Fara í efni

Bólusetning gegn árlegri inflúensu!

Tómstundastarf

Inflúensubólusetningar fyrir áhættuhópa eru að hefjast á Heilsugæslustöðinni í Búðardal og á Reykhólum.

Gert er ráð fyrir að bólusetja á Reykhólum miðvikudaginn 22. október n.k.

Tímapantanir eru í síma 432 1450

 

Í forgangshópi eru:

  • einstaklingar 60 ára og eldri.
  • Börn fædd 2020 eða síðar sem náð hafa 6 mánaða aldri við bólusetningu.
  • Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki,

offitu, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.

  • Barnshafandi.
  • Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.
  • Fólk í starfstengdri áhættu vegna samsmits árlegrar inflúensu og fuglainflúensu sbr. frétt í okt. 2023.

 

Starfsfólk HVE Búðardal / Reykhólum