Fara í efni

Verkefnisstjóri á Reykhólum

Vestfjarðastofa, með stuðningi Byggðastofnunar, auglýsir eftir verkefnisstjóra í Reykhólahreppi. Verkefnisstjóri gegnir hlutverki leiðtoga verkefnisins Brothættra byggða í Reykhólahreppi ásamt verkefnisstjórn og starfar hann í umboði hennar að aðgerðum til eflingar byggðar og mannlífs í Reykhólahreppi.

Verkefnið hófst árið 2025 og er til fimm ára og er hluti af verkefnum Brothættra byggða og er samstarfsverkefni Byggðastofnunar, Vestfjarðastofu og Reykhólahrepps.

Um er að ræða 100% starf með starfsstöð á Reykhólum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fylgja eftir ákvörðunum verkefnisstjórnar
  • Hafa frumkvæði að nýjum verkefnum á svæðinu
  • Upplýsingamiðlun og skýrslugerð til íbúa og samstarfsaðila
  • Íbúafundir og þátttaka í samfélagsverkefnum í sveitarfélaginu
  • Aðstoð við gerð styrkumsókna og viðskiptaáætlana
  • Önnur verkefni í samstarfi við sveitarfélagið samkvæmt samkomulagi

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í verkefninu. Háskólamenntun áskilin.
  • Reynsla af ráðgjöf og atvinnu- og byggðaþróun æskileg
  • Reynsla af verkefnastjórn æskileg
  • Þekking, skilningur og reynsla af byggðamálum mikilvæg
  • Þekking á styrkjaumhverfi og skrifum umsókna í innlenda og erlenda sjóði mikilvæg
  • Góð tölvu- og tæknifærni
  • Frumkvæði, jákvæðni, samstarfsfærni og sjálfstæð vinnubrögð eru mikilvægir eiginleikar.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar má finna á www.vestfirdir.is Upplýsingar um verkefnið Brothættar byggðir er að finna á heimasíðu Byggðastofnunar gegnum tengil hér: Brothættar byggðir.

Nánari upplýsingar veitir: Sigríður Ó. Kristjánsdóttir (sirry@vestfirdir.is)
Umsóknarfrestur er til 22. júní 2026.