531. sveitarstjórnarfundur
Sveitarstjórn Reykhólahrepps,
fundarboð 531. fundar
Boðað er til 531. fundar sveitarstjórnar Reykhólahrepps sem fer fram miðvikudaginn 11. febrúar 2026. Fundurinn fer fram á skrifstofu Reykhólahrepps að Maríutröð 5a, Reykhólum og hefst kl. 16:00.
Dagskrá:
1. fundur sveitarstjórnar Reykhólahrepps 14.01.2026.
Fundargerðir til staðfestingar:
2. Fundargerð 21. fundar mennta- og menningamálanefndar 04.02.2026.
3. Fundargerð 30. fundar skipulags, hafnar- og húsnæðisnefndar 04.02.2026.
Mál til afgreiðslu:
4. 2602015 Ungmennaráð Vestfjarða
Fulltrúar frá Ungmennaráði Vestfjarða verða gestir á fundinum undir þessum lið.
5. 2601020 Hjallar í Þorskafirði
Erindi frá Snæbirni Jónssyni frá Mýrartungu dags. 20.01.2026 þar sem óskað er eftir því að hafinn verði undirbúningur að landaskiptum jarðarinnar Hjalla við Þorskafjörð.
6. 2601007 Kötluland, fasteignagjöld.
Erindi frá Félagi áhugamanna um bátasafn Breiðafjarðar dags. 07.01.2026 vegna fasteingagjalda af fasteign nr. 212-2543, Kötluland lóð 1.
7. 2601022 Þjónustusamningur vegna reykvískra nemenda í Ásgarðsskóla
Þjónustusamningur vegna reykvískra nemenda í Ásgarðsskóla, gerður milli Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, Reykhólahrepps og Í skýjunum ehf. Samningurinn gildir fyrir skólaárin 2025-2026 og 2026-2027. Mál frá 21. fundi mennta- menningarmálanefndar Reykhólahrepps sem fór fram 04.02.2026.
8. 2601015 Skólavist utan lögheimilissveitarfélags
Umsókn um skólavist utan lögheimilissveitarfélags í Reykhólaskóla. Mál frá 21. fundi mennta- menningarmálanefndar Reykhólahrepps sem fór fram 04.02.2026.
9. 2601011 Ósk um breytingar á deiliskipulagi í Bjarkarlundi
Erindi Landslags dags. 28.01.2026 um óverulega breytingu á Aðalskipulagi Reykhólahrepps 2022-2034 í Bjarkarlundi (VÞ10), sbr. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 1237201 og tillaga að breytingu á deiliskipulagi Bjarkarlundar, sbr. 1. mgr. 43. gr. laganna. Mál frá 30. fundi skipulags, hafnar- húsnæðinefndar Reykhólahrepps sem fór fram 04.02.2026.
10. 2601034 Kaup félagsins Úr sveitinni ehf. á Ingunnarstöðum
Erindi frá Atvinnuvegaráðuneytinu dagsett 02.02.2026. Sérstaklega er óskað eftir sjónarmiðum sveitarfélagsins um það hvort fyrirhuguð ráðstöfun fasteignar og áformuð nýting hennar samrýmist skipulagsáætlunum Reykhólahrepps. Enn fremur hvort áformuð nýting fasteignar sé að mati sveitarfélagsins í samræmi við stærð, staðsetningu og ræktunarskilyrði hennar, samkvæmt 3. málsl. 8. mgr. 10. gr. a skulu umsagnir liggja fyrir eins skjótt og verða má. Skipulags-, hafnar og húsnæðisnefnd Reykhólahrepps leggur til við sveitarstjórn að skrifa jákvæða umsögn varðandi erindi enda samræmist áform um nýtingu jarðarinnar aðalskipulag sveitarfélagsins. Jafnframt telur nefndin að áformuð nýting fasteignar sé í samræmi við stærð, staðsetningu og ræktunarskilyrði hennar. Mál frá 30. fundi skipulags, hafnar- húsnæðinefndar Reykhólahrepps sem fór fram 04.02.2026.
