532. sveitarstjórnarfundur
Sveitarstjórn Reykhólahrepps,
fundarboð 532. fundar
Boðað er til 532. fundar sveitarstjórnar Reykhólahrepps sem fer fram miðvikudaginn 11. mars 2026. Fundurinn fer fram á skrifstofu Reykhólahrepps að Maríutröð 5a, Reykhólum og hefst kl. 16:00.
Dagskrá:
1. 531. fundur sveitarstjórnar Reykhólahrepps 11.02.2026.
Fundargerðir til staðfestingar:
2. Fundargerð 5. fundar umhverfisnefndar 16.02.2026
3. Fundargerð 58. fundar velferðarnefndar 02.03.2026
4. Fundargerð 22. fundar mennta- og menningamálanefndar 04.03.2026
5. Fundargerð 31. fundar skipulags, hafnar- og húsnæðisnefndar 04.03.2026
Mál til afgreiðslu:
6. 2602015 Áætlanir á eignamörkum fasteigna
Erindi frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnund dags. 12.02.2026 þar sem tilkynnt er um niðurstöðu áætlaðra eignamarka jarða í eigu Reykhólahrepps. Þær jarðir sem um ræðir eru Hjallar (L39581), Flatey (L216401), Kötluland (L139665) og Galtará (L139554).
7. 2603004 Húsnæði Hlunnindasýingarinnar
Erindi frá verkefnastjóra Fjársjóðs fjalla og fjarða dags. 27.02.2026 varðandi framtíðarnýtingu húsnæðis Hlunnindasýningarinnar.
8. 2603015 Skiptingaráætlun Leigufélagsins Bríetar
Skiptingaráætlun Leigufélagsins Bríetar og stofnun Leigufélags Grindavíkur, sbr. hlutafafundur Leigufélagsins Bríetar ehf. sem fór fram 05.03.2026.
9. 2603022 Tenging Jónsbókar við skjalakerfi - greiningarhluti
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 05.03.2026 þar sem sveitarfélögum er boðin þátttaka í verkefninu “Tenging Jónsbókar við skjalakerfi – greiningarhluti”.
10. 26003023 Aðalskipulag Sveitarfélagsins Stykkishólms, nr. 0262/2026: Lýsing
(Nýtt aðalskipulag)
Erindi frá Skipulagsgátt dags. 06.03.2026 þar sem tilkynnt er um að Sveitarfélagið Stykkishólmur hefur óskað eftir umsögn Reykhólahrepps um málið “Aðalskipulag Sveitarfélagsins Stykkishólms, nr. 0262/2026: Lýsing (Nýtt aðalskipulag)“.
11. 2406019 Aðalskipulag 2022-2034 breyting, Króksfjarðarnes
Tillaga skipulags, hafnar- og húsnæðisnefndar Reykhólahrepps til sveitarstjórnar um að sveitarstjórn samþykki til staðfestingar, samkvæmt 32. grein skipulagslaga nr. 123/2010, uppfærða tillögu að breytingum á aðalskipulagi 2022-2034, Króksfjarðarnes, eftir að tekið hefur verið tillit til athugasemda Skipulagsstofnunar, sem komu fram í erindi dags. 28.01.2026. Mál frá 31. fundi skipulags-, hafnar- og húsnæðisnefndar sem fór fram 04.03.2026.
12. 2511028 Skólareglur Reykhólaskóla
Skólareglur Reykhólaskóla, samþykktar af mennta- og menningarmálanefnd Reykhólahrepps, lagðar fram til staðfestingar. Mál frá 22. fundi mennta- og menningarmálanefndar Reykhólahrepps sem fór fram 04.03.2026.
13. 2602035 Skólavist utan lögheimilissveitarfélags
Umsókn um skólavist utan lögheimilissveitarfélags í Ásgarðsskóla, skóla í skýjunum. Mál frá 22. fundi mennta- menningarmálanefndar Reykhólahrepps sem fór fram 04.03.2026.
14. 2603017 Skólastarf í Reykhólaskóla
Erindi frá nokkrum foreldrum nemenda í Reykhólaskóla dagsett í febrúar varðandi skólastarf í Reykhólaskóla.
Mál til kynningar:
15. 2603001 Ársreikningur Fjórðungssambands Vestfirðinga 2025
Erindi frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga dags. 02.03.2026 þar sem árreikningur Fjórðungssambands Vestfirðinga 2025 er sendur til kynningar.
16. 2603002 Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga 2026
Erindi frá Lánasjóði sveitarfélaga þar sem boðað er til aðalfundar sjóðsins sem fer fram í Reykjavík 20.03.2026.
17. 2603013 Siglingasamband Íslands, áskorun
Erindi frá Siglingasambandi Íslands dags. 21.02.2026 þar sem finna má áskorun til sveitarfélaga landsins varðandi verndun strandlengju Íslands.
18. 2603016 Vatnaskil í þjóðlendumálum, ráðstefna
Erindi frá forsætisráðuneytinu dags. 02.03.2026 þar sem boðað er til ráðstefnunnar “Vatnaskil í þjóðlendumálum” sem fer fram í Reykjavík 12.03.2026.
19. 2603019 Sveitarstjórnarlög
Erindi frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis dags. 06.03.2026 þar sem Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 505. mál “Sveitarstjórnarlög”.
20. 2603024 Varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum
Erindi frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis dags. 05.03.2026 þar sem Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 499. mál “Varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum og Vegagerðin, framkvæmdastofnun samgöngumála (markmið nýting eigna, framkvæmdaumsjón”.
21. 2603026 Vestfjarðavíkingurinn 2026
Erindi frá Félagi kraftamanna dags. 23.02.2026 varðandi Vestfjarðavíkinginn 2026.
22. 2602024 Svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða
Fundargerð 24. fundar Svæðisskipulagsnefndar Vestfjarða sem fór fram 11.02.2026.
23. 2602001 Samband íslenskra sveitarfélaga, fundargerðir
Fundargerðir funda stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 993 frá 18.02.2026 og nr. 994 frá 03.03.2026.
Önnur mál löglega upp borin (ef einhver eru):
Reykhólum 9. mars 2026,
Ólafur Þór Ólafsson
sveitarstjóri