Fara í efni

Gróskudagur Skógræktarfélagsins Bjarkar

Tómstundastarf

Laugardaginn 7, júní, milli kl. 13 og 16 ætlar skógræktarfélagið Björk að vera með gróskudag inn á Barmahlíð.

Markmiðið er að grisja skóginn okkar og undirbúa gönguleið að ofanverðu, einnig að hafa gaman saman. Við erum með eitthvað af tækjum og tólum en frábært ef einhver á klippur eða sagir að koma með.

  • Boðið verður upp á tálgun út ferskum viði fyrir börn frá 5 ára aldri og fullorðna. Lærðu örugg hnífsbrögð og komdu að tálga í náttúrurunni. Umsjón Þórdís Halla smíðakennari.
  • Fjársjóðsleit, skoðaðu vísbendingarnar og kannski finnur þú falinn fjársjóð.
  • Grillaðar pylsur að hætti skógarbúa.

Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta og njóta.

 

Kveðja

stjórn skógræktarfélagsins

Ásta, Bettina og Þórdís