Fara í efni

Komdu í fótbolta með Mola

Tómstundastarf

Komdu í fótbolta með Mola

 

Verkefnið "Komdu í fótbolta með Mola", samstarfsverkefni Landsbankans og KSÍ, felur í sér heimsóknir til minni sveitarfélaga um land allt. Siguróli Kristjánsson, oftast kallaður Moli, hefur haft umsjón með verkefninu síðan 2019 með góðum árangri. Í heimsóknum sínum fer Moli yfir grunnatriði fótboltans og heilbrigðs lífernis. Hann setur upp skemmtilegar fótboltaæfingar og er hann alltaf með Pannavöll meðferðis.

 

Moli kemur í heimsókn á Reykhóla mánudaginn 15. júní kl. 14:00. Æfingin verður á pönnuvellinum við skólann á Reykhólum.

 

Nánari upplýsingar: https://www.ksi.is/um-ksi/fraedsla/grasrot/komdu-i-fotbolta-med-mola/

 

Við hlökkum til að sjá þig!