Fara í efni

Umsókn um vinnuskóla 2026

Vinnuskóli 2026

Undirrituð/aður sækir hér um vinnu við vinnuskóla Reykhólahrepps sumarið 2026. Með umsókninni lýsi ég yfir áhuga á að taka þátt í verkefnum vinnuskólans, vinna samviskusamlega þau verk sem mér eru falin og fara eftir reglum vinnuskólans.

Þeir sem eiga rétt á starfi við vinnuskólann eru börn fædd 2012 (sem hafa lokið 8. bekk) og upp að 18 ára aldri, börn með lögheimili í sveitarfélaginu, börn sem eiga foreldri með lögheimili í sveitarfélaginu og/eða börn sem hafa sótt nám við Reykhólaskóla.

Umsóknarfrestur er til og með 5. Júní 2026.

Vinnuskóli fer fram frá 3. júní til 20. ágúst 2026. Vinnustaðaval og vinnutími er útfært í samvinnu við umsækjendur og forráðamenn og mun lýðheilsufulltrúi gera einstaklingsmiðaða áætlun fyrir hvern og einn nemenda vinnuskóla.

Upplýsingar um umsækjanda:

Upplýsingar um launareikning umsækjanda

Upplýsingar um forráðamann:

Laun vinnuskólanemenda er eftirfarandi (ASÍ Launaflokkur 117):

Börn á aldrínum 13-14 ára: 50% af launaflokki 117 með orlofi (13,05%) – 1.825 kr./ klst.

Börn á aldrínum 15 ára: 60% af launaflokki 117 með orlofi (13,05%) – 2.190 kr./ klst.

Börn á aldrínum 16-17 ára: 100% af launaflokki 117 með orlofi (13,05%) – 3.651 kr./ klst.

Tímafjöldi vinnuskólanemenda er eftirfarandi:

Börn á aldrínum 13-14 ára: 100 klukkustundir

Börn á aldrínum 15 ára: 120 klukkustundir

Börn á aldrínum 16-17 ára: 150 klukkustundir

Vinnustaðir:

  • Leikskóli
  • Reykhólaskóli
  • Sumarnámskeið
  • Íþróttamannvirki með tjaldsvæði
  • Bakka-Búðin
  • Almyrkvi og Reykhóladagar
  • Græn svæði og viðhaldsframkvæmdir á Reykhólum
  • Græn svæði og viðhaldsframkvæmdir á Flatey
Staðfesting

Ég staðfesti að umsóknin er gerð með leyfi forráðamanns míns. Umsóknin verður staðfest í tölvupósti til forráðamanns.