Mennta- og menningarmálanefnd
Mennta- og menningarmálanefnd Reykhólahrepps.
21. fundur
Fundargerð
Fundur haldinn á skrifstofu Reykhólahrepps að Maríutröð 5a, Reykhólum, miðvikudaginn 4. febrúar 2026.
Fundur settur kl. 11:00.
Nefndarfólk:
Vilberg Þráinsson (VÞ), varaformaður sem stýrði fundi.
Steinunn Ó. Rasmus (SÓR).
Ólafía Sigurvinsdóttir (ÓS), varafulltrúi, sat fundinn í forföllum Árnýjar Huldar Haraldsdóttur.
Áheyrnarfulltrúar:
Anna Margrét Tómasdóttir (AMT), skólastjóri Reykhólaskóla.
Marie-Suzann Zeise (MSZ), lýðheilsufulltrúi.
Kolfinna Ýr Ingólfsdóttir (KÝI), fulltrúi kennara.
Íris Ósk Sigþórsdóttir (ÍÓS), fulltrúi starfsfólks leikskóla.
Ólafur Þór Ólafsson (ÓÞÓ), sveitarstjóri, ritaði fundargerð.
Fulltrúar Ásgarðsskóla boðuðu forföll.
Fundargerðin er rituð á tölvu og er þrjár blaðsíður.
Varaformaður bauð alla velkomna á fundinn, kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboð og fundargögn, engar athugasemdir bárust. Þá var athugað hvort væru önnur mál á dagskrá og engin slík komu fram.
Fundargerðir:
1. Fundargerð 20. fundar mennta- og menningarmálanefndar 1. desember 2025
Mál til afgreiðslu:
2. Skólareglur Reykhólaskóla – 2511028
Mál frá 20. fundi mennta- og menningarmálanefndar sem fór fram 01. 12. 2025. Uppfærð tillaga að skólareglum Reykhólaskóla lögð fram.
Mennta- og menningarmálanefnd vísar tillögunni til umfjöllunar í skólaráði og síðan til afgreiðslu á fundi nefndarinnar í mars n.k.
3. Viðmið og viðbrögð vegna ófullnægjandi skólasóknar – 2511029
Mál frá 20. fundi mennta- og menningarmálanefndar sem fór fram 01. 12. 2025.
Mennta- og menningarmálanefnd vísar tillögunni til umfjöllunar í skólaráði og síðan til afgreiðslu á fundi nefndarinnar í mars n.k.
4. Nemendaverndarráð Reykhólaskóla – 2602007
Uppfærðar starfsreglur fyrir nemendaverndarráð Reykhólaskóla lagðar fram.
Starfsreglurnar lagðar fram.
5. Sérfræðiþjónusta Reykhólaskóla – 2602008
Skólastjóri fer yfir stöðu sérfræðiþjónustu hjá Reykhólaskóla.
AMT fór yfir og kynnti stöðu sérfræðiþjónustu í Reykhólaskóla, bæði til nemenda og starfsfólks.
6. Snemmtæk íhlutun í leikskóla með áherslu á málþroska og læsi (SÍ) – 2602003
Erindi frá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS) dags. 02. 02. 2026 þar sem verkefnið “Snemmtæk íhlutun í leikskóla með áherslu á málþroska og læsi (SÍ)” er kynnt og um leið áhugi sveitarfélaga á áhuga á þátttöku í verkefninu er kannaður.
Mennta- og menningarmálanefnd þykir verkefnið spennandi, en telur að ekki séu forsendur til þátttöku Reykhólahrepps í því að þessu sinni.
7. Þjónustusamningur vegna reykvískra nemenda í Ásgarðsskóla - 2601022
Þjónustusamningur vegna reykvískra nemenda í Ásgarðsskóla lagður fram, gerður milli Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, Reykhólahrepps og Í skýjunum ehf. Samningurinn gildir fyrir skólaárin 2025 - 2026 og 2026 - 2027.
Samningurinn er lagður fram.
8. Skólavist utan lögheimilissveitarfélags – 2601015
Lögð frá umsókn um skólavist utan lögheimilissveitarfélags í Reykhólaskóla.
Umsóknin er samþykkt.
Mál til kynningar:
9. Upplýsingagjöf skólastjóra Reykhólaskóla, skólaárið 2025-2026 – 2508025
Skólastjóri fer yfir starfsemi Reykhólaskóla.
AMT fór yfir og kynnti starfsemi í Reykhólaskóla. Upplýsingagjöfin var rædd.
10. Upplýsingagjöf skólastjóra Ásgarðsskóla, skóla í skýjunum - 2509041
Skólastjóri fer yfir starfsemi Ásgarðsskóla, skóla í skýjunum.
Dagskrárlið er frestað.
11. Reykhóladagar 2025 – 2508011
Mál frá 20. fundi mennta- og menningarmálanefndar sem fór fram 01. 12. 2025.
Skýrslu vegna Reykhóladaga 2025 verður dreift til fulltrúa í mennta- og menningarmálanefndar þegar hún liggur fyrir og verður lögð fyrir sveitarstjórn.
Reykhóladagar 2026 fara fram 12.-16. ágúst og leggur nefndin áherslu á að undirbúningur fari af stað hið fyrsta. Sveitarstjóra falið að ræða við verkefnastjóra Reykhóladaga 2025 um að taka að sér stjórn og skipulag hátíðarinnar í ár.
12. Endurmenntunarsjóður grunnskóla – 2602004
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 30. 01. 2026 þar vakin er athygli á að Endurmenntunarsjóður grunnskóla hefur opnað fyrir umsóknir um styrki vegna endurmenntunarverkefna sem koma til framkvæmda á skólaárinu 2026 - 2027.
Lagt fram til kynningar.
13. Leiðbeiningar vegna umsókna um innritun og skólaskipti í grunnskóla á island.is – 2601029
Erindi frá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu dags. 26. 01. 2026 þar sem sendar eru upplýsingar um samræmda og skýra upplýsingagjöf til forsjáraðila vegna innritunar barna í grunnskóla og flutnings nemenda milli skóla með því að fara yfir nokkur lykilatriði sem þurfa að vera tilbúin áður en innritun hefst 09. 02. 2026.
Lagt fram til kynningar.
14. Framhaldsnám á Vestfjörðum - 2512027
Minnisblað frá bæjarstjóra Vesturbyggðar dags. 19. 12. 2025 varðandi framhaldsnám á Vestfjörðum sent til Mennta- og barnamálaráðuneytisins. Aðilar að minnisblaðinu eru Menntaskólinn á Ísafirði, Fjórðungssamband Vestfirðinga/Vestfjarðastofa, Vesturbyggð, Strandabyggð og Reykjólahreppur.
Lagt fram.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12:45.