Fara í efni

Mennta- og menningarmálanefnd

15. fundur 25. mars 2025 kl. 13:00 - 14:30 Sjórnsýsluhúsið Maríutröð 5a
Nefndarmenn
  • Vilberg Þráinsson Formaður
  • Steinunn Ó Rasmus aðalfulltrúi
  • Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Anna Margrét Tómasdóttir skólastjóri Reykhólaskóla
  • Kristrún Birgisdóttir Skóli í Skýjunum
  • Marie -Susann Zeise tómstundafulltrúi boðaði forföll.
  • María Rós Valgeirsdóttir fyrir hönd kennara.
  • Íris Ósk Sigþórsdóttir fyrir hönd leikskóla.
  • Ingibjörg B. Erlingsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Ingibjörg Birna Erlingsdóttir sveitarstjóri

Fundur í mennta- og menningarmálanefnd Reykhólahrepps,

25. mars 2025 kl. 13:00

Fundarstaður: Stjórnsýsluhúsið, Maríutröð 5a, Reykhólum.

Mætt eru:
Vilberg Þráinsson, Formaður
Steinunn Ó. Rasmus, aðalfulltrúi
Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir, aðalfulltrúi

Áheyrnarfulltrúar;

Anna Margrét Tómasdóttir, skólastjóri Reykhólaskóla

Kristrún Birgisdóttir, Skóli í Skýjunum

Marie -Susann Zeise, tómstundafulltrúi boðaði forföll.

María Rós Valgeirsdóttir, fyrir hönd kennara.

Íris Ósk Sigþórsdóttir, fyrir hönd leikskóla.

Einnig sat Ingibjörg Erlingsdóttir fundinn og ritaði fundargerð.

Fundargerðin er rituð á tölvu og er 2 blaðsíður.

Formaður bauð alla velkomna á fundinn, kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboð og fundargögn, engar athugasemdir bárust. Þá var athugað hvort væru önnur mál á dagskrá, 1 mál barst og var samþykkt að taka það til afgreiðslu undir liðnum önnur mál, þá var gengið til dagskrár.

 

Dagskrá:

Fundargerðir:

1.   Fundargerð mennta- og menningarmálanefndar 3. febrúar 2024.

Mál til afgreiðslu:

1.   Skýrsla Tómstundafulltrúi.

Marie fór munnlega yfir skýrslu vegna tómstundastarfs og félagsmiðstöðvar.

2.   Skýrsla Ásgarður skóli í skýjunum.

Kristrún fór yfir munnlega skýrslu um stöðu skólans.

   2.1. Starfsáætlun innra mats.

Kristrún fór yfir stöðu innra mats starfsáætlunar, starfsáætlun hefur gengið eftir.

   2.2. Foreldarkönnun og umbætur á fræðsludagskrá.

Kristrún fór yfir yfir efnið.

   2.3. Skóladagatal Ásgarðs skóla í skýjunum 2025- 2026. Kristrún fór yfir að skóladagatalið innihaldi 190 skóladaga, enga skerta daga. Það eru því 10 dagar í sveigjanleika innan ársins.

3.   Skýrsla skólastjóra Reykhólaskóla.

Anna fór yfir munnlega skýrslu Reykhólaskóla, grunnskóladeildar.

   3.1. Skóladagatal Reykhólaskóla, grunn- og leikskóla

Anna og Íris fóru yfir að skóladagatalið innihaldi 180 dagar, þ.a. 3 tvöfaldir dagar. Rætt var um áramótin og dimbilvikuna gagnvart leikskóladeild.

 

   3.2 Sýn og stefna Reykhólaskóla.

Anna fór með nefndinni yfir endurskoðun á sýn og stefnu skólans, hvort stefna skólans geti tekið mið af stefnu sveitarfélagsins. Nefndin telur að svo sé, en leggur til við sveitarstjórn að fara í vinnu við endurskoðun á skólastefnu sveitarfélagsins. Samþykkt samhljóða.

4.   Skýrsla deildarstjóra Hólabæjar.

Íris fór yfir munnlega skýrslu leikskóladeildar.

 

Nefndin óskar eftir fundi með verkefnisstjóra framkvæmda og umsjónarmanni fasteigna varðandi framkvæmdir framundan á skólasvæði.

Önnur mál :

5.   Ósk um lengda viðveru.

Erindi frá deildarstjóra 25. mars 2025.

 

Málefnið rætt, skólastjóri tekur málefnið áfram í samræmi við umræður.

 

Farið yfir fundargerðina, fundi slitið kl. 14.30