Fjallskilanefnd
Fundur í dreifbýlisnefnd Reykhólahrepps
Þriðjudaginn 5. maí 2026 kl. 20:00
Fundarstaður: Fjarfundur
Mætt; Vilberg Þráinsson, Styrmir Sæmundsson, Rebekka Eiríksdóttir, Baldvin Smárason og Guðlaug Guðmunda Ingibjörg Bergsveinsdóttir. Vilberg ritaði fundargerð.
Fundargerðin er rituð á tölvu og er 1 blaðsíða.
Vilberg bauð fundarfólk velkomið. Hann kannaði hvort athugasemdir væru gerðar við fundarboðið. Engar athugasemdir bárust. Þá spurði hann heftir öðrum málum á dagskrá. Engin mál bárust. Þá var gengið til dagskrár.
Dagskrá: Leitardagar haustið 2026
Mál til afgreiðslu:
1. Leitardagar haustið 2026
Leitardagar í Reykhólahreppi 2026
Fjallskilanefnd leggur til að leitardagar í Reykhólahreppi séu eftirfarandi:
Svæði 1-7; Kleifar, Brekkuá að Króksfjarðarnesi, Króksfjarðarnes, frá Bakkadal að
Naðurdalsá og Borgarland verði leitað helgina 19-20. september.
Svæði 8; frá Naðurdalsá að Hjallaá verði leitað helgina 12-13. september.
Svæði 9; Reykjanes verði leitað helgina 12-14. september.
Svæði 10; Frá Hjallaá út Hallsteinsnes að Djúpadal verði leitað 12-14. september
Svæði 11-14; frá Djúpadal að Skálanesi verði leitað 12-14. september.
Svæði 15-16; Kálfadalur, Eyri, Klettur, Seljaland og Fjarðarhorn verði leitað helgina 5-6. September.
Svæði 17; Þorskafjarðarheiði og norðan Reiphólsfjalla verði leitað frá og með 5-6.
september og eftir því sem veður leyfir.
Svæði 18; Múlasveit verði leituð 2 -5. sept.
Seinni leit allra svæða verði helgina 26. sept. -27. sept
Önnur mál (ef einhver):
Fundi slitið kl. 20:20
Fundargerð undirrituð rafrænt.