframt að endanleg ákvörðun um verð fyrir sumarnámskeið verði tekin á fundi sveitarstjórnar sem fer fram 13.05.2026.
Mennta- og menningarmálanefnd samþykkir ofangreint samhljóða.
5. Reykhóladagar 2026 – 2603011
Rætt um Reykhóladaga 2026. ÓÞÓ fylgdi málinu eftir. Undirbúningur er í gangi en dagskrá ekki fullmótuð.
Málið rætt.
6. Menntastefna Reykhólahrepps - 2605007
Lagt fram minnisblað frá sveitarstjóra dags. 02.05.2026 þar sem lagt er til að vinna við nýja menntastefnu Reykhólahrepps verði hafin og verkefninu vísað til vinnslu hjá mennta- og menningarmálanefnd á nýju kjörtímabili.
Mennta- og menningarmálanefnd samþykkir framlagða tillögu og vísar henni til vinnslu hjá nýrri mennta- og menningarmálanefnd á nýju kjörtímabili.
7. Haustþing Kennarasambands Vestfjarða - 2505001
Erindi frá Kennarasambandi Vestfjarða dags. 01.05.2026 varðandi Haustþing Kennarasambands Vestfjarða 2026 þar sem óskað er eftir styrk frá sveitarfélaginu vegna þingsins.
Málið rætt. Ákvörðun varðandi styrk er vísað til sveitarstjórnar.
Mál til kynningar:
8. Sveitarstjórnakosningar 2026 og lýðræðisþátttaka barna – 2604031
Erindi frá Umboðsmanni barna dags. 13.04.2026 varðandi krakkakosningar Umboðsmanns barna samhliða sveitarstjórnarkosningum 2026.
Lagt fram.
9. Upplýsingagjöf skólastjóra Reykhólaskóla, skólaárið 2025-2026 – 2508025
AMT fór yfir og kynnti stöðu mála í starfsemi Reykhólaskóla. Sérstaklega var farið yfir stöðu starfsmannamála og stöðu á þeim stefnum og áætlunum sem gilda fyrir Reykhólaskóla.
Upplýsingagjöfin var rædd.
10. Upplýsingagjöf skólastjóra Ásgarðsskóla, Skóla í skýjunum – 2509041
KB fór yfir og kynnti stöðu mála í starfsemi Ásgarðsskóla, Skóla í skýjunum.
Upplýsingagjöfin var rædd.
11. Íslensku menntaverðlaunin – 2604039
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 17.04.2026 þar sem kallað er eftir tillögum að íslensku menntaverðlaununum.
Lagt fram.
12. Endurmenntunarsjóður grunnskóla 2026 - 2602004
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 05.05.2026 þar sem er greint frá úthlutun úr endurmenntunarsjóði grunnskóla árið 2026 vegna verkefna sem koma eiga til framkvæmda á skólaárinu 2026-2027. Fram kemur að Reykhólaskóli fær styrk að upphæð kr. 429.000,-.
Lagt fram.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12:45.