Mennta- og menningarmálanefnd
Mennta- og menningarmálanefnd Reykhólahrepps, 22. fundur
Fundur haldinn á skrifstofu Reykhólahrepps að Maríutröð 5a, Reykhólum, miðvikudaginn 4. mars 2026.
Fundur settur kl. 11:00.
Nefndarfólk:
Árný Huld Haraldsdóttir (ÁHH), formaður.
Steinunn Ó. Rasmus (SÓR).
Áheyrnarfulltrúar:
Anna Margrét Tómasdóttir (AMT), skólastjóri Reykhólaskóla.
Marie-Suzann Zeise (MSZ), lýðheilsufulltrúi, í gegnum fjarfundarbúnað
Kristrún Birgisdóttir (KB), skólastjóri Ásgarðsskóla, Skóla í skýjunum, í gegnum fjarfundarbúnað
Íris Ósk Sigþórsdóttir (ÍÓS), fulltrúi starfsfólks leikskóla.
Ólafur Þór Ólafsson (ÓÞÓ), sveitarstjóri, ritaði fundargerð.
Vilberg Þráinsson boðaði forföll og ekki tókst að boða varafulltrúa í hans stað.
Fulltrúi kennara boðaði forföll
Fundargerðin er rituð á tölvu og er þrjár blaðsíður.
Formaður bauð alla velkomna á fundinn, kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboð og fundargögn, engar athugasemdir bárust. Þá var athugað hvort væru önnur mál á dagskrá og engin slík komu fram.
Fundargerðir:
1. Fundargerð 21. fundar mennta- og menningarmálanefndar 4. febrúar 2026.
Mál til afgreiðslu:
2. Skólareglur Reykhólaskóla – 2511028
Mál frá 21. fundi mennta- og menningarmálanefndar sem fór fram 04.02.2026. Uppfærð tillaga að skólareglum Reykhólaskóla lögð fram. Reglurnar hafa fengið umfjöllun í skólaráði og eru samþykktar þar. AMT fylgdi reglunum eftir.
Mennta- og menningarmálanefnd samþykkir reglurnar og vísar þeim til sveitarstjórnar til staðfestingar.
3. Skóladagatal Reykhólaskóla 2026-2027 – 2603007
Drög að skóladagatölum Reykhólaskóla, fyrir grunnskóla og leikskóladeildina Hólabæ 2027-2028 lagðar fram af skólastjóra. AMT og ÍÓS fylgdu málinu eftir.
Drögin rædd og verða tekin til afgreiðslu á næsta fundi nefndarinnar.
4. Skóladagatal Ásagarðsskóla, Skóla í skýjunum 2026-2027 - 2603006
Skóladagatal Ásgarðsskóla, Skóla í skýjunum 2026-2027 lagt fram af skólastjóra. KB fylgdi málinu eftir.
Skóladagatal Ásgarðsskóla, Skóla í skýjunum 2026-2027 er samþykkt samhljóða.
5. Öryggishandbók Reykhólaskóla – 2603008
Öryggishandbók Reykhólaskóla lögð fram. AMT fylgdi málinu eftir.
Öryggishandbókin er lögð fram til kynningar.
6. Vinnuskóli 2026 – 2603009
Lýðheilsufulltrúi lagði fram og kynnti drög að skipulagi Vinnuskóla 2026. MSZ fylgdi málinu eftir.
Drög að skipulagi Vinnuskóla 2026 var rætt. Verður tekið til afgreiðslu á fundi nefndarinnar í apríl n.k.
7. Grettislaug sumarið 2026 – 2603009
Umræður um starfsemi Grettislaugar sumarið 2026. MSZ fylgdi málinu eftir.
Drög að sumarskipulagi Grettislaugar var rætt. Verður tekið til afgreiðslu á fundi nefndarinnar í apríl n.k.
8. Sumarnámskeið 2026 - 2603011
Umræður um sumarnámskeið á vegum Reykhólahrepps 2026. MSZ fylgdi málinu eftir.
Drög að skipulagi sumarnámskeiði 2026 var rætt. Verður tekið til afgreiðslu á fundi nefndarinnar í apríl n.k.
9. Skólavist utan lögheimilissveitarfélags – 2602035
Lögð fram umsókn um skólavist utan lögheimilissveitarfélags í Ásgarðsskóla, Skóla í skýjunum.
Umsóknin er samþykkt.
10. Reykhóladagar 2025 – 2508011
Skýrsla um Reykhóladaga 2025 lögð fram, unnin af verkefnastjóra hátíðarinnar. Mál frá 21. fundi mennta- og menningarmálanefndar sem fór fram 04.02.2026 og 531. fundi sveitarstjórnar Reykhólahrepps sem fór fram 11.02.2026
Mennta- og menningarmálanefnd þakkar fyrir skýrsluna.
11. Reykhóladagar 2026 - 2603011
Umræður um fyrirkomulag Reykhóladaga 2026. ÓÞÓ fylgdi málinu eftir.
Umræður urðu um fyrirkomulag hátíðarinnar sem fer fram dagana 12.-16. ágúst í ár. Verður betur rætt á næsta fundi nefndarinnar.
Mál til kynningar
12. Upplýsingagjöf skólastjóra Reykhólaskóla, skólaárið 2025-2026 – 2508025
Skólastjóri fer yfir starfsemi Reykhólaskóla.
AMT fór yfir og kynnti stöðu mála í starfsemi Reykhólaskóla. Upplýsingagjöfin var rædd.
13. Upplýsingagjöf skólastjóra Ásgarðsskóla, Skóla í skýjunum - 2509041
Skólastjóri fór yfir starfsemi Ásgarðsskóla, Skóla í skýjunum.
KB fór yfir og kynnti stöðu mála í starfsemi Ásgarðsskóla, Skóla í skýjunum.Upplýsingagjöfin var rædd.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 13:10.