Fara í efni

Mennta- og menningarmálanefnd

23. fundur 13. apríl 2026 kl. 16:30 - 18:40 Sjórnsýsluhúsið Maríutröð 5a
Nefndarmenn
  • Árný Huld Haraldsdóttir (ÁHH) formaður.
  • Vilberg Þráinsson (VÞ).
  • Steinunn Rasmus (SR)
Starfsmenn
  • Anna Margrét Tómasdóttir (AMT) skólastjóri Reykhólaskóla.
  • Marie-Suzann Zeise (MSZ) lýðheilsufulltrúi
  • Kristrún Birgisdóttir (KB) Ásgarðsskóla
  • Íris Ósk Sigþórsdóttir (ÍÓS) fulltrúi starfsfólks leikskóla
  • Kolfinna Ýr Ingólfsdóttir (KÝI) fulltrúi kennara.
  • Ólafur Þór Ólafsson (ÓÞÓ) sveitarstjóri.
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson sveitarstjóri

Fundargerð

Fundur haldinn á skrifstofu Reykhólahrepps að Maríutröð 5a, Reykhólum, mánudaginn 13. apríl 2026.

Fundur settur kl. 16:30.

Nefndarfólk:
Árný Huld Haraldsdóttir (ÁHH), formaður.

Vilberg Þráinsson (VÞ).

Steinunn Rasmus (SR)

 

Áheyrnarfulltrúar:

Anna Margrét Tómasdóttir (AMT), skólastjóri Reykhólaskóla.

Marie-Suzann Zeise (MSZ), lýðheilsufulltrúi, í gegnum fjarfundarbúnað

Kristrún Birgisdóttir (KB), skólastjóri Ásgarðsskóla, skóla í skýjunum, í gegnum fjarfundarbúnað

Íris Ósk Sigþórsdóttir (ÍÓS), fulltrúi starfsfólks leikskóla í gegnum fjarfundarbúnað.

Kolfinna Ýr Ingólfsdóttir (KÝI), fulltrúi kennara.

Ólafur Þór Ólafsson (ÓÞÓ), sveitarstjóri, ritaði fundargerð.

 

Fundargerðin er rituð á tölvu og er þrjár blaðsíður.

 

Formaður bauð alla velkomna á fundinn, kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboð og fundargögn, engar athugasemdir bárust. Þá var athugað hvort væru önnur mál á dagskrá og engin slík komu fram.

 

Fundargerðir:

1.   Fundargerð 22. fundar mennta- og menningarmálanefndar 4. mars 2026.

Mál til afgreiðslu:

2.   Skóladagatal Reykhólaskóla 2026-2027 – 2603007

Skóladagatöl Reykhólaskóla, fyrir grunnskóla og leikskóladeildina Hólabæ 2027-2028, lögð fram af skólastjóra. Áður á dagskrá 22. fundar mennta- og menningarmálanefndar sem fór fram 04.03.2026. AMT og ÍÓS fylgdu dagatölunum eftir.

Mennta- og menningarmálanefnd staðfestir framlögð skóladagatöl.

 

3.   Vinnuskóli 2026 – 2603009

Drög að skipulagi Vinnuskóla 2026. Áður á dagskrá 22. fundar mennta- og menningarmálanefndar sem fór fram 04.03.2026. MSZ fylgdi málinu eftir.

Skipulag Vinnuskóla 2026 var rætt. Mennta- og menningarmálanefnd samþykkir að nemendur sem hafa lokið 8. bekk og að börnum upp að 18. ára aldri verði boðið að taka þátt í vinnuskóla.

 

4.   Grettislaug sumarið 2026 – 2603009

Tillaga að starfsemi Grettislaugar sumarið 2026 lögð fram. Áður á dagskrá 22. fundar mennta- og menningarmálanefndar sem fór fram 04.03.2026. MSZ fylgdi málinu eftir.

Drög að sumarskipulagi Grettislaugar var rætt. Lýðheilsufulltrúi mun vinna málið áfram í samstarfi við sveitarstjóra. Málinu frestað til næsta fundar nefndarinnar.

 

5.   Sumarnámskeið 2026 - 2603011

Drög að sumarnámskeiðum á vegum Reykhólahrepps 2026. Áður á dagskrá 22. fundar mennta- og menningarmálanefndar sem fór fram 04.03.2026. MSZ fylgdi málinu eftir.

Mennta- og menningarmálanefnd lýst vel á framlagt skipulag sumarnámskeiða, en frestar ákvörðun um verð og fyrirkomulag hressingar fram til næsta fundar.

 

6.   Reykhóladagar 2026 - 2603011

Umræður um fyrirkomulag Reykhóladaga 2026. ÓÞÓ fylgdi málinu eftir.

Umræður urðu um fyrirkomulag hátíðarinnar sem fer fram dagana 12.-16. ágúst í ár. Verður betur rætt á næsta fundi nefndarinnar.

 

Mál til kynningar

7.   Menntaþing Vestfjarða – 2604014

Erindi frá Vestfjarðastofu dags. 31.03.2026 þar sem greint ef frá því að Menntaþing Vestfjarða fari fram 08.06.2026 á Þingeyri. Í erindinu kemur fram að markmið þingsins er að setja menntun á dagskrá á Vestfjörðum, vekja athygli á því sem vel er gert og skapa vettvang fyrir samtal og samvinnu þvert á öll menntastig, frá leikskóla til háskóla. Öll sem koma að menntamálum eru hvött til að taka daginn frá og taka þátt í þessari mikilvægu vinnu. Í erindinu eru skólastjórnendur jafnframt hvattir til að skipuleggja daginn sem starfsdag til að tryggja möguleika flestra til að taka þátt.

Lagt fram.

 

8.   Skólaráð Ásgarðsskóla, skóla í skýjunum - 2604016

KB fór yfir og kynnti starfsemi skólaráðs Ásgarðsskóla, skóla í skýjunum.

Lagt fram og rætt.

 

9.   Upplýsingagjöf skólastjóra Reykhólaskóla, skólaárið 2025-2026 – 2508025

Skólastjóri fer yfir starfsemi Reykhólaskóla.

AMT fór yfir og kynnti stöðu mála í starfsemi Reykhólaskóla. Upplýsingagjöfin var rædd, einkum hvað varðar þær stöður í skólanum sem þarf að ráða í. Það er opin auglýsing vegna starfa sem þarf að ráða í á vordögum og er umsóknarfrestur til 26. apríl. Auglýsing vegna starfa sem þarf að ráða í fyrir skólaárið 2026-2027 mun fara í loftið síðar í apríl.

 

10.   Upplýsingagjöf skólastjóra Ásgarðsskóla, skóla í skýjunum – 2509041

Skólastjóri fór yfir starfesmi Ásgarðsskóla, skóla í skýjunum.

KB fór yfir og kynnti stöðu mála í starfsemi Ásgarðsskóla, skóla í skýjunum. Upplýsingagjöfin var rædd.

 

11.   Starf skólastjóra Reykhólaskóla - 2604015

Erindi frá Önnu Margréti Tómasdóttur, skólstjóra Reykhólaskóla, dags. 06.04.2026 þar sem hún segir starfi sínu lausu.

Lagt fram. Mennta- og menningarmálanefnd þakkar Önnu Margréti Tómasdóttur góð störf fyrir Reykhólaskóla og óskar henni velfarnaðar í komandi verkefnum á næsta skólaári.

 

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:40.