Þörungaverksmiðjuna á Reykhólum vantar að ráða fólk
Þörungaverksmiðjuna á Reykhólum vantar að ráða fólk til löndunar á þangi. Starfið felur í sér að vinna á bryggju og í lest á skipi við löndun á þangpokum, þar sem þarf að húkka í, hreinsa og pakka þangpokum sem verið er að landa. Þangið er síðan þurrkað og malað í verksmiðju félagsins.
Þörungarverksmiðjan hf. leitar eftir yfirvélstjóra á skip sitt, Gretti BA 39.Grettir siglir til þangsláttumanna víðs vegar um Breiðafjörð og sækir hjá þeim þangpoka og flytur heim að verksmiðju. Siglt er 3-5 sinnum í viku.