Mennta- og menningarmálanefnd
Fundur í mennta- og menningarmálanefnd Reykhólahrepps,
25. mars 2025 kl. 13:00
Fundarstaður: Stjórnsýsluhúsið, Maríutröð 5a, Reykhólum.
Mætt eru:
Vilberg Þráinsson, Formaður
Steinunn Ó. Rasmus, aðalfulltrúi
Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir, aðalfulltrúi
Áheyrnarfulltrúar;
Anna Margrét Tómasdóttir, skólastjóri Reykhólaskóla
Kristrún Birgisdóttir, Skóli í Skýjunum
Marie -Susann Zeise, tómstundafulltrúi boðaði forföll.
María Rós Valgeirsdóttir, fyrir hönd kennara.
Íris Ósk Sigþórsdóttir, fyrir hönd leikskóla.
Einnig sat Ingibjörg Erlingsdóttir fundinn og ritaði fundargerð.
Fundargerðin er rituð á tölvu og er 2 blaðsíður.
Formaður bauð alla velkomna á fundinn, kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboð og fundargögn, engar athugasemdir bárust. Þá var athugað hvort væru önnur mál á dagskrá, 1 mál barst og var samþykkt að taka það til afgreiðslu undir liðnum önnur mál, þá var gengið til dagskrár.
Dagskrá:
Fundargerðir:
1. Fundargerð mennta- og menningarmálanefndar 3. febrúar 2024.
Mál til afgreiðslu:
1. Skýrsla Tómstundafulltrúi.
Marie fór munnlega yfir skýrslu vegna tómstundastarfs og félagsmiðstöðvar.
2. Skýrsla Ásgarður skóli í skýjunum.
Kristrún fór yfir munnlega skýrslu um stöðu skólans.
2.1. Starfsáætlun innra mats.
Kristrún fór yfir stöðu innra mats starfsáætlunar, starfsáætlun hefur gengið eftir.
2.2. Foreldarkönnun og umbætur á fræðsludagskrá.
Kristrún fór yfir yfir efnið.
2.3. Skóladagatal Ásgarðs skóla í skýjunum 2025- 2026. Kristrún fór yfir að skóladagatalið innihaldi 190 skóladaga, enga skerta daga. Það eru því 10 dagar í sveigjanleika innan ársins.
3. Skýrsla skólastjóra Reykhólaskóla.
Anna fór yfir munnlega skýrslu Reykhólaskóla, grunnskóladeildar.
3.1. Skóladagatal Reykhólaskóla, grunn- og leikskóla
Anna og Íris fóru yfir að skóladagatalið innihaldi 180 dagar, þ.a. 3 tvöfaldir dagar. Rætt var um áramótin og dimbilvikuna gagnvart leikskóladeild.
3.2 Sýn og stefna Reykhólaskóla.
Anna fór með nefndinni yfir endurskoðun á sýn og stefnu skólans, hvort stefna skólans geti tekið mið af stefnu sveitarfélagsins. Nefndin telur að svo sé, en leggur til við sveitarstjórn að fara í vinnu við endurskoðun á skólastefnu sveitarfélagsins. Samþykkt samhljóða.
4. Skýrsla deildarstjóra Hólabæjar.
Íris fór yfir munnlega skýrslu leikskóladeildar.
Nefndin óskar eftir fundi með verkefnisstjóra framkvæmda og umsjónarmanni fasteigna varðandi framkvæmdir framundan á skólasvæði.
Önnur mál :
5. Ósk um lengda viðveru.
Erindi frá deildarstjóra 25. mars 2025.
Málefnið rætt, skólastjóri tekur málefnið áfram í samræmi við umræður.
Farið yfir fundargerðina, fundi slitið kl. 14.30