Fara í efni

533. fundur sveitarstjórnar

Stjórnsýsla

Boðað er til 533. fundar sveitarstjórnar Reykhólahrepps sem fer fram þriðjudaginn 14. apríl 2026. Fundurinn fer fram á skrifstofu Reykhólahrepps að Maríutröð 5a, Reykhólum og hefst kl. 16:30.

 

Dagskrá:

1.   532. fundur sveitarstjórnar Reykhólahrepps 11.03.2026.

 

Fundargerðir til staðfestingar:

 

Mál til afgreiðslu:

2.   2604015 Staða skólastjóra Reykhólaskóla

Erindi frá Önnu Margréti Tómasdóttur, dags. 06.04.2026, þar sem hún segir starfi sínu lausu sem skólastjóri Reykhólahrepps samkvæmt gilandi ráðningarsamningi.

 

3.   2604011 Slit á Byggðasamlagi Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks

Erindi frá stjórn Byggðasamlags Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks dags. 27.03.2026 þar sem óskað eftir formlegri afstöðu sveitarstjórnar tillögu stjórnar um að starfsemi byggðasamlagsins verði hætt og því slitið.

 

4.   2604022 Kjörstjórn, skipan

Erindi frá Steinunni Rasmus dags. 10.04.2026 þar sem hún segir úr kjörstjórn vegna vanhæfis. Í samræmi við 27. gr. og 39. gr. samþykkta um stjórn Reykhólahrepps þarf að skipa nýja fulltrúa í kjörstjórn.

 

5.   2604023 Jarðhiti í Flatey

Erindi frá Flateyjarveitum vegna jarðhita í Flatey.

 

6.   26003023 Reykhóladagar 2026

Undirritaður samningur um framkvæmdastjórn vegna Reykhóladaga 2026 dags. 08.04.2026 lagður fram til staðfestingar.

 

Mál til kynningar:

7.   2603043 Aukaþing Fjórðungssambands Vestfirðinga

Erindi frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga dags. 23.03.2026 þar sem boðað er til aukaþings Fjórðungssambands Vestfirðingar sem fer fram 15.04.2026.

8.   2603002 Aðalfundur Leigufélagsins Bríetar ehf. 2026

Erindi frá Leigufélaginu Bríeti ehf. dags. 08.04.2026 þar sem boðað er til aðalfundar sem fer fram 21.04.2026.

 

9.   2603028 Umsóknir um styrkvegi

Umsóknir Reykhólahrepps til Vegargerðarinnar dags. 19.03.2026 vegna styrkvega 2026.

 

10.   2511005 100 ára afmæli Flateyjarkirkju

Erindi frá Undirbúningsnefnd 100 ára afmælis Flateyjarkirkju á Breiðarfirði dags. 10.04.2026 þar sem sveitarstjórnarfólki, sveitarstjóra og öðru starfsfólki sveitarfélagsins er boðið til þátttöku á viðburðum er tengjast 100 ára afmæli Flateyjarkirkju.

 

11.   2604014 Menntaþing Vestfjarða

Erindi frá Vestfjarðastofu dags. 07.04.2026 boðað er til Menntaþings Vestfjarða sem fer fram á Þingeyri 08.06.2026.

 

12.   2603019 Sveitarstjórnarlög

Umsögn sveitarstjóra Reykhólahrepps dags. 20.03.2026 vegna frumvarps til sveitarstjórnarmála. Mál áður á dagskrá 532. Fundar sveitarstjórnar Reykhólahrepps sem fór fram 11.03.2026.

 

13.   2604001 Ályktun Skógræktarfélags Íslands

Erindi frá Skógræktarfélagi Íslands dags. 30.03.2026 þar sem komið er á framfæri ályktun frá fulltrúafundi félagsins sem fór fram 28.03.2026.

 

14.   2603046 Frumvarp til laga um lagareldi

Erindi frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis dags. 24.03.2026 þar sem atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um lagareldi, 529. mál.

 

15.   2603047 Frumvarp til laga um breytingu á lögum um lax- og siglungaveiði

Erindi frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis dags. 24.03.2026 þar sem atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um lax- og siglungaveiði, 530. mál.

 

16.   2603051 Verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka- og verndarflokkur)

Erindi frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis dags. 26.03.2026 þar umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir er til umsagnar verndar- og orkunýtingaráætlun, 565. mál.

 

17.   2604002 Stefna um opinbera þjónustu

Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 27.03.2026 þar sem drög að stefnu um opinbera þjónustu er send til sveitarfélaga. Stefnan er unnin af fjármála- og efnahagsráðuneytinu í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga.

 

18.   2604003 Stofnun atvinnuveganna

Erindi frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis dags. 27.03.2026 þar atvinnuveganefnd Alþingis sendir er til umsagnar 568. mál, Stofnun atvinnuveganna.

 

19.   2604008 Einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits)

Erindi frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis dags. 30.03.2026 þar atvinnuveganefnd Alþingis sendir er til umsagnar 582. mál, Einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum mengunarvörnum (einföldun eftirlits).

 

20.   2604012 Velferðarþjónusta Vestfjarða, uppgjör 2024 og 2025

Erindi frá fjármálastjóra Ísafjarðarbæjar dags. 26.03.2026 þar sem sent er minnisblað vegna uppgjörs á Velferðarþjónustu Vestfjarða fyrir árin 2024 og 2025.

 

21.   2603026 Framkvæmdaráð Velferðarþjónustu Vestfjarða

Fundargerð 14. fundar framkvæmdaráðs Velferðarþjónustu Vestfjarða sem fór fram 26.03.2026.

 

22.    2604010 Breiðafjarðarnefnd

Fundargerðir funda Breiðafjarðarnefnar nr. 240 frá 20.01.2026 og nr. 241 frá 24.02.2026.

 

Önnur mál löglega upp borin (ef einhver eru):

 

Reykhólum 10. apríl 2026,

Ólafur Þór Ólafsson

sveitarstjóri