Fara í efni

Starf framleiðslustjóra í Þörungaverksmiðjunni

Auglýsing á alfred.is

Þörungaverksmiðjuna á Reykhólum vantar framleiðslustjóra til starfa.

Framleiðslustjóri hefur umsjón með daglegum rekstri og framleiðslu verksmiðjunnar og vinnur náið með starfsfólki að því að tryggja öruggan og skilvirkan rekstur. Starfið er fjölbreytt og felur meðal annars í sér skipulagningu framleiðslu, flutninga og birgðahald ásamt skráningum og skýrslugerð.

Verksmiðjan gengur allan sólahringinn flesta daga ársins. Afurðir verksmiðjunnar eru úrvals mjöl úr þangi og þara sem selt er út um allan heim.

Öryggiskröfur eru strangar og er mikilvægt að framleiðslustjóri hafi sterka öryggisvitund og taki virkan þátt í því öryggisstarfi sem fer fram í Þörungaverksmiðjunni.