11. 2601012 Umsókn um leyfi fyrir uppsetningu fuglaskiltis
Erindi frá Guðjóni D. Gunnarssyni dags. 09.01.2026 þar sem sótt er um leyfir fyrir uppsetningu fuglaskiltis. Fyrir liggur tillaga skipulags-, hafnar og húsnæðisnefdar til sveitarstjórnar um að taka vel í erindið. Mál frá 30. fundi skipulags, hafnar- húsnæðinefndar Reykhólahrepps sem fór fram 04.02.2026.
12. 2602005 Stofnframlög HMS 2026
Erindi frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun dagsett 02.02.2026 þar sem vakin er athygli á auglýsingu um umsóknir vegna stofnframlaga til byggingar eða kaupa á almennum íbúðum. Skipulags-, hafnar og húsnæðisnefnd telur ekki tilefni til að sækja um stofnframlög að þessu sinni en vísar erindinu til sveitarstjórnar. Mál frá 30. fundi skipulags, hafnar- húsnæðinefndar Reykhólahrepps sem fór fram 04.02.2026.
13. 2602016 Eyrarkláfur, Ísafirði.
Erindi frá Skipulagátt dags. 03.02.2026 þar sem ítrekuð er ósk Ísafjarðarbæjar um umsögn vegna deiliskipulagstillögu á vinnslustigi um Eyrarkláfi. Mál frá 30. fundi skipulags, hafnar- húsnæðinefndar Reykhólahrepps sem fór fram 04.02.2026.
Mál til kynningar:
14. 2508011 Reykhóladagar 2025
Samantekt vegna Reykhóladaga 2025. Mál frá 21. fundi mennta- menningarmálanefndar Reykhólahrepps sem fór fram 04.02.2026. Mál frá 21. fundi mennta- menningarmálanefndar Reykhólahrepps sem fór fram 04.02.2026.
15. 2601037 Framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómúrlausn
Erindi frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis dags. 29.01.2026 þar sem Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar 305. mál “ Framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómúrlausn”.
16. 2601036 Réttarvernd fatlaðs fólks
Erindi frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis dags. 29.01.2026 þar sem Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar 311. mál “ Réttindavernd fatlaðs fólks”.
17. 2602018 Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir
Erindi frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis dags. 29.01.2026 þar sem Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar 312. mál “Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir (stytting bótatímabils o.fl.)”.
18. 2602035 Breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun og vernd og orkunýtingu landssvæða
Erindi frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis dags. 29.01.2026 þar sem Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 307. mál “Breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun og vernd og orkunýtingu landssvæða”.
19. 2510022 Samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaráætlun fyrir árin 2026-2030
Erindi frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis dags. 21.01.2026 þar sem Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 322. mál “Samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaráætlun fyrir árin 2026-2030”.
20. 2601030 Styrktarsjóður EBÍ
Erindi frá Eignarhaldsfélaginu Brunabótarfélag Íslands dags. 27.01.2026 þar sem er vakin athygli á að umsóknarfrestur í Styrktarsjóð fyrir árið 2026 sé til febrúarloka.
21. 2601026 Framkvæmdasjóður fatlaðra 2026
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 21.01.2026 þar sem vakin er athyli á að félags- og húsnæðismálaráðuneytið hefur opnað fyrir umsóknir um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2026.
22. 2601008 M.E.-félag Íslands
Erindi móttekið 07.01.2026 varðandi starfsemi félagsins.
23. 2602001 Samband íslenskra sveitarfélaga, fundargerðir
Fundargerð 992. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga sem fór fram 23.01.2026.
Önnur mál löglega upp borin (ef einhver eru):
Reykhólum 6. febrúar 2026,
Ólafur Þór Ólafsson
sveitarstjóri