Fara í efni

526. sveitastjórnarfundur

Stjórnsýsla

Boðað er til 526. fundar sveitarstjórnar Reykhólahrepps sem fer fram miðvikudaginn 8. október 2025. Fundurinn fer fram á skrifstofu Reykhólahrepps að Maríutröð 5a, Reykhólum og hefst kl. 16:00.

 

Dagskrá:

1.   525. fundur sveitarstjórnar Reykhólahrepps 10.09.2025.

Fundargerðir til staðfestingar:

2.   Fundargerð 18. fundar mennta- og menningarmálanefndar 26.08.2025.

3.   Fundargerð 56. fundar velferðarnefndar Stranda og Reykhólahrepps 02.09.2025.

 

Mál til afgreiðslu:

4.   2507003  Fjárhagsáætlun 2026 og þriggja ára áætlun 2027-2029

5.   2503007  Skipun fulltrúa í stýrihóp áfangastaðaáætlunar

Erindi frá Markaðsstofu Vestjarða dags. 20.02.2025 þar sem óskað er eftir skipun fulltrúa í stýrihóp áfangastaðaáætlun Vestfjarða.

6.   2510006  Ósk um viðhaldsáætlun

Erindi frá stjórn Báta- og hlunnindasýningarinnar dags. 06.10.2025 þar sem ítrekuð er brýn þörf á bættu viðhaldi á húsnæði sýningarinnar og óskað eftir viðhaldsáætlun þegar kemur að húsinu.

Mál til kynningar:

7.   2508027  Morgunbollinn, samtal framkvæmdastjóra sveitarfélaga og Sambands íslenskra sveitarfélaga

Glærur frá fundi sem fór fram 19.09.2025.

8.   2509034  Frumvarp til laga um breytingar á sveitarstjórnarlögum 138/2011

Erindi frá Innviðaráðuneytinu dags. 23.09.2025 þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 180/2025 “Frumvarp til laga um breytingar á sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011.

9.   2509016  Áhrif 16. gr. laga nr. 55/1992 ef byggingar eru reistar á svæðum sem fyrir fram er vitað að eru sérlega næm fyrir náttúruhamförum sem eru bótaskyldar hjá NTÍ.

Erindi frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands dags. 10.09.2025 þar sem áréttuð er lagaleg staða og ábyrgð sveitarfélaga í skipulagsmálum og réttur almennings til skýrra upplýsinga um takmarkanir á vátryggingarvernd og bótarétti skv. 16. gr. laga nr. 55/1992 þegar byggt er á svæðum með fyrir fram þekkta náttúruvá, einkum vegna vatns- og sjávarflóða.

10.   2509036 Skógrækt, ályktun S.Í.

Erindi frá Skógræktarfélagi Íslands dags. 22.09.2025 þar sem komið er á framfæri ályktun félagsins frá nýliðnum aðalfundi.

11.   2509044 Tillaga til þingsályktunar um borgarstefnu fyrir árin 2025-2040

Erindi frá Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis dags. 26.09.2025 þar sem tillaga að þingsályktun um borgarstefnu fyrir árin 2025-2040 er send til umsagnar.

12.   2509045 Endurskoðun byggðaáætlunar

Erindi frá Byggðastofnun dags. 26.09.2025 þar sem vakin er athygli á því að opnað hefur verið fyrir rafrænt samráð vegna stefnumótunar vegna endurskoðunar byggðaáætlunar.

13.   2510002 Alþjóðlegur minningardagur Sameinuðu þjóðanna um fórnarlömb umferðarslysa

Erindi frá innviðaráðherra dags. 30.09.2025 þar sem hvatt er til virkrar þátttöku í minningardegi Sameinuðu þjóðanna um fórnarlömb umferðarslysa sem verður haldinn sunnudaginn 16.11.2025.

14.   2510004 Öryggi, varnarmál og hlutverk Almannavarnadeildar

Erindi frá Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra dags. 06.10.2025 þar sem vakin er athygli á árleg ráðstefna Almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra sem verður haldin fimmtudaginn 16.10.2025. Ráðstefnan mun eins og áður fjalla um almannavarnamál á Íslandi, með sérstakri áherslu á öryggi, varnarmál og hlutverk Almannavarnadeildarinnar í því samhengi.

15.   2501005 Kvennaverkfall 50 ára

Erindi frá Kvennréttindafélagi Íslands dags. 06.10.2025 þar sem sveitarfélög eru hvött til að leggj sitt af mörkum til að minnast 50 ára afmælis kvennafrídagsins og styðja við þá viðburði sem eru í gangi að þessu tilefni sem og að gera konum og kvárum sem starfa hjá sveitafélögum kleift að taka þátt í Kvennaverkfalli 24.10.2025.

16.   2509038 Brunavarnir Dala, Reykhóla og Stranda, fundargerðir

Fundargerð stjórnarfundar Brunavarna Dala, Reykhóla og Stranda bs. sem fór fram 22.09.2025.

17.   2509035 Svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða, fundargerðir

Fundargerð 20. fundar Svæðisskipulagsnefndar Vestfjarða sem fór fram 08.09.2025.

18.   2503008 Samband íslenskra sveitarfélaga, fundargerðir

Fundargerðir stjórnarfunda Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 984 sem fór fram 12.09.2025 og nr. 985 sem fór fram 26.09.2025.

 

Önnur mál löglega upp borin (ef einhver eru):

 

 

 

Reykhólum 6. október 2025,

Ólafur Þór Ólafsson

sveitarstjóri