Fjársjóður fjalla og fjarða – ÍBÚAFUNDUR

Fimmtudaginn 19. júní kl. 17:00–19:30 í Búðinni á Reykhólum
Við bjóðum íbúa Reykhólahrepps hjartanlega velkomna á íbúafund þar sem kynntar verða niðurstöður íbúakönnunar og lögð fram tillaga að verkefnisáætlun Fjársjóðs fjalla og fjarða. Fundurinn er mikilvægur liður í áframhaldandi samráði við íbúa og þróun framtíðarsýnar fyrir svæðið.
Kaffi og með því verður á boðstólnum – komdu og taktu þátt í uppbyggilegu samtali um framtíð samfélagsins.
Í lok fundarins verður kynnt áætlun um lagningu ljósleiðara í íbúðabyggðina á Reykhólum, sem áætluð er síðar í sumar.
Hrafnkell Guðnason, verkefnastjóri, verður á staðnum og veitir upplýsingar. Einnig verður byrjað að skrá þá sem vilja fá ljósleiðaratengingu.
Kl. 19:30 verður íbúð að Hellisbraut 66–68 opin til sýningar fyrir gesti og gangandi.
Taktu þátt – láttu rödd þína heyrast og vertu hluti af mótun framtíðarinnar!
Allir velkomnir!