Fara í efni

Dreifbýlisnefnd

6. fundur 27. ágúst 2026 kl. 20:30 - 22:10 Sjórnsýsluhúsið Maríutröð 5a
Nefndarmenn
  • Vilberg Þráinsson
  • Rebekka Eiríksdóttir
  • Aron Viðar Kristjánsson
  • Guðlaug G.I.M. Bergsveinsdóttir
  • Kolbeinn Óskar Bjarnason

Fundargerð

 

Fundur í Dreifbýlisnefnd haldinn 27. ágúst 2026
í fundarsal Reykhólahrepps kl. 20:30.

Mætt eru:
Vilberg Þráinsson
Rebekka Eiríksdóttir
Aron Viðar Kristjánsson
Guðlaug G.I.M. Bergsveinsdóttir

Kolbeinn Óskar Bjarnason

 

Gestur á fundinum:
Árný Huld Haraldsdóttir oddviti

 

Vilberg bauð nefndarfólk velkomið á fundinn. Hann athugaði hvort athugasemdir væru við fundarboð og fundargerð. Engar athugasemdir voru. Hann kannaði hvor væru einhver önnur mál. Engin mál bárust.

 

1.   Kosning formanns og varaformanns

Aron býður sig fram til að vera formaður nefndarinnar.
Samþykkt samhljóða

 

Kolbeinn býður sig fram til að vera varaformaður nefndarinnar.
Samþykkt samhljóða.

 

2.   Fjallskilaseðill

Leitardagar hafa verið samþykktir og auglýstir.

 

Leitarsvæði 2 fellur niður-Króksfjarðarnes neðan Hyrnumels – ef eitthvert fé er á svæðinu skulu þeir bændur sem eiga þar fjárvon að leita þar í heimaleitum.

Númer á öllum svæðum eftir það færast upp um eitt númer.

Leitarsvæði 6 fellur inn með leitarsvæði 5.
Númer á öllum svæðum eftir það færast upp um tvö númer.

Útreikningar á dagsverkum fyrir svæði 1-2 taka ekki breytingum.

Útreikningar á dagsverkum fyrir svæði 3-9 breytist í 25 ær á dagsverk.

Dagsverk eru ekki reiknuð út fyrir svæði 10-17, tilgreint hverjir bera ábyrgð á að svæði sé leitað.

Dagsverk sem hafa verið reiknuð á bæi sem eiga ekki sauðfé verða látin niður falla.

 

Eigendur sauðfjár skulu leita þar sem þeir eiga fjárvon.
Telji bændur sig eiga fjárvon á einhverju svæði gefa þeir sig fram við leitarstjóra fyrir leit, upp á skipulag.

 

Drög að fjallskilaseðli lögð fyrir. Oddvita falið að gera breytingar miðað við umræður á fundinum. Fjallskilaseðill lagður fyrir til samþykktar.


Samþykkt samhljóða.

 

Ekki fleira gert, fundi slitið 22:10