Fara í efni

Leikskólakennarar óskast

Leikskólakennarar óskast

Um er að ræða 100% stöðu leikskólakennara á Hólabæ, leikskóladeild Reykhólaskóla á Reykhólum frá og með 11. ágúst 2026.

Næsti yfirmaður er deildarstjóri leikskóla.

Starfssvið: Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og stefnu viðkomandi sveitarfélags.

Meginverkefni
Uppeldi og menntun: Vinnur að uppeldi og menntun barnanna. Fylgist vel með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.

Stjórnun og skipulagning:

  • Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
  • Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.

Foreldrasamvinna:

  • Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna.
  • Situr foreldrafundi, sem haldnir eru á vegum leikskólans.

Annað:

  • Tekur þátt í samstarfi við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast leikskólanum í samráði við deildarstjóra.
  • Situr starfsmannafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi leikskólans.
  • Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum.

Menntun og kröfur

Leikskólakennararéttindi eða önnur uppeldismenntun

  • Góð íslenskukunnátta
  • Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
  • Góðir samskiptahæfileikar og færni í mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni og frumkvæði
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Hreint sakavottorð

 

Fríðindi

Sá sem ráðinn verður í starfið nýtur jafnframt ýmissa hlunninda, þar á meðal flutningastyrks, gjaldfrjáls leikskóla og líkamsræktarstyrks. Svæðið býður upp á einstaka nálægð við náttúru og rólegt, fallegt umhverfi.

 

Annað

Fáist ekki menntaðir leikskólakennarar eða fólk með aðra uppeldismenntun og/eða reynslu af vinnu með börnum kemur til greina að ráða leiðbeinendur tímabundið í lausar stöður. Einnig kemur til greina að ráða í minna starfshlutfall ef ekki fæst starfsmaður í fullt starf.

Laun samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til 3. júní 2026

Upplýsingar um starfið, umhverfið og húsnæðismöguleika veitir Anna Margrét Tómasdóttir skólastjóri Reykhólaskóla, sími; 434-7731 og á skolastjori@reykholar.is. Nánari upplýsingar um skólann er á www.reykholaskoli.is