Fara í efni

Leikskólakennari óskast í Hólabæ

Leikskólakennari óskast

Um er að ræða 100% stöðu leikskólakennara á Hólabæ, leikskóladeild Reykhólaskóla á Reykhólum frá og með 1. maí 2026

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennararéttindi eða önnur uppeldismenntun
  • Góð íslenskukunnátta
  • Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
  • Góðir samskiptahæfileikar og færni í mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni og frumkvæði ·
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Hreint sakavottorð

Fáist ekki menntaðir leikskólakennarar eða fólk með aðra uppeldismenntun og/eða reynslu af vinnu með börnum kemur til greina að ráða leiðbeinendur tímabundið í lausar stöður. Einnig kemur til greina að ráða í minna starfshlutfall.

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélags.

Starfsfólk sem flytur til Reykhólahrepps í fast starf hjá sveitarfélaginu fær flutningsstyrk.

Nánari upplýsingar um starfið veitir skólastjóri á netfanginu skolastjori@reykholar.is eða í síma 434-7731.

Umsóknarfrestur er til og með 26. apríl 2026.

Reykhólahreppur er á Vestfjörðum en á mörkum Vesturlands í tæplega klukkustundaakstri frá Hólmavik og Búðardal. Í Reykhólahreppi búa um 250 manns. Þar er gott skóla- og tómstundastarf. Reykhólaskóli er samrekinn grunn- og leikskóli með um 50 nemendur.