Reykhólaskóli auglýsir eftir deildarstjóra á leikskóla
Deildarstjóri leikskóla 100% starf (næsti yfirmaður er skólastjóri).
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að vinna að uppeldi- og menntun samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra.
- Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá og skólastefnu Reykhólahrepps.
- Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntastarfi á deildinni.
- Stjórnun, skipulagning, mönnun og mat á starfi deildarinnar í samráði við skólastjóra.
- Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá.
- Að bera ábyrgð á foreldrasamstarfi.
- Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna og stjórnun deildarinnar sem yfirmaður felur honum.
Menntunar og hæfnikröfur
Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu.
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með börnum.
- Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum.
- Reglusemi og samviskusemi.
- Góð íslenskukunnátta.
- Ef ekki fæst fagmenntaður deildarstjóri til starfa er leitað eftir einstaklingi með aðra menntun og/eða reynslu sem nýtist í starfið.
Fríðindi í starfi
Sá sem ráðinn verður í starfið nýtur jafnframt ýmissa hlunninda, þar á meðal flutningastyrks, gjaldfrjáls leikskóla og líkamsræktarstyrks. Svæðið býður upp á einstaka nálægð við náttúru og rólegt, fallegt umhverfi.
Aðrar upplýsingar
Skólinn er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli undir einu þaki. Í skólanum eru um 50 nemendur. Reykhólar er sveitarfélag með um 240 íbúa og þar af býr um helmingur þeirra í þéttbýlinu á Reykhólum. Á Reykhólum er að finna margvíslega þjónustu.
Deildarstjóri er hluti af stjórnendateymi skólans og þarf að hafa góða samstarfs- og samskiptahæfni, vera sveigjanlegur og tilbúinn að takast á við krefjandi en gefandi verkefni.
Bent er á að samkvæmt lögum þurfa umsækjendur að samþykkja heimild til öflunar upplýsinga úr sakaskrá. Launakjör eru samkvæmt samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit um nám og störf (ferilskrá), leyfisbréf til kennslu, kynningarbréf og meðmæli. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningar hefur verið tekin.
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026
Umsóknarfrestur er til og með 3. júní 2026