Leikskólakennari óskast á Hólabæ

Leikskólakennari óskast.
Laus er staða leikskólakennara á Hólabæ, leikskóladeild Reykhólaskóla á Reykhólum.
Menntunar og hæfniskröfur:
- Leikskólakennararéttindi eða önnur uppeldismenntun
- Góð íslenskukunnátta
- Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
- Góðir samskiptahæfileikar og færni í mannlegum samskiptum
- Jákvæðni og frumkvæði
- · Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Hreint sakavottorð
Fáist ekki menntaðir leikskólakennarar eða fólk með aðra uppeldismenntun og/eða reynslu af vinnu með börnum kemur til greina að ráða leiðbeinendur tímabundið í lausar stöður.
Um er að ræða 100% starf, en einnig kemur til greina að ráða í minna starfshlutfall sé þess óskað.
Laun samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.
Upplýsingar um starfið, umhverfið og húsnæðismöguleika veitir Anna Margrét Tómasdóttir skólastjóri Reykhólaskóla, skolastjori@reykholar.is.
Fríðindi í starfi, flutningsstyrkur fyrir starfsfólk sem flytur til Reykhólahrepps